Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 22
Páskafjör 12. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ
Sundlaug Patreksfjarðar er líklega ein best staðsetta sundlaug á landinu og þó
víðar væri leitað, en hún er byggð
í hlíðina rétt við bæjarstæði
Patreksfjarðar. Útsýnið frá lauginni
og yfir fjörðinn er hreint út sagt
stórkostlegt og sömuleiðis yfir
bæinn. „Laugin er girt með gleri
svo manni líður næstum eins og
laugin sé samtvinnuð hafinu fyrir
neðan. Þú horfir bara beint út á
fjörðinn,“ segir Geir Gestsson.
Líf í firðinum
„Það er ekki óalgengt að sjá hvali
synda hérna inn fjörðinn rétt í
um 100–200 metra fjarlægð. Um
daginn voru fjórir háhyrningar
að leika sér í höfninni. Þetta
vekur alltaf kátínu meðal gesta
okkar, sérstaklega á meðal
ferðamannanna.
Það er alveg geggjað að mæta
til vinnu eldsnemma á morgnana
að sumarlagi; sólin er að skríða
upp fyrir fjallstoppana og lýsir upp
fjörðinn gullfallegri bleikri birtu.
Þetta er útsýnið sem blasir við þar
sem þú marar við laugarbrúnina
og horfir yfir fjörðinn. Það er líka
eiginlega alveg ómögulegt fyrir
starfsfólkið að vera í vondu skapi
hérna með svona fyrir augum
daglega.“
Notaleg útisundlaug
Þar sem laugin á Patreksfirði er
hugsuð sem skólasundlaug þá er
hitastigið á henni örlítið hærra
en í flestum öðrum laugum. „Við
erum með hana aðeins hlýrri fyrir
krakkana, en það gerir það líka að
verkum að það er hægt að vera
í lauginni þó svo maður sé ekki á
hörkusundi.“
Afslappað í sveitinni
Sundlaug Patreksfjarðar státar
einnig af eimbaði, tveimur stórum
setupottum sem og vaðlaug. „Á
góðviðrisdögum draga sumir
sólbekkina út í vaðlaugina til
að veiða nokkrar freknur á
kroppinn. Andinn í sveitinni er svo
afslappaður að fólk kemst upp með
ýmislegt.“
Það er augljóst að það er alveg
gráupplagt að skella sér í sund
yfir páskana. „Við tökum vel á móti
öllum hér á Patreksfirði og ég
mæli með að fólk leggi smá lykkju
á leið sína á leiðinni á Aldrei fór
ég suður til þess að upplifa þessa
stórkostlegu sundlaug,“ segir Geir.
Komdu í sund!
Aðalstræti 55, 450
Patreksfjörður.
Sími: 450-2350 / 456-1301
Netpóstur: brattahlid@
vesturbyggd.is
Opnunartími: Mán–fim:
08.00–09.00/16.00–21.00,
fös: 08.00–09.00/16.00–19.30
og lau og sun: 11.00–15.00. n
SUNDLAUG PATREKSFJARÐAR:
Stórkostlegt útsýni
yfir fjörðinn og bæinn