Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Page 33
12. apríl 2019 FRÉTTIR 33
inn á heimilið til dæmis undan
brauði, kartöflum, fatnaði eða
leikföngum.
Íslendingar sóa um þriðjungi af
mat
Matarsóun á Íslandi er gríðarleg
og er talið að við sóum um þriðj
ungi. Þegar við drögum úr matar
sóun lágmörkum við neikvæð
áhrif á umhverfið og gott er að til
einka sér ýmis húsráð eins og að
skipuleggja innkaup, nýta frystinn
og borða afganga. Það sem er gott
að gera við þá matarafganga sem
við ekki notum er að molta þá eða
gefa smáfuglum.
Skaðleg innihaldsefni snyrti-
vara. Hvað getum við gert?
Í fyrsta lagi er gott að draga úr
notkun snyrtivara eins mikið og
þú getur. Þá er gott fyrir þig að
velja vörur sem eru umhverfisvott
aðar með til dæmis Svaninum eða
Evrópublóminu. Með þeim þarft
þú ekki að hafa áhyggjur af því að
vörurnar innihaldi rotvarnarefni,
ofnæmisvaka, efni sem geta ver
ið hormónaraskandi eða séu ekki
ákjósanleg í náttúrunni.
Sniðugt er að kaupa sápur í
stærri umbúðum og fylla frekar
á minni umbúðir sem þú átt til á
heimilinu. Þá eru handa og hár
sápur einnig fáanlegar í stykkjum
en ekki fljótandi efni og eru þær
umhverfisvænni.
Búðu til þitt eigið krem og farða.
Kókosolíu má til að mynda vel
nota sem farðahreinsi og einnig til
þess að viðhalda raka húðarinnar.
Hreingerning með hreinsiefnum
skilur alltaf eftir efnaleifar í
umhverfinu
Mörg þvotta og hreinsiefni geta
verið ertandi og jafnvel ætandi.
Þegar við notum hreinsiefni
verða ávallt efnaleifar í umhverf
inu og eru ung börn sérstaklega
berskjölduð fyrir þeim þegar þau
skríða um gólfin.
Til að byrja með er gott að
minnka þá skammta sem þú not
ar til þess að þrífa. Til að mynda
hefur verið sýnt fram á það að Ís
lendingar eigi það til að nota allt
of stóra þvottaefnaskammta í
þvottavélarnar en vatnið á Íslandi
er steinefnasnautt og þess vegna
þurfum við minna þvottaefni en
önnur lönd.
Með einfaldri leit á veraldar
vefnum má finna margar góðar
uppskriftir að náttúrulegum
hreinsiefnum úr einföldum hrá
efnum eins og matarsóda, sítrónu,
ediki og öðru. Þá er einnig gott að
draga úr umbúðakaupum með því
að kaupa stórar umbúðir og fylla
á minni. Vörur sem vottaðar eru
með Svaninum eða Evrópublóm
inu innihalda lágmarksmagn af
efnum.
Veldu húsgögnin þín vel. Mörg
þeirra innihalda eiturefni
Við eigum það til að fá nóg af
þeim húsgögnum sem við eigum
og þegar stórar verslunarkeðjur
bjóða upp á gott verð og einföld
kaup þá eigum við það til að bíta
á agnið.
Þarft þú á þessu húsgagni að
halda? Ef svo er hafðu þá í huga
hver ending þess er, gæði, vottun
og annað. Nýttu húsgögnin þín
vel, ekki skipta um „af því bara.“
Stöðugt fleiri framleiðendur vinna
í því að draga úr umhverfisáhrif
um framleiðslu sinnar og því er
ekki erfitt að fá svar við því hvort
húsgögnin séu umhverfisvottuð.
Þegar keypt er nýtt innihúsgagn
er gott að láta lofta vel um það í
nokkra daga en það getur gefið frá
sér skaðleg efni til að byrja með.
Forðastu að kaupa húsgögn með
gervileðri og lengdu líftíma hús
gagna með því að gefa þau áfram
eða selja.
Nýjasta tíska?
Þegar kemur að fatanotkun er
nokkuð algengt að í skápnum
okkar leynist föt sem við notum
sjaldan eða aldrei. Þau er gott að
gefa áfram til fatasöfnunar Rauða
krossins til dæmis. Ekki kaupa þér
óþarfa flíkur og reyndu að vanda
valið vel þegar kemur að kaup
unum. Hröð tíska og ódýr föt sem
koma frá stórum verslunum eru
ekki góð kaup. Vörurnar eru yfir
leitt ekki í góðum gæðum, koma
frá slæmum framleiðendum og
eru hönnuð til þess að endast
stutt.
Þarft þú í raun og veru að
eiga tíu peysur, fimmtán kjóla og
tuttugu skópör? Reyndu að kaupa
þér endingargóð föt hjá fyrirtækj
um sem passa vel upp á umhverf
ið.
Allt of flókið að flokka?
Í dag eru margar vörur orðnar
flókar til endurvinnslu. Því tækni
væddari sem þær eru því fleiri hrá
efni þarf til þess að framleiða þær
og allt það sem við setjum óflokk
að í rusl endar á einn eða annan
hátt úti í náttúrunni. Flokkun og
endurvinnsla er því lykilatriði til
þess að forðast mengun.
Þær vörur sem ekki er hægt
að endurvinna eru meðal annars
tyggigúmmí, svampar og einnota
bleyjur. Langflestar aðrar vör
ur sem við notum dagsdaglega
er hægt að endurvinna. Timbur,
plast, gler, málmar og pappír
missa ekki eiginleika sína og hægt
er að endurvinna þær margoft.
Spilliefni eins og rafhlöður, olíu
málning, terpentína, tjöruleysir,
lyf og fleira er bannað að urða og
brenna. Þeim ber að skila inn til
endurvinnslustöðva.
Það er í raun ekki nein ein
leið best til þess að byrja
að flokka en hver og
ein fjölskylda getur
sett upp að
stöðu sem
hentar henni best. Gott er að
flækja hlutina ekki fyrir sér og yf
irleitt þurfa ekki miklar breytingar
að eiga sér stað. Flokkið plast,
pappír og annan úrgang hvert í sitt
ílátið. Bara með þeim breytingum
sjáum við strax mikinn mun og
leggjum okkar af mörkum.
Bæði einnota pappírsbleyjur
sem og margnota taubleyjur hafa
í för með sér neikvæð umhverfis
áhrif. Þó eru áhrif margnota tau
bleyja töluvert minni og séu þær
þvegnar á rétt
an hátt
minnka
um
hverfisáhrif þeirra töluvert. Því
getur verið góður kostur að nota
taubleyjur frekar en pappírs
bleyjur fyrir börnin okkar. Veldu
blautþurrkur sem innihalda ekki
paraben eða ilmefni en þau efni
geta valdið hormónaraskandi
áhrifum og ofnæmi. Sneiddu hjá
snuðum, pelum og naghringjum
sem innihalda þalöt.
Í dag er talið að hver Íslending
ur noti á milli 100–200 plastpoka á
ári, sem er rosalegt magn. Hand
töskur, margnota innkaupapokar
eða að nota sama plastpokann
aftur og aftur er góð lausn til þess
að minnka þessa notkun. Teljir þú
þig eiga mikið af pokum sem ekki
eru í notkun, gefðu þá ættingjum
eða vinum þá sem ekki eru byrjað
ir að draga úr einnota notkun.
Allt sem við getum gert til þess
að hjálpa til skiptir máli.
Fyrir mig, fyrir þig og
fyrir komandi kyn
slóðir. Ætlar þú að
gróðursetja tré
fyrir aðra til að
njóta? n
GERlf> GJEf>A- OG VERf>SAMANBURf>
Nattsloppar og saengurfot
MikiO urval - Flottar fermingargjafir
� .... �--...... - -
' �.: ' . ., J • .;-
Baldursnesi 6 - Akureyri
Listhusinu Laugardal- Simi 581 2233
Baldursnesi 6, Akureyri - Simi 461 1150
OpiO virka daga kl. 10:00 - 18:00
Laugardaga 12:00 - 16:00
Umboclsallilar: I Husgagnaval - Hiifn f Hornafirlli I Bara snilld ehf. - Egilsstoclum Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / B ra s illd ehf. - Egi sstöðum
GJÖF
FYLGIR
FERMINGAR-
RÚMUM
VIÐ ERUM ÖLL EIGINGJÖRN - ÉG, ÞÚ OG ALLIR HINIR!
„Hverju breytir það svo
sem ef ég flokka?
Náttúran Allt
það sem við
setjum óflokk-
að í rusl endar
á einn eða
annan hátt úti í
náttúrunni.
Flokkun Hver fjölskylda get-
ur komið upp sinni aðstöðu.