Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2019, Side 47
KYNNING
Fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Útfararþjónusta Rúnars Geirmunds-sonar er elsta starf-
andi útfararþjónustan
á höfuðborgarsvæðinu.
Rúnar hefur alla tíð veitt
fyrirtækinu forstöðu sem
framkvæmdastjóri þess og
útfararstjóri. Útfararþjón-
ustan er í eigu Rúnars og
eiginkonu hans, Kristínar
Sigurðardóttur, og starfa
synir þeirra, Elís og Sigurð-
ur, þar ásamt föður sínum.
Orðsporið skiptir útfarar-
þjónustu miklu. „Ef maður
sinnir sínu starfi vel er það
fljótt að spyrjast út,“ segir
Rúnar sem hefur 35 ára
reynslu af útfararþjónustu.
„Fyrst og fremst þarf að
taka tillit til þess að fólk er
í sárum eftir ástvinamissi.
Við þurfum að gæta að því
sem við gerum og segjum
og eins að nálgast fólk með
hlýju og auðmýkt. Það getur
verið mjög erfitt að bjóða
fólki við þessar aðstæður
þjónustu gegn greiðslu en
þetta hefur lærst í gegnum
árin og við tökum mikið tillit
til þess hvernig aðstæður
eru hverju sinni,“ segir hann.
Formaður Félags íslenskra
útfararstjóra
Ásamt daglegum
störfum við hefðbundna
útfararþjónustu er
Rúnar Geirmundsson
formaður Félags íslenskra
útfararstjóra. Félagið
hefur verið starfrækt í yfir
áratug og hefur Rúnar
verið formaður þess allt
frá upphafi. Aðaltilgangur
félagsins er skapa vettvang
til að halda utan um
siðareglur útfararstjóra.
„Starf mitt sem formaður
felst aðallega í því að
halda utan um fundastarf
og framfylgja reglum og
samþykktum aðalfunda.
Ég sæki einnig fundi
erlendis enda á félagið
í talsverðum erlendum
samskiptum. Siðareglur
evrópskra útfararstjóra
eru til að mynda grunnur
íslensku siðareglnanna,“
segir Rúnar. Ekki er lagaleg
skylda að útfararstjóra séu
í félaginu en nánast allir
starfandi útfararstjórar
eru þó félagsmenn og
hafa undirritað siðareglur
félagsins.
Virðingin og alúð
Rúnar hefur unnið
við útfararþjónustu
frá því 1983, fyrst hjá
Kirkjugörðunum og síðan
í eigin fyrirtæki. Aðspurð-
ur segist hann hafa lært
það á löngum ferli að það
skipti ekki höfuðmáli hvaða
trú fólk aðhyllist eða hvort
það aðhyllist trú yfirleitt,
virðingin fyrir hinum látna
sé alltaf í forgrunni. „Og
það þurfum við alltaf að
hafa í huga, án þess að taka
afstöðu til trúmála. Hlýja,
auðmýkt og virðing er það
leiðarljós sem við fylgjum
alltaf.
Þegar andlát ber að
garði er mikilvægt að hafa
samband við útfararþjón-
ustu sem fyrst,“ segir Rúnar.
„Í fyrsta lagi þarf að flytja
hinn látna af dánarstað og
í líkhús og síðan að byrja að
undirbúa kistulagninguna.
Útfararstjórinn heimsæk-
ir yfirleitt aðstandendur
daginn eftir og þeir leggja
þá fram óskir sínar varðandi
framkvæmd kistulagningar
og síðan jarðarfarar. Í því
felst í flestum tilfellum að
velja prest eða athafnar-
stjóra og síðan að tímasetja
allar athafnir og bóka graf-
artöku eða bálför. Næsta
skref er svo að ákveða hvað
kemur í okkar hlut að sinna
en við sjáum um allt er lýtur
að undirbúningi og fram-
kvæmd útfara. Til að mynda
höldum við utan um öll
samskipti við aðstandendur,
tónlistarfólk, kirkjur, blóma-
búðir, kirkjugarða og alla þá
sem koma að útför.“
Íslensk hönnun og handverk
Útfararþjónusta Rúnars
Geirmundssonar leggur
mikið upp úr því að vera
með fallegar kistur á góðu
verði sem standast ströng-
ustu kröfur um umhverfis-
vernd. Algengastar eru
hinar hefðbundnu hvítu
kistur en alltaf er eitthvað
um að fólk vilji harðviðar
kistur, til dæmis eik eða
mahóní. Val á kistum getur
vafist fyrir aðstandendum
enda úrvalið nokkuð. „Við
eigum umhverfisvænar og
fallegar hefðbundnar hvítar
kistur, sem eru algengastar,
en einnig töluvert úrval af
viðarkistum.“ Í fyrsta sinn á
Íslandi hefur Útfararþjón-
usta Rúnars Geirmundsson-
ar nú látið hanna og smíða
íslenskar kistur úr íslenskum
við í samstarfi við Þorstein
B. Jónmundsson trésmið.
„Við höfum hannað sérs-
taka kistu og duftker út frá
hugmyndinni um íslenska
kistu úr alíslenskum við til
brennslu og jarðsetningar,“
útskýrir Rúnar. Kisturnar
eru úr við sem er unninn og
þurrkaður í Hallormsstaðar-
skógi. „Þessi kista er mjög
falleg, úr grófum við og
ólökkuð eða máluð á nátt-
úrulegan máta.“
Nánari upplýsingar er
að finna á utfarir.is eða
í síma 567-9110 allan
sólarhringinn, alla daga
ársins.