Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Síða 9
12. apríl 2019 FRÉTTIR 9
fyrir starfsmenn hafði verið tekið
af henni. Þegar hún innti forstöðu-
manninn eftir því hverju þetta
sætti, svaraði hann því til að hann
hefði viljað minnka á henni álagið.
Hún sagði honum að ef það þyrfti
að létta af henni álagi myndi hún
hún segja honum það sjálf.
Braga upplifði undarlegan
kulda í samskiptum á vinnu-
staðnum. Hún bauð einni sam-
starfskonu að hitta sig utan vinnu
til að spyrja hana hvað væri að.
Vinkonan svaraði henni með
þessum orðum: „Haltu bara þínu
striki.“ Segir Braga að á milli þeirra
hafi ríkt þögull, gagnkvæmur
skilningur á því að hið kunnuglega
mynstur útskúfunar og meðfylgj-
andi þöggunar væri nú orðið hlut-
skipti hennar.
„Félagsleg útskúfun í vinnunni
magnaðist en gat jafnvel orðið
spaugileg. Eitt mjög sérstakt
dæmi var þegar forstöðumaður-
inn keypti pítsu handa öllu starfs-
fólkinu í hádeginu og kallaði síðan
hvert og eitt okkar upp með nafni
til að fá sinn skammt. En hann
kallaði ekki upp nafn mitt. Ég tók
þetta ekki nærri mér, það var of
hlægilegt til þess. En þetta segir
mikið um aðferðirnar og ógnar-
stjórnina á vinnustaðnum. Oft
fólst ofbeldið í hundsun, en einnig
í því að forstöðumaðurinn skaut
á mig meiðandi athugasemdum
fyrir framan aðra starfsmenn.“
Kvörtun til forstjórans kornið
sem fyllti mælinn
Þann 20. febrúar 2018, eða ellefu
dögum eftir að Braga kom úr
veikindaleyfinu, sendi hún kvört-
unarbréf vegna hegðunar for-
stöðumannsins til forstjóra stofn-
unarinnar. Forstjórinn svaraði
með því að vísa erindinu til for-
stöðumannsins. „Með öðrum
orðum: Trúnaður var ekki virtur
og forstöðumaðurinn átti að vera
dómari í eigin sök. Það þurfti ekki
að bíða lengi eftir viðbrögðum
forstöðumannsins, sem kallaði
mig inn til sín samdægurs og lýsti
yfir mikilli reiði yfir kvörtuninni,“
segir Braga.
Gekk nú á um skeið með tog-
streitu þar sem Braga segir að for-
stöðumaðurinn hafi viljað hana
út af vinnustaðnum, vildi að hún
segði upp að eigin ósk – en þó í
raun nauðbeygð – en Braga seg-
ist hafa neitað að gera það. Hún
segir að einu sinni hafi forstöðu-
maðurinn misst þolinmæðina og
hvæst á hana: „Þá leggjum við
bara starfið þitt niður.“
„En þetta er opinber stofnun,
hann getur ekki bara lagt störf hjá
hinu opinbera niður að eigin geð-
þótta,“ segir Braga.
„Þetta var bara skólabókar-
dæmi um kynbundið ofbeldi
og einelti á vinnustað. Þetta
snerist um yfirgang, stjórnsemi,
drottnun og að lokum útskúfun,“
segir Braga.
Braga leitaði til stjórnar Inn-
heimtustofnunar sveitarfé-
laga um liðsinni í málinu, en
án árangurs að hennar sögn.
Hún fékk einnig viðtal við for-
stjóra stofnunarinnar í Reykjavík
og reyndi að útskýra hvað væri í
gangi, en hún segir að forstjórinn
hafi ekki verið reiðubúinn til að
hlusta á hennar hlið.
Útskúfun og óútskýrðar
ásakanir um brot í starfi
Braga fór í frí 3. apríl. Á meðan hún
var í fríinu komst hún að því að búið
var að eyða henni úr öllum sameig-
inlegum hópum hennar og sam-
starfsfólksins á samfélagsmiðl-
um. Flest samstarfsfólkið taldist til
hennar bestu vina enda vinnustað-
urinn í litlu samfélagi. Þegar Braga
ætlaði að spyrja eina vinkonuna
hvers vegna hún væri horfin úr öll-
um hópum þá var það ekki hægt,
vinkonan var búin að blokka hana
– þau voru öll búin að blokka hana!
Skömmu síðar fékk Braga þær
fréttir að hún væri sökuð um brot í
starfi, nánar tiltekið einelti á vinnu-
stað. Hún fékk aldrei að vita nánari
málsatvik í þessu meinta eineltis-
máli og sjálf kannast hún ekki við
neitt slíkt.
Einu efnislegu ásakanirnar sem
gætu varðað þetta hljóma mjög sér-
kennilega, ef satt er. Þannig segist
Braga hafa verið sökuð um að hafa
deilt frétt á Facebook sem ein af
hennar samstarfskonum sá ekki en
aðrir sáu. Þá var það talið henni til
vansa að eiginmaður hennar væri
ekki Facebook-vinur sömu sam-
starfskonu Brögu. Braga segir að
forstöðumaðurinn hafi bent henni á
að vinnan snerist um meira en verk-
efnin ein og hún væri ekki að standa
sig í þessum félagslegu þáttum.
Starfsmaður frá póstinum kom
heim til hennar með kassa með öll-
um hennar persónulegu eigum af
vinnustaðnum og lokað var fyrir
allan aðgang hennar að vinnu-
staðnum, þar með talið að tölvu-
pósti, að sögn Brögu. Þetta gerðist
á meðan hún var enn starfsmaður
stofnunarinnar.
Ferill málsins teygði sig út maí-
mánuð 2018. Fulltrúi verkalýðs-
félagsins fundaði með forstjóra og
forstöðumanni Innheimtustofnun-
ar og voru skilaboðin þau að ef hún
skrifaði ekki undir starfslokasamn-
ing undir eins yrði hún kærð fyrir
meiðyrði, einelti og trúnaðarbrot.
Brögu þóttu þær ávirðingar ekki
vera svaraverðar enda væru þær
ekki tilgreindar efnislega með nein-
um hætti.
Þann 22. maí fékk Braga bréf um
brottrekstur úr starfi. Starfsmanna-
félag Reykjavíkur mótmælti brott-
vikningunni með fimm síðna and-
mælabréfi þar sem tíunduð voru
ýmis meint brot gegn Brögu í starfi.
Síðan skrifaði forstöðumaðurinn
tvö bréf sem Braga var beðin um að
skoða. Annað var samkomulag sem
henni var boðið að skrifa undir og
hitt var meðmælabréf, undirritað af
forstöðumanni. Í samkomulaginu
stendur meðal annars:
„Starfsfólki verður tjáð að Braga
Ósk hafi óskað eftir starfslokum sjálf
til að prófa nýjan starfsvettvang eða
mögulega fara í nám. Forstöðumað-
ur mun tryggja að starfsfólk á Ísa-
firði tjái sig á þann hátt.“
Í meðmælabréfinu sem for-
stöðumaðurinn undirritaði stendur
meðal annars:
„Sinnti hún störfum sínum af
samviskusemi og vandvirkni. Sam-
skipti hennar við samstarfsfólk voru
með ágætum. Gef ég henni mín
bestu meðmæli.
Braga Ósk er jafnframt góð-
ur félagi og vinur samstarfsmanna
sinna sem hefur jákvæð áhrif á
starfsandann á vinnustaðnum.“
„Þessi fallegu orð stinga nokkuð í
augu þegar haft er í huga að ég hafði
verið sökuð um einelti á vinnu-
staðnum og allt starfsfólkið var búið
að loka á rafræn samskipti við mig,“
segir Braga.
Braga ákvað að fallast á
samkomulag um starfslok í júní og
telur sig ekki hafa haft um annað
að velja. Hún er hins vegar engan
veginn sátt við meðferðina sem
hún telur sig hafa fengið: „Starfs-
ferillinn minn var tekinn og settur
í tætarann,“ segir hún. Hún hefur
núna komið sér fyrir með fjölskyldu
sinni á Selfossi og er að byggja þar
upp nýtt líf. Hún segist hafa sagt
sögu sína hér, ekki til þess að opin-
bera persónulegan harm heldur til
að afhjúpa það sem hún telur vera
óásættanlega meðferð á opinberri
stofnun og ólöglega starfshætti.
Innheimtustofnun hafnar
ásökunum
DV hafði samband við Innheimtu-
stofnun og bað stjórnendur um að
bregðast við eftirfarandi ásökun-
um:
1. Grunsamlega mikil starfs-
mannavelta á stuttum tíma.
Starfsmenn sem falla í ónáð
hjá forstöðumanni kallaðir
fyrir og þeim boðið að velja
á milli brottrekstrar eða að
segja upp að eigin ósk.
2. Afskipti af einkalífi starfs-
manna, þ.e. sett út á hver sé
Facebook-vinur hvers og að
efni sé ekki deilt með öllum
á samfélagsmiðlum.
3. Farið inn í tölvupóst
starfsmanns.
4. Starfsmaður sakaður um
brot í starfi og einelti án þess
að málsatvik séu nokkurn
tíma útlistuð.
Í svari stofnunarinnar segir
að stofnunin tjái sig ekki um má
einstakra starfsmanna en ásök-
ununum er engu að síður hafnað
með öllu. Orðrétt segir í svari for-
stöðumanns:
„Hins vegar getur stofnun-
in um leið svarað því til, að lýs-
ingar þær sem þú vísar til í spurn-
ingum þínum eiga sér enga stoð í
raunveruleikanum. Einnig er rétt
að upplýsa þig um, hvað starfs-
mannaveltu varðar, að á um níu
ára tímabili, frá 2010 er núverandi
forstöðumaður á Ísafirði hóf störf
hjá stofnuninni, hafa alls 4 starfs-
menn látið af störfum á umræddri
starfsstöð, einn 2013, annar 2014,
þriðji 2015 og svo síðasti 2018.
Alls starfa 8 manns á starfsstöð
stofnunarinnar á Ísafirði í fullum
störfum, auk afleysinga- og sum-
arstarfsfólks. Deilumáli sem upp
kom í tengslum við starfslok eins
starfsmanns var lokið með sátt síð-
astliðið sumar. Um það mál fjallar
stofnunin ekki frekar nema þá fyrir
dómstólum, komi til þess.“ n
3 SKREF
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
• Skráningartöflur
• Eignaskiptayfirlýsingar
• Eftirfylgni
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
ÞARABAKKA 3
S. 578 6800
„Forstöðumaður mun
tryggja að starfsfólk á
Ísafirði tjái sig á þann hátt
MYND: HANNA/DV
Alltaf sama mynstur
Starfsmennirnir fundu
á sér ef eitthvað var í
vændum.