Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 64
64 15. mars 2019 É g er ekki ofbeldishneigð manneskja,“ sagði 16 ára unglingur, Christopher Danko vich, við dómarann, John J. McDonald, í dómsal í maí árið 2006. Hvort þau orð standist skoðun verður ekki lagt mat á hér og nú. Rúmu ári áður hafði Christo­ pher stungið fimmtuga móð­ ur sína til bana á heimili þeirra í Rochester Hills í Michigan í Bandaríkjunum. Stungin 111 sinnum Sextán ára að aldri stóð Christo­ pher frammi fyrir dómaranum og baðst afsökunar vegna verknað­ ar síns, sem hann hafði framið 24. apríl 2005. Þá, fimmtán ára grunn­ skólanemi, hafði drengurinn ráð­ ist á móður sína, Diane Michele, vopnaður litlum hnífi, og stung­ ið hana 111 sinnum og stungið úr henni annað augað. Lík Diane fannst næsta dag en Christopher var hvergi sjáanlegur. Hann fannst þó þann sama dag í kofa föður síns í Norður­Michigan. Þangað hafði hann flúið og þegar hann var handtekinn var hann vel útbúinn til útilegu. Verkfæri Guðs Þegar dómarinn spurði Christo­ pher hvernig honum liði, svaraði hann: „Ég er bara sorgmæddur … taugaóstyrkur.“ McDonald hafði leitt hugann að því hvort samfé­ laginu stafaði hætta af Christo­ pher þegar hann losnaði úr fang­ elsi og því farið fram á sérfræðiálit sálfræðings. Af áliti sálfræðingsins mátti ráða að Christopher hefði talið sig vera á sérlegri vegferð á veg­ um Guðs. Verkefnið var að vernda börn. Heimasmíðuð vopn Móðir Christophers hafði sett ofan í við hann vegna heimasmíðaðra vopna hans, sem átti beita gegn fylgendum fóstureyðinga og þeim sem framkvæmdu þær, sem og þeim sem hugnaðist barnaklám og framleiddu. Aðfinnslur móður hans féllu ekki í góðan jarðveg og átti Christopher til að slá til hennar þegar svo bar undir. Dómarinn spurði Christopher hvaðan sú sannfæring, að hann væri í herferð á vegum Guðs, væri runninn, en Christopher vildi ekki fjölyrða um það: „Ég kæri mig ekki um að ræða það … Allt fór í handa­ skolum.“ Hugsanleg áhrif móður Við málsmeðferðina var einnig ymprað á bréfi sem dómaranum hafði borist, en ekki var upp­ lýst hver sendandi bréfsins var. Verjandi Christophers, Mitchell Ribitwer, sagði að í bréfinu væri ýjað að tilfinningalegri drottnun móður Christophers í garð sonar síns, að hún hefði reynt að móta þankagang hans. Á þeim nótum hafði verj­ andinn einnig orð á því að frá því að Christopher myrti móður sína hefði hann verið í meðferð þar sem honum var hjálpað að takast á við þær ranghugmyndir að hann væri verkfæri Guðs. Frá Biblíu til vígahópa Ribitwer sagði einnig að Christopher sæi þegar þarna var komið sögu „villu síns vegar“ og deginum ljósara að móðir hans hefði ekki gert sér grein fyrir ástæðum vopnagerðar hans. „Þetta kom þeim í opna skjöldu,“ sagði Ribitwer. Frá því að vera hugfanginn af Biblíunni fór Christopher af vafra í netheim­ um, á slóðum andstæðinga fóst­ ureyðinga. Þaðan lá síðan leiðin á síður vopnaðra vígahópa. Vildi bjarga börnum „Í eigin huga var Chris einfaldlega í leiðangri fyrir Guð. Hann trúði á æðri yfirvöld og móðir hans skyldi ekki fá að hindra hann. Hann var að reyna að stöðva þá sem fram­ 3 börn urðu fórnarlömb geðbilunar bandarísku konunnar Angelu Camacho þann 11. mars 2003. Angela og sambýlismaður hennar, John Allen Rubio, voru ákærð fyrir að hafa myrt þrjú börn hennar; Julissu, þriggja ára, Mary Jane, tveggja mánaða, og John Esthefan, eins árs. John Allen var faðir Mary Jane og Johns Esthefan. Að sögn kyrktu Angela og John Allen dæturnar og afhöfðuðu að því loknu. Síðan tók parið sér smá hlé, þreif sig og hafði kynmök, áður en það sneri sér að syninum. Ættingi þeirra hafði síðar samband við lögregluna, eftir að hafa fundið lík stúlknanna og drengsins á heimili Angelu og Johns Allen í Brownsville í Texas. Líkunum hafði verið troðið í ruslapoka. Lík drengsins lá í rúmi. SAKAMÁL MATSÖLUSTAÐUR SKEMMTISTAÐUR RÁÐSTEFNUR ÁRSHÁTÍÐIR VEISLUR RÁIN ER ALHLIÐA VEITINGAHÚS Í REYKJANESBÆJARhjarta VILLTIST Á VEGUM GUÐS n Christopher vildi bjarga börnum n Taldi sig vera verkfæri Guðs n Smíðaði sín eigin vopn til baráttunnar„Hann var að reyna að stöðva þá sem framkvæmdu fóstur eyðingar. Hann var að reyna að stöðva barnaklám. Hann vildi bjarga börnum. Fimmtán ára Christopher Dankovich var með ranghugmyndir um tilveru sína.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.