Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Blaðsíða 42
42 FÓKUS 7. júní 2019 F rímann Andresson byrjaði ungur að vinna við útfarir og það sem átti aðeins að vera sumarstarf varð að ævistarfi hans. Þrátt fyrir að hann segist hafa verið stefnulaus sem ungur maður er ljóst að rauði þráðurinn í störfum hans hefur ætíð verið að hjálpa fólki, jafnt í gleði sem á sorgarstundum. Blaðamaður settist í sófann með Frímanni hjá Útfararþjónustu Frímanns og Hálfdáns í Hafnarf- irði, þar sem Frímann tekur á móti aðstandendum og leiðbeinir þeim um hinstu stund ástvina þeirra; hvenær, hvar og hvernig útför mun fara fram. „Við erum þrjú sem störfum hérna, lítið og gott fyrirtæki. Mér finnst þetta nánara og maður kynnist fólki betur hér en á stærri vinnustað, þar sem fólk er kannski alltaf að hitta nýjan starfsmann. Hér höldum við okkur við þá reglu að ef ég verð fyrir svörum í fyrsta sinn, þá tek ég viðtalið við að- standendur og reyni að fylgja þeim í allar athafnir og það sem þarf að gera. Samskiptin verða eðlilegri og persónulegri þannig og ég kann betur við það fyrirkomulag,“ segir Frímann. Hann er fæddur í Reykjavík, gekk í Laugarnesskóla, Öldusels- skóla og útskrifaðist síðan úr Menntaskólanum við Sund. „Bekkjarkerfið var ástæðan fyr- ir að ég fór þangað, mér fannst það halda betur utan um hópinn, frekar en fjölbrautaskóli þar sem maður hefði týnst svolítið.“ Eftir fyrsta bekk í menntaskóla, fór Frí- mann og vann yfir sumartímann hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur við hefðbundin störf; reyta arfa, gróð- ursetja blóm, laga til leiði, grafar- tekt og slíkt, „Ég vann síðan öll sumur með menntaskólanum þar og þar með var ég kominn inn í þennan heim sem ég er búinn að vera viðloð- andi síðan. Þegar ég útskrifaðist úr MS árið 1993 þá var ég alveg stefnulaus og vissi ekkert hvað mig langaði að gera, og eðlilega fékk ég bara vinnu áfram í kirkjugörðun- um. Árið 1996, þegar ég var 23 ára, losnaði sumarstarf hjá Útfarar- stofu kirkjugarðanna. Þar var ég næstu 19 árin þannig að starfið varð aðeins meira en sumarstarf. Síðan urðu breytingar þar, og Hálf- dán bað mig um að koma í fullt starf hingað yfir.“ Aðspurður um hvaða nám útfararstjóri þurfi að hafa, svar- ar Frímann að reynslan sé nám- ið. „Maður fer bara í djúpu laugina strax, og starfar við hliðina á öðr- um reyndari, þannig hefur þetta alltaf verið og er ennþá. Í ein- EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI „Maður ætti að skipta um starf þegar maður situr með grátandi fólki og það snertir ekkert við manni“ Tvær hliðar Frímanns Andréssonar - Útfararstjóri og plötusnúður Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Landsbjörg er góður félags- skapur og mjög gefandi. Gleði og sorg Að sinna fólki er rauði þráðurinn í störfum Frímanns, jafnt í gleði sem sorg. M Y N D : H A N N A /D V Sjálfboðaliði Frímann hefur verið meðlimur í Landsbjörgu frá unglingsaldri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.