Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 30
Stóra bílablaðið 15. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Er bíllinn þinn yfirfarinn?
Bifreiðaverkstæðið Bíljöfur er eitt það þekktasta á höfuðborgarsvæðinu og hefur frá stofnun
sérhæft sig í viðgerðum og viðhaldi á
Chrysler, Dodge og Jeep.
Einnig sjáum við um allar
almennar viðgerðir á öllum bíl
tegundum. Þú færð allt á einum
stað fyrir bílinn hvort sem það er að
lagfæra bremsur, stýrisgang, vélar
upptekningar eða upptekningu á
sjálfskiptingu.
Hjá verkstæðinu starfa þaulreyndir
bifvélavirkjar með áralanga reynslu
að baki. Þetta eru sannkallaðir
reynsluboltar í faginu og eru jafnvígir
á gamla sem nýja bíla. Bíljöfur hefur
þá yfir að búa nýjustu tölvutækni og
fullkomnum tölvubúnaði til þess að
bilanagreina allar tegundir bíla.
Mikilvægi þess að yfirfara
reglulega
Bíljöfur er alhliða bifreiðaverkstæði
með BGS gæðavottun frá Bílgreina
sambandinu. Vel yfirfarinn bíll tryggir
öryggi ökumanns og farþega og því
er gott að yfirfara bílinn reglulega.
Að mörgu þarf að huga þegar kemur
að reglulegu viðhaldi á bifreiðum
og meðal þess sem þarf að skoða
reglulega er staðan á olíu á vél,
gírkassann, drifið, loftsíuna, sjálf
skiptinguna, rúðuvökva, kælivökva og
margt fleira. Við sjáum um að yfirfara
bílinn fyrir þig og fyllum á, gerum við
og skiptum út því sem þarf.
Þar sem Bíljöfur er í góðu samstarfi
við Bíljöfur – varahluti ehf., er verk
stæðið með aðgang að fjölbreyttu
úrvali varahluta, öllu sem þarf til
að viðhalda bílnum á sem bestan
og ódýrasta hátt sem völ er á. Ef
hluturinn er ekki til á lager þá pöntum
við hann með stuttum fyrirvara.
Smiðjuvegi 34 (gul gata), 200
Kópavogi
Sími: 5445151
biljofur@biljofur.is
BÍLJÖFUR – BIFREIÐAVERKSTÆÐI:
Úrval varahluta í ameríska bíla!
Bíljöfur – varahlutir ehf. býður aðeins hágæða varahluti til viðhalds og viðgerða á
amerískum bifreiðum.
Traustir og viðurkenndir aðilar
Þegar kemur að því að skipta út
varahlutum og gera við í bílum þá
er mikilvægt að nota varahluti frá
traustum og viðurkenndum aðilum.
Við gerum sömu kröfur um gæði og
endingu við val á varahlutum og eru
gerðar hjá framleiðanda bílsins. Því
getum við tryggt hámarks öryggi
fyrir þig og bílinn.
Úrval varahluta
Við bjóðum upp á úrval varahluta í
ameríska fólksbíla sem og jeppa og
sendibíla. Sé varahluturinn ekki til
á lager þá sérpöntum við hann frá
viðurkenndum aðila, hvort sem það
er original varahlutur frá Mopar,
Ford, GM eða af eftirmarkaði frá t.d.
Moog, Sachs, Gates, Timken, Centric
eða öðrum viðurkenndum aðilum. Við
erum með varahluti á lager í Chrysler,
Jeep, Dodge og Ram, t.d. bremsu
diska og bremsuklossa, höggdeyfa,
hjólabúnað, vatnsdælur, reimar, síur
og perur.
Smiðjuvegi 72, 200 Kópavogi
Sími 5554151
varahlutir@biljofur.is