Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Side 20
20 UMRÆÐA 12. apríl 2019
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Einar Þór Sigurðsson
Fréttastjóri: Kristinn Haukur Guðnason Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Hver er þín saga?
A
llar sögur skipta máli. Þín
saga er öðruvísi en mín
saga og saga foreldra okkar,
systkina og vina eru allar
mismunandi. Þær móta okkur
sem einstaklinga og gera að verk-
um að við högum okkur eins og við
gerum. Hvert og eitt okkar fæðist
sem óskrifuð ritgerð sem þó hefur
nokkrar fyrirfram ákveðnar heim-
ildir. Heimildirnar sem þegar eru til
staðar allt frá getnaði eru gen okkar
og þeir meðfæddu eiginleikar sem
erfast. Ritgerðin skrifar sig svo sjálf,
allar götur frá degi eitt.
Sumir fæðast beint inn í mikil
forréttindi, eiga efnaða foreldra,
ganga í góðan skóla og geta próf-
að allar þær tómstundir sem þeim
hugnast. Aðrir fæðast kannski inn í
mikla fátækt, ganga í notuðum föt-
um og fá aldrei að prófa tómstund-
ir. Allt þetta getur haft áhrif á okk-
ur sem einstaklinga en ekkert er
þó gefið. Það er aldrei hægt að sjá
fyrir hvað framtíðin ber í skauti sér.
Það geta allir lent í klóm fíkniefna-
djöfulsins, orðið fyrir einelti, mis-
notkun, slysi, læst í klóm ofbeld-
issambands og misst barn, ásamt
mörgum öðrum áföllum sem lita
líf okkar. Þá er einnig hægt að vinna
fyrsta vinning í happdrætti, sigr-
ast á erfiðum veikindum og landa
draumastarfinu.
Allar þessar breytur hafa áhrif
á okkur, við bregðumst mismun-
andi við því sem kemur fyrir okk-
ur og persónuleiki okkar með því.
Við söfnum í bakpokann og höld-
um áfram. Allar sögur skipta máli.
Oft hafa blaðamenn fundið fyrir
neikvæðri gagnrýni gagnvart starfi
sínu. Við erum sögð afbaka sann-
leikann, gera úlfalda úr mýflugu,
skrifa fréttir sem engu máli skipta
og skipta okkur af því sem eng-
um kemur við. En við erum ekki
að sinna starfi okkar til þess að ná
okkur niðri á þér. Við erum ekki að
reyna að eyðileggja fyrir fólki. Láta
það líta illa út okkur í hag. Við erum
ekki að ljúga og svindla en svo
sannarlega kemur fyrir að við segj-
um frá slíkum hlutum. Við erum
að segja sögur. Við erum einstak-
lingar með okkar eigin sögur sem
stöndum vaktina fyrir fólkið sem
vill segja sínar sögur. Deila sinni
reynslu. Sumar sögur eru sagðar
til þess að upplýsa almenning um
hagsmuni þeirra. Sumar sögur eru
sagðar einungis til dægrastyttingar
og aðrar sögur eru sagðar til hvatn-
ingar. Af því að allar sögur skipta
máli. Þín saga og mín saga. n
Leiðari
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is
Í vikunni barst DV ábending um
myndband sem gekk eins og
eldur í sinu um samfélagsmiðla.
Í myndbandinu, sem tekið er við
Borgarholtsskóla í Grafarvogi, má
sjá karlmann gefa annarri mann-
eskju kjaftshögg og er talið
að sú sem varð fyrir högginu
sé kona. Við höggið féll
manneskjan í jörðina og
hefur myndbandið vakið
mikinn óhug lesenda. DV er á
móti ofbeldi í allri sinni mynd og
því fær karlmaðurinn á mynd-
bandinu, ásamt öllum öðrum sem
telja ofbeldi í lagi, lastið.
LOF & LAST
– Öll dýrin í skóginum eiga að
vera vinir
Lofið þessa vikuna fær hann
„stjörnu“ Sævar Helgi Bragason
sem leitt hefur áhorfendur
þáttarins Hvað höfum við
gert? í allan sannleikann
um loftslagsbreytingar.
Þættirnir sem framleiddir
eru af Saga Film fyrir RÚV
hafa útskýrt á mannamáli hvaða
áhrif loftslagsbreytingarnar hafa
haft á lífríki og samfélög og af-
leiðingar þeirra. Sævar segir ungt
fólk ekki nægilega meðvitað um
loftslagsmál og að ef ekki takist
að stöðva þá neysluhyggju sem á
sér stað þá sé framtíðin ekki björt.
Í þáttunum er einnig rætt hvaða
lausnir eru til staðar og hvað hver
og einn geti gert. DV er fylgjandi
umhverfishyggju og við erum
ánægð með framtak Sævars.
Spurning vikunnar Geta tölvuleikir verið íþróttir?
„Nei, ég held ekki.“
Ingibjörg Hjartardóttir
„Já.“
Logi Stefánsson
„Nei, tæpast.“
Boga Kristín Thorlacius
„Já, að
sjálfsögðu.“
Freygarður Þorsteinsson
Við Laugaveginn Hver veit nema konurnar hafi fundið eitthvað við sitt hæfi, og ókeypis í þokkabót.
„Við erum
ekki að reyna
að eyðileggja fyrir
fólki