Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Page 12
12 12. apríl 2019FRÉTTIR
Þ
að er gríðarleg óánægja
meðal starfsfólks niðri í
gistiskýli og mikil starfs-
mannavelta hefur verið
undanfarna mánuði. Aðalástæðan
er sú að þarna eru rekin sjö neyslu-
rými fyrir sprautufíkla og dreifast
þau á allar þrjár hæðir hússins.
Þetta skapar gríðarlega hættu fyrir
bæði okkur starfsfólkið og líka
skjólstæðingana sem búa í húsinu.
Margir þeirra eru bara venjulegir
karlar sem eru tímabundið heim-
ilislausir, til dæmis vegna skyndi-
legra sambúðarslita og svo fram-
vegis. Þessir menn eru margir ekki
í neyslu,“ segir Tómas Jakob Sig-
urðsson, starfsmaður gistiskýlis-
ins við Lindargötu.
Tómas og margir samstarfs-
félagar hans eru mjög ósáttir við
hvernig rekstur gistiskýlisins hefur
þróast á undanförnum árum, eftir
að tekin var upp svokölluð skaða-
minnkunarstefna. Forstöðumað-
ur gistiskýlisins, Þór Gíslason, er á
meðal stofnenda Frú Ragnheiðar
sem gengst fyrir skaðaminnkandi
aðgerðum í málum sprautufíkla.
„Stærstur hluti þeirra sem
sækja í gistiskýlin er alkóhólist-
ar. Síðan breyttist þetta fyrir tæp-
lega tveimur árum þegar tekin var
upp þessi skaðaminnkunarstefna.
Þá var opnað fyrir það að menn
gætu sprautað sig inni á salernum.
Það eru settir þarna gulir dallar
fyrir notaðan búnað og boðið upp
á hreinar sprautunálar. Það hefur
verið reynt að hafa einhverjar regl-
ur um þetta, til dæmis að menn
séu skráðir inn í hús. En þetta fer
meira og minna úr böndunum, því
það er miklu meiri aðsókn í þetta
en húsið leyfir. Núna er það ekki
bara þessi stóri hópur fólks sem
er á götunni, heldur bætast við
sprautufíklar, og meðal þeirra eru
menn sem aldrei áður hafa nýtt
sér gistiskýlið sem slíkt, en nýta sér
aðstöðuna til að geta sprautað sig,“
segir Tómas.
Ekki viðurkennt að neyslurými
sé á staðnum
Tómas segir að starfsmenn hafi
tekist á um þetta mál við for-
stöðumannsins á sérstöku spjall-
svæði. Þar neiti hann því að um
neyslurými sé að ræða. Stefn-
an sé sú að líta fram hjá neyslu.
Orðrétt skrifaði forstöðumaður-
inn meðal annars í þessum um-
ræðum: „Og hér er þar sem ég
stíg fast niður fæti, jafnt gagnvart
ykkur sem öðrum sem tala gegn
skaðaminnkun. Það er unnið sam-
kvæmt skaðaminnkandi aðferða-
fræði í gistiskýlinu og það er ekki
ykkar að ákveða annað.“
Baldur Bergþórsson, vara-
borgarfulltrúi Miðflokksins, hefur
kynnt sér starfsemi gistiskýlis-
ins og blöskrar ástandið. Hann og
Tómas eru sammála um að ekki
sé með nokkrum hætti hægt að
andmæla því að í húsinu séu rek-
in neyslurými fyrir sprautufíkla.
„Þetta er bara súrrealískt,“ segir
Baldur um þá afstöðu að afneita
því að neyslurými sé í gistiskýlinu.
Hann bendir á að í nýju laga-
frumvarpi sem Svandís Svavars-
dóttir heilbrigðisráðherra hefur
lagt fram og miðar að tilslökun á
reglum um skaðaminnkandi að-
gerðir, sé gert ráð fyrir að upp-
fyllt séu mjög ströng skilyrði til að
mega reka slík rými. Segir meðal
annars í frumvarpinu:
„Neyslurými er lagalega vernd-
að umhverfi þar sem einstaklingar
sem eru 18 ára og eldri geta neytt
ávana- og fíkniefna í æð undir eft-
irliti heilbrigðisstarfsmanna og
þar sem gætt er fyllsta hreinlætis,
öryggis og sýkingavarna.“
Baldur bendir á að engin af
þessum skilyrðum séu uppfyllt
í gistiskýlinu, en þar séu rekin
neyslurými, hvort sem forstöðu-
maðurinn viðurkennir það eða
ekki, við óviðunandi og stórhættu-
legar aðstæður.
„Þetta er á þremur hæðum og
allt út í ranghölum. Þarna eru að-
eins tveir starfsmenn á vakt hverju
sinni á nóttunni og stundum allt
að 30 manns í húsinu,“ segir Bald-
ur sem heimsótti gistiskýlið á
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
Sérsmíðum eftir
óskum hvers og eins
Gylfaflöt 6-8 / S. 587 6688 / fanntofell.is
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is
„Tifandi tímasprengja!“
Gistiskýlið við Lindargötu:
n Sprautufíklar hafa nánast yfirtekið gistiskýlið n Starfsmenn ósáttir við
fyrirkomulagið n Engin neyslurými í gistiskýlinu, að sögn forstöðumanns
Gistiskýlið við Lindargötu
Að sögn hefur ástandið hefur farið hríðversnandi
undanfarin tvö ár.
Framhald á síðu 14
MYND: HANNA/DV