Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 29
Stóra bílablaðið 15. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
Þjónusta númer eitt, tvö og þrjú
Þjónusta er lykilorðið hér og ég sem framkvæmdastjóri fyrir-tækisins legg áherslu á 100%
þjónustu,“ segir Daníel Már Einarsson,
framkvæmdastjóri Vöku. Fyrirtækið
verður sjötugt í ár og er eitt elsta
fyrirtæki landsins á sviði þjónustu við
bíleigendur.
Vaka veitir mjög fjölþætta þjónustu
á sviði bíla og starfsmenn eru um 30
talsins. Dekkjaþjónusta er veigamikill
þáttur í starfseminni. „Við seljum
bæði notuð dekk og ný en erum að
minnka við okkur í notuðu dekkjunum
enda er verðmunurinn á notuðum
dekkjum og nýjum orðinn frekar lítill.
Í nýjum dekkjum erum við mest í
merkinu Sailun, en þau þykja mjög
vönduð, ekki síst miðað við hvað þau
eru ódýr,“ segir Daníel.
Vaka veitir fulla þjónustu á vel búnu
dekkjaverkstæðinu og er bæði hægt
að panta tíma í síma 567-6700 eða
koma á staðinn og þá hugsanlega
bíða dálitla stund. Að sjálfsögðu eru
dekkjaskipti og umfelgun í boði og er
lögð mikil áhersla á góða þjónustu í
dekkjaskiptunum.
Vaka rekur einnig dekkjahótel
þar sem bíleigendur geta geymt
vetrardekkin sín yfir sumarið eða
sumardekkin sín yfir haustið. „Þetta er
afskaplega ódýr kostur til að losna við
þau óþægindi að troða dekkjunum
inn í bílinn og geyma þau,“ segir
Daníel.
Vöku uppboðið slær í gegn
Uppboðsvefurinn vakauppbod.is
var settur í gang fyrir um tveimur
mánuðum og hefur slegið í gegn. Þar
er afar margt í boði, flest bílatengt
en þó ekki allt. Þarna er gott úrval af
notuðum bílum, dekkjum og vara-
hlutum, en líka alls konar aðrir hlutir,
til dæmis kaffivélar gámar, kranar
o.fl.
„Í uppboðinu leggjum við einnig
mikla áherslu á góða þjónustu. Ef þú
til dæmis kemur hingað með bíl til
sölu þá þarftu ekki að spá í pappírs-
vinnu eða að sýna bílinn, við sjáum
um þetta allt saman,“ segir Daníel.
Sem fyrr segir er vefurinn afar
vinsæll og allt virðist seljast þar. Bæði
er það vegna þess að þarna getur
fólk gert hagstæð kaup en ekki síður
vegna þess að mörgum þykir mjög
gaman að vera á uppboði og skoða
það sem í boði er.
Vefur vöku: vaka.is
Uppboðsvefurinn: vakauppbod.is
VAKA: