Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Blaðsíða 42
42 FÓKUS 12. apríl 2019
Sundaborg 3 - 104 Reykjavík - 777 2700 - xprent@xprent.is
SKILTAGERÐ
BÍLAMERKINGAR
BANNER-UP
SÓLARFILMUR
Ráðgjöf
Hönnun
Framleiðsla
Uppsetning
ÞAU HAFA UNNIÐ SÖNGKEPPNI FRAMHALDSSKÓLANNA
S
öngkeppni framhaldsskól-
anna verður haldin laugar-
daginn 13. apríl í Bíóhöll-
inni á Akranesi. Hún verður
sýnd í beinni útsendingu á RÚV,
en 26 skólar senda keppendur til
leiks og má búast við skemmtilegri
og drengilegri keppni að vanda.
Samband íslenskra framhalds-
skólanema hefur veg og vanda að
keppninni, sem hefur verið haldin
árlega frá árinu 1990, að árinu 2017
undanskildu þegar keppnin féll
niður vegna áhugaleysis og skorts
á fjármagni. Menntaskólinn við
Hamrahlíð er sigursælastur hing-
að til en hann hefur unnið fimm
sinnum. Menntaskólinn í Reykja-
vík fylgir fast á eftir með fjóra sigra.
Fjórir skólar hafa sigrað þrisvar
sinnum hver; Flensborgarskólinn í
Hafnarfirði, Fjölbrautaskóli Norð-
urlands vestra, Menntaskólinn í
Kópavogi og Tækniskólinn.
„Með þátttöku í svona keppni
geta krakkar skapað sér ákveðin
tækifæri og svo er það bara þeirra
að nýta sér þau,“ sagði Páll Óskar
Hjálmtýsson í viðtali við Monitor
18. apríl 2013, en það ár var hann
dómari í keppninni, en sjálfur tók
hann þátt árið 1990 fyrir hönd
Menntaskólans við Hamrahlíð
og lenti í 3. sæti. „Mér finnst gott
hjá krökkum að taka þátt af því
að þetta er svo gott próf. Fyrir
mitt leyti fannst mér gott að
taka þátt þótt það væri ekki
nema bara til að nota keppn-
ina sem mælistiku og athuga hvort
það yrði klappað fyrir manni og
svo framvegis. Ég hef stundum
sagt að ef Idol-keppnin hefði verið
haldin þegar ég var yngri, þá hefði
ég tekið þátt. Það má því kannski
segja að Söngkeppnin hafi verið
mín Idol-keppni.“
Margir af þekktustu og vinsæl-
ustu söngvurum þjóðarinnar hafa
stigið sín fyrstu spor í keppninni
og hér má sjá yfirlit yfir nokkra af
ástsælustu söngvurum og leikur-
um þjóðarinnar sem tekið hafa
þátt í keppninni. Margir þeirra
stigu síðar á svið í
stærri söngvakeppn-
um, Söngkeppni
sjónvarpsins og
Eurovision.
Emilíana Torrini
(Menntaskólinn í Kópa-
vogi, 1. sæti). Hún
söng diskóslagarann I
Will Survive.
Selma Björns
(Verzlunarskólinn).
Hún flutti lag
Arethu Frank-
lin,Tregasöngur
(I Have Never
Loved A Man).
Keppnin þetta ár var svo sannarlega prýdd
verðandi stjörnum.
Regína Ósk Óskarsdóttir (Menntaskólinn
við Hamrahlíð, 2. sæti).
Jón Jósep Snæbjörnsson (Menntaskólinn á
Akureyri).
Magni Ásgeirsson (Menntaskólinn á Egils-
stöðum).
Hreimur Örn Heimisson (Fjölbrautaskóli
Suðurlands).
Birgitta Haukdal (Fram-
haldsskólinn á Laugum,
2. sæti) Birgitta söng lag-
ið Ég sakna þín, stuttu
áður en hún sló í gegn
með hljómsveitinni Íra-
fári.
Guðrún Árný Karlsdóttir (Flensborgar-
skólinn í Hafnarfirði, 1. sæti).
Móeiður Júníusdóttir (Mennta-
skólinn í Reykjavík, 2. sæti).
Páll Óskar Hjálmtýsson (Mennta-
skólinn við Hamrahlíð, 3. sæti).
ÁRIÐ 1990
Margrét Eir Hjartardóttir (Flens-
borgarskólinn í Hafnarfirði, 1. sæti).
Hera Björk Þórhallsdóttir (Fjöl-
brautaskólinn í Breiðholti, 2. sæti).
ÁRIÐ 1991
ÁRIÐ 1994 ÁRIÐ 1996
ÁRIÐ 1998
ÁRIÐ 1999
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is