Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Side 25
Páskafjör 12. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ
BOLUNGARVÍK:
Sundlaugin á Bolungarvík, Musteri vatns og vellíðunar, er notaleg innisundlaug.
Á útisvæðinu má finna tvo heita
potta, annar er 39°C heitur
nuddpottur og hinn er 41°C. Einnig
er vatnsrennibraut sem býður upp
á fyrirtaks salíbunur, kaldur pottur
fyrir hörkupésana og rúmgóð
vaðlaug með bunusvepp. Í tengslum
við sundlaugina er afar notaleg
baðstofa með eimbaði og góðri
hvíldaraðstöðu.
Útsýnið er ekki amalegt.
Svo miklu meira en bara sundlaug
Í Musteri vatns og vellíðunar er alltaf
nóg um að vera. Yfir páskana verður
í boði fjöldinn allur af skemmtilegum
viðburðum, bæði við laugarbakkann
og í íþróttahúsinu.
„Núna stendur yfir stórskemmtileg
handverks-, ljósmynda- og
málverkasýning frá Bolvíkingum og
mun hún standa yfir alla páskana og
lengur,“ segir Magnús Már Jakobsson
hjá Musterinu.
„Einnig verðum við með leiki í boði
í íþróttahúsinu fyrir börn og foreldra
á opnunartíma sundlaugarinnar, allt
frá skírdegi (fimmtudegi) til annars
í páskum (mánudags). Þetta verður
alveg stórskemmtilegt og kostar 700
krónur fyrir fjölskylduna hvern dag.“
Aldrei fór ég norður
„Einnig verða fleiri skemmtilegir
viðburðir í gangi og á föstudaginn
langa verða tónleikar á
sundlaugarbakkanum frá kl. 16–18.
Heimafólk skemmtir þá þeim sem fóru
suður á Ísafjörð en snúa svo aftur í
víkina,“ segir Magnús.
Opið er frá 10–18 alla páskana.
Það eru allir velkomnir í Sundlaug
Bolungarvíkur um páskahelgina!
Notalegir legubekkir fyrir hvíld og
flottir sturtuklefar.
Höfðastígur 1, 415 Bolungarvík
Sími: 456-7381
Netpóstur: sundlaug@
bolungarvik.is n
Skírdagur Leikir í íþróttahúsinu 10–18 Listasýning
Föstudagurinn
langi
Leikir í íþróttahúsinu 10–18 Listasýning Tónleikar á
sundlaugarbakkanum
16–18
Laugardagur Leikir í íþróttahúsinu 10–18 Listasýning
Páskadagur Leikir í íþróttahúsinu 10–18 Listasýning
Annar í páskum Leikir í íþróttahúsinu 10–18 Listasýning
Verið velkomin
í Musteri vatns og vellíðunar
DAGSKRÁ YFIR PÁSKANA