Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 23
Páskafjör 12. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ
Skíðað í dölunum
tveim um páskana
SKÍÐASVÆÐI ÍSAFJARÐARBÆJAR:
Ísafjörður hefur heillað marga með einstakri náttúrufegurð og skemmtilegu andrúmslofti. Þar
er að finna fyrsta flokks skíðasvæði
í fallegum dölum á milli hárra og
brattra fjalla. „Skíðasvæðið okkar er
í raun tvö skíðasvæði, Tungudalur
og svo Seljalandsdalur,“ segir
Hlynur Kristinsson, forstöðumaður
skíðasvæðis Ísafjarðarbæjar. Á
svæðinu er hægt að leigja allan
búnað til skíðaiðkunar svo sem
skíði, bretti og gönguskíði fyrir jafnt
fullorðna sem börn.
Lyfturnar, svigskíðin og brettin
„Annars vegar er það skíðasvæðið
í Tungudal, sem er Alpahlutinn af
svæðinu. Þar er stór skíðaskáli
með veitingum og skíðaleigu. Svo
eru þrjár skíðalyftur sem flytja
skíða- og snjóbrettaiðkendur
upp í brekkurnar. Við erum með
tíu brekkur sem henta iðkendum
af öllum getustigum, allt frá
byrjendum upp í þá sem vilja
komast í alvöru keppnisbrautir,“
segir Hlynur.
Gönguskíði
Hins vegar er það
skíðagöngusvæðið í
Seljalandsdal.
Þar er að finna
eitt flottasta
skíðagöngusvæði landsins og
lengstu göngubrautir á Íslandi.
Stærsti skíðagönguviðburður
landsins, Fossavatnsgangan, er þar
haldinn ár hvert. Í ár verður gangan
haldin 2.–5. maí.
„Brautin er 50 kílómetra löng,
langlengsta gönguskíðabraut á
landinu, og við erum að vinna í
að troða hana núna. Þá erum við
með fjölda annarra brauta, allt frá
einum kílómetra og upp í 50, en
alla daga er troðið að lámarki 5
kílómetra og lengra á helgum eða
10–15 kílómetrar.“
Gönguskíðasportið verður
sífellt vinsælla enda er það
afar skemmtileg íþrótt. „Við
bjóðum upp á stórskemmtilegar
æfingabúðir fyrir gönguskíðafólk
og við höfum tekið á móti um
60 manna hópum, átta helgar í
röð. Í vetur erum við þá búin að
taka á móti um 500 gestum í
gönguskíðaæfingabúðir.“ Á svæðinu
er lítill skáli með sjoppu þar sem
hægt er að kaupa veitingar.
Skíðavika á páskum
Skíðavika á páskum er viðburður
sem haldinn hefur verinn á
Ísafirði í 84 ár. „Þó svo það megi
næstum bóka að hér viðri alltaf
vel fyrir skíði á páskum, þá gerðist
það nokkur ár í röð að páskarnir
voru heldur snjólitlir. Það var þá
sem hin landsfræga tónlistarhátíð
Aldrei fór ég suður var haldin
fyrst og hefur verið haldin síðan.
Ár hvert leggur fjöldi fólks leið
sína á Ísafjörð um páskana til
þess að viðra skíðin sín niður
brakandi brekkur og alla leið
niður í Ísafjarðarbæ þar sem
landsþekktir tónlistarmenn
slíta úr hljóðfærum sínum við
fögnuð áhorfenda.“
Nánari upplýsingar má
nálgast á dalirnir.is
Sími: 450-8400
Vefpóstur: ski@
isafjordur.is
Facebook: Skíðasvæði
Ísafjarðarbæjar
Instagram:
Skíðasvæði
Ísafjarðarbæjar n