Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 36
Stóra bílablaðið 15. mars 2019KYNNINGARBLAÐ Traust þjónusta við bíleigendur í 44 ár Fyrirtækið Vélastilling hefur verið starfandi frá árinu 1975 og er enn rekið á upphaflegu kennitölunni. Sigurður Ingiberg Ólafsson stofnaði fyrirtækið en sonur hans, Ólafur Kr. Sigurðsson, sem ungur lærði bifvélavirkjun og fór að vinna á verkstæði föður síns, tók við rekstrinum fyrir nokkrum árum. Nafn fyrirtækisins ber vitni um gamla tíma: „Það er ekkert til lengur sem heitir vélastilling en við erum í almennum bílaviðgerðum og hjóla- stillingum. Hér áður fyrr voru bílar með platínur og blöndunga og þess háttar, það var því um eiginlega vélastillingu að ræða en núna eru það bara tölvustýrðar stillingar, bilanagreining og þess háttar,“ segir Ólafur. „Þetta er fyrirtæki sem hvílir á gömlum og traustum grunni en kennitalan er síðan 1975 og bankareikningurinn okkar er enn númer 16. Fólk hváir þegar það heyrir slíkt.“ Að sögn Ólafs útvegar Vélastilling alla varahluti sem þarf til viðgerða og gerir við flestallar bílategundir. „Þetta eru alls konar viðgerðir en kannski eru bremsubilanir algengustu vandamálin, það þarf að skipta um bremsuklossa og -diska, til dæmis.“ Fimm starfsmenn eru hjá Vélastillingu, fjórir sinna viðgerðum í fullri vinnu en fimmti starfsmaðurinn er í almennum skrifstofustörfum og útréttingum. Það er mikið að gera allt árið en þó aukast annir mjög mikið á vorin og oftast er rólegt í kringum jólin. „Oft er mikið að gera í byrjun árs þegar viðskiptavinir leita til okkar fyrir bifreiðaskoðun. Við yfirförum þá allan bílinn og lögum það sem laga þarf.“ Vélastilling sinnir líka tjóna- málum, einkum hjólatjónum: „Við erum með samninga við mörg réttingar verkstæði sem vottuð eru af tryggingafélögunum. Við erum sér- fræðingar í hjólastillingum og komum því að málum þar sem hjólatjón hefur átt sér stað.“ Vélastilling er til húsa að Auðbrekku 19, Dalbrekkumegin. Ef þú þarft að fara með bílinn í viðgerð hringir þú fyrst í síma 554-3140 og pantar tíma. Eftir það er bíllinn þinn í traustum höndum fagmanna sem starfa á grunni sem lagður var árið 1975. „Við erum duglegir að skutla fólki á meðan bíllinn er í viðgerð og sjáum til þess að fólk komist á milli staða,“ segir Ólafur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.