Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 8
8 12. apríl 2019FRÉTTIR
„Sælt veri fólkið
Langaði að senda ykkur línu
og greina frá atburðum dagsins,
þannig er að mér voru gefnir úr-
slitakostir að segja upp eða vera
sagt upp með einhverju áminn-
ingaferli og leiðindum. Ástæðan
er mér frekar óljós, en jú að sögn
fyrrverandi yfirmanns er ég víst
svo pirruð og óánægð að hann
treystir sér ekki lengur til að hafa
mig starfandi með hópnum og jú
svo hef ég ekki staðið mig nógu
vel í símsvörun. Og ekki má nú
gleyma að einhver lítil mús til-
kynnti honum í gær að ég hefði
stolist út í smók utan matar/kaffi
tíma.
En allavega ber mér að hætta
núna strax korter í jólahlað-
borð sem yfirmanninum fannst
nú reyndar að ég ætti að mæta
á (mjög sérstakt) og korter í jól.
Þannig að ég vil þakka ykkur
fyrir góð kynni og gott samstarf
á undanförnum árum og óska
ykkur og fjölskyldum ykkar gleði-
legra jóla.“
„Þú finnur það þegar það byrj-
ar og svo ágerist það. Allt í sam-
bandi við manneskjuna fer að fara
í taugarnar á honum og smám
saman verður allt starfsmannin-
um að kenna,“ segir Elsa um fram-
göngu forstöðumannsins.
„Um leið og maður er búinn að
segja upp þá er maður orðinn
óvinur“
„Mín saga er frábrugðin sögum
hinna kvennanna,“ segir Elsa. „Það
var ekki þessi langi undanfari vax-
andi andúðar og eineltis. Ég starf-
að í höfuðstöðvunum í Reykjavík
en forstöðumaðurinn umræddi
var á Ísafirði. Forstöðumaðurinn
gat hins vegar ekki unnað mér
að ganga út úr stofnuninni með
reisn.“
Elsa hafði sagt upp störfum
vegna óánægju með starfsand-
ann á stofnuninni sem bæði hún
og Braga segja að gegnsýri bæði
starfsstöðina á Ísafirði og aðal-
stöðvarnar í Reykjavík. Mikil vin-
átta ríki á milli forstjórans og for-
stöðumannsins og af þeim sökum
sé enginn trúnaður við starfsfólk
virtur. Allt sem sagt sé við forstjór-
ann um erfiðleika í samskiptum
við forstöðumanninn rati til for-
stöðumannsins og leiði hefnd yfir
þann sem kvartaði. Lokaniður-
staðan sé alltaf sú sama: Val um að
segja upp eða vera rekinn.
„Þann 23. mars 2017 fór for-
stjóri stofnunarinnar í frí og for-
stöðumaðurinn kom suður og
leysti hann af,“ segir Elsa enn
fremur. „Ég hafði sagt upp störf-
um og bað forstjórann um að tjá
sig ekki um það þar sem ég vildi fá
að segja samstarfsfólki mínu sjálf
frá uppsögninni. Sama dag og for-
stöðumaðurinn kemur suður kall-
ar hann mig inn á skrifstofu og tjá-
ir mér að að frekara vinnuframlags
af minni hálfu væri ekki óskað. Var
mér gert að hætta strax en ég fengi
greiddan allan uppsagnarfrestinn.
Kom þetta mér í opna skjöldu þar
sem trúnaðurinn við forstjórann
var augljóslega brostinn.
Það var ekkert annað í boði
fyrir mig en að fara strax. Það var í
raun og veru verið að reka mig þó
að ég hafi sagt upp. Ég átti ekki að
fá að halda reisn, um leið og mað-
ur er búinn að segja upp er maður
orðinn óvinur.
Það þarf að gera honum ljóst
að hann á ekki Innheimtustofn-
un sveitarfélaga, þetta er opinber
stofnun sem hann fer með eins og
væri hans eigið fyrirtæki, og kemst
upp með það af því að hann virð-
ist hafa vin sinn, forstjórann, í vas-
anum. Það er þess vegna sem við
stígum fram, ekki til að opinbera
einhverja harmsögu í lífi okkar,
því við jöfnum okkur alveg á þessu
mótlæti, heldur til að leiða í ljós
hvað viðgengst í daglegri stjórnun
og starfsmannamálum í þekktri
ríkisstofnun,“ segir Braga.
Braga segist hafa streist lengi
á móti hinum þekktu afarkostum
sem starfsfólk er fellur í ónáð
innan stofn-
unarinnar
standi frammi fyrir. Í sögu
hennar er meðal annars að finna
dæmi um, að því er virðist, ef satt
er, stórfurðulega afskiptasemi
af einkalífi starfsfólks og maka
þeirra, kvartað yfir því að þessi og
hinn séu ekki Facebook-vinir, auk
þess sem Braga var sökuð um ein-
elti á vinnustað án þess að hún
hefði nokkurn tímann fengið að
vita efnisatriði þess eineltismáls,
að hennar sögn.
Segir að farið hafi verið í
tölvupóstinn hennar og rótað í
skrifborðinu
„Mín saga er lengri og stærri en
hinna vegna þess að ólíkt hinum
konunum var ég staðráðin í að
láta þennan mann ekki vaða yfir
mig,“ segir Braga. Í byrjun árs 2018
segist hún hafa upplifað mikla
breytingu á hegðun forstöðu-
mannsins í hennar garð á vinnu-
staðnum. „Það kom til dæmis
fram í því að hann gekk út af kaffi-
stofunni ef ég kom þangað inn og
fleira af slíku tagi. Ég var greinilega
fallin í ónáð og af fyrri reynslu vissi
ég að farið var af stað ferli sem yrði
ekki stöðvað og gæti bara endað á
einn hátt.“ Þess skal getið að Braga
og forstöðumaðurinn þekktust vel
og voru góðir vinir eins og flest-
ir starfsmenn útibúsins á Ísafirði,
enda um lítið samfélag að ræða.
„Við vorum nágrannar og vinskap-
ur okkar náði langt aftur.“
Hluti af þessari sögu varða at-
burði í einkalífi Brögu sem áttu
sér stað um sama leyti: „Ég á son
sem var í mikilli neyslu um þetta
leyti og rétt eftir áramótin fékk ég
tilkynningu um að hann væri á
milli heims og helju á sjúkrahúsi.
Ég upplýsi það fúslega hér að ég
fékk taugaáfall vegna þessa og fór
til læknis sem fyrirskipaði tveggja
vikna veikindaleyfi. Á þeim tíma
kom ég drengnum mínum í með-
ferð til Svíþjóðar. Ég sendi tölvu-
póst á allar vinkonur mínar í
vinnunni – þennan góða hóp – og
lét þær vita að ég yrði frá í tvær vik-
ur.
Á þessum tíma fékk ég tilkynn-
ingu um það í símann að það hefði
verið farið í tölvupóstinn minn.
Ég hafði samband við kerfisstjór-
ann og sagði að það væri búið að
hakka tölvupóstinn minn. Þegar
ég hafði samband við forstöðu-
manninn viðurkenndi hann að
hafa farið í póstinn til að setja inn
tilkynningu um að ég væri í veik-
indaleyfi. En ég hafði sjálf sett inn
slíka tilkynningu.“
Þegar Braga kom til baka úr
veikindaleyfinu í febrúar kom í
ljós að hún hafði misst prókúru
inni í einkabanka stofnunarinnar
og innkaupaverkefni á veitingum
Afgreiðum HÁDEGISMAT Í BÖKKUM
alla daga ársins til fyrirtækja og stofnana
GÆÐA BAKKAMATUR
Mismunandi réttir
ALLA DAGA VIKUNNAR
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
„Starfs-
ferillinn
minn var tek-
inn og settur í
tætarann
„Á borðinu liggja
alltaf tvö bréf
Útibúið á Ísafirði Kvörtun starfsmanns vegna
forstöðumannsins endaði á hans borði.