Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Side 36
Stóra bílablaðið 15. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Traust þjónusta
við bíleigendur í 44 ár
Fyrirtækið Vélastilling hefur verið starfandi frá árinu 1975 og er enn rekið á upphaflegu
kennitölunni. Sigurður Ingiberg
Ólafsson stofnaði fyrirtækið en sonur
hans, Ólafur Kr. Sigurðsson, sem
ungur lærði bifvélavirkjun og fór að
vinna á verkstæði föður síns, tók við
rekstrinum fyrir nokkrum árum.
Nafn fyrirtækisins ber vitni um
gamla tíma: „Það er ekkert til lengur
sem heitir vélastilling en við erum í
almennum bílaviðgerðum og hjóla-
stillingum. Hér áður fyrr voru bílar
með platínur og blöndunga og þess
háttar, það var því um eiginlega
vélastillingu að ræða en núna eru
það bara tölvustýrðar stillingar,
bilanagreining og þess háttar,“ segir
Ólafur.
„Þetta er fyrirtæki sem hvílir
á gömlum og traustum grunni
en kennitalan er síðan 1975 og
bankareikningurinn okkar er enn
númer 16. Fólk hváir þegar það heyrir
slíkt.“
Að sögn Ólafs útvegar Vélastilling
alla varahluti sem þarf til viðgerða
og gerir við flestallar bílategundir.
„Þetta eru alls konar viðgerðir en
kannski eru bremsubilanir algengustu
vandamálin, það þarf að skipta um
bremsuklossa og -diska, til dæmis.“
Fimm starfsmenn eru hjá
Vélastillingu, fjórir sinna viðgerðum í
fullri vinnu en fimmti starfsmaðurinn
er í almennum skrifstofustörfum og
útréttingum. Það er mikið að gera allt
árið en þó aukast annir mjög mikið
á vorin og oftast er rólegt í kringum
jólin.
„Oft er mikið að gera í byrjun árs
þegar viðskiptavinir leita til okkar fyrir
bifreiðaskoðun. Við yfirförum þá allan
bílinn og lögum það sem laga þarf.“
Vélastilling sinnir líka tjóna-
málum, einkum hjólatjónum: „Við
erum með samninga við mörg
réttingar verkstæði sem vottuð eru af
tryggingafélögunum. Við erum sér-
fræðingar í hjólastillingum og komum
því að málum þar sem hjólatjón hefur
átt sér stað.“
Vélastilling er til húsa að
Auðbrekku 19, Dalbrekkumegin. Ef
þú þarft að fara með bílinn í viðgerð
hringir þú fyrst í síma 554-3140 og
pantar tíma. Eftir það er bíllinn þinn
í traustum höndum fagmanna sem
starfa á grunni sem lagður var árið
1975.
„Við erum duglegir að skutla fólki
á meðan bíllinn er í viðgerð og sjáum
til þess að fólk komist á milli staða,“
segir Ólafur.