Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Side 41
12. apríl 2019 41SAKAMÁL
og ég seildist í byssuna sem hann
geymdi í náttborðsskúffunni. Ég
beindi byssunni að höfðinu á hon-
um og skaut fyrsta skotinu. Byssan
var sennilega fimmtán sentimetra
frá andliti hans.“
Ekki ástríðuglæpur
Cecile bætti við að hún hefði ver-
ið átakanlega ástfangin af mann-
inum og væri það enn. Kviðdóm-
ur taldi að ekki hefði verið um
ástríðuglæp að ræða heldur hefði
ágirnd og hatur legið að baki
morðinu.
Cecile viðurkenndi að hafa
hreinsað til eftir morðið, hent
byss unni í Genfarvatn og síðan
lagt á flótta til Ítalíu og þaðan til
Austurríkis.
Þann 18. júní, 2009, var Cecile
sakfelld fyrir morð og dæmd til
átta og hálfs árs fangelsisvistar.
Að auki skikkaði dómstóllinn í
Sviss Cecile til að greiða börnum
Edouards einn franka í samvisku-
bætur (e. moral damage).
Iðrun og söknuður
Cecile Brossard fékk reynslulausn
í nóvember árið 2010 eftir fimm
ára fangelsisvist, að meðtöldum
þeim fjórum sem liðu frá hand-
töku til sakfellingar.
Árið 2013 tjáði Cecile sig um
morðið í fyrsta skipti síðan rétt-
að var yfir henni. Hún sagði með-
al annars að hún „myndi ævin-
lega iðrast“ gjörða sinna og að
hún saknaði ástmanns síns sem
hefði verið „indæl og geislandi
persóna.“ n
Auðbrekku 27, Kópavogi
www.bilasprautun.is
Af sex fórnarlömbum Josephs árið 1987 voru borin kennsl á þrjú. Um karlmenn
var að ræða og þrír eru enn óþekktir, enda um flækinga að ræða í öllum tilvikum.
Síðasta flækinginn myrti Joseph síðdegis þann 20. janúar 1987. Því miður fyrir
Joseph þá voru til staðar vitni og þau ákváðu að láta ekki kyrrt liggja. Þau eltu
Joseph drjúgan spöl og tókst að lokum að vekja athygli lögreglunnar. Lög-
reglunni tókst um síðir að króa Joseph af og sá hann þann kost vænstan að
gefast upp og kastaði frá sér hnífnum.
Joseph var dæmdur til 156 ára fangelsisvistar árið 1988. Í fangelsinu myrti hann
klefafélaga sinn með því að kyrkja hann með laki. Það morð var kornið sem fyllti
mælinn og árið 1993 var Joseph Martin Danks dæmdur til dauða.
MYRTUR Í LATEXKLÆÐUM Í MIÐJUM KLÍÐUM
n Edouard Stern var vellauðugur bankamaður n Cecile Brossard afgreiddi í verslun n Tóku upp samband eftir að þau kynntust n Edouard særði Cecile
Cecile Brossard Vann í verslun
þegar hún hitti Edouard.
Iðrun og söknuður
Cecile sagðist síðar
sakna ástmanns síns
og iðrast gjörða sinna.