Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 40
Stóra bílablaðið 15. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Meira afl og minni eyðsla
með tölvustýrðri vélarstillingu
KRAFTKORT:
Það er merkileg staðreynd að hægt er að auka kraftinn í bílnum og spara eldsneyti með
því að uppfæra gögn í tölvubúnaði.
Vélar í nútímabílum nota tölvukerfi
við stjórnun vélarinnar. Fjölmargir
skynjarar nema aðstæður og mata
vélartölvu bílsins með upplýsingum
sem síðan eru notaðar til að stjórna
hegðun vélarinnar. Þessir skynjarar
mæla t.d. lofthita úti, lofthita í
soggrein vélarinnar, vatnshita vélar-
innar, stöðu inngjafar, snúningshraða
vélar og fjölda annarra þátta sem
nauðsynlegir eru til að beita vélinni
sem best við viðkomandi aðstæður.
Fyrirtækið Kraftkort, sem staðsett
er að Súlunesi 10 í Garðabæ, hefur
veitt fjölmörgum bílum aukið afl og
dregið úr eldsneytisnotkun þeirra
með þessari nútímalegu vélastill-
ingu. Guðmundur Rögnvaldsson, sem
rekur fyrirtækið, útskýrir aðferðina
svo í stuttu máli:
„Þetta snýst um það að við lesum
bíltölvuna og erum í samstarfi við
breskt fyrirtæki sem heitir Viezue
Technologies og er einn stærsti
aðilinn á þessu sviði. Við sendum
þeim skrána sem er á vélartölvunni
í bílnum. Þeir senda okkur nýja skrá
með breyttum stillingum sem við
keyrum inn á tölvuna. Forritunin sjálf
á sér stað hjá þeim en ekki okkur.“
Öll forritin eru prófuð á dyno-
-bekkjum hjá Viezu til að sannreyna
tölurnar sem gefnar eru upp fyrir
hvern bíl.
Eins og áður segir stuðlar endur-
forritunin bæði að auknu afli og
meiri sparneytni: „Ef við tökum
dísilbíla, þá getum við fengið bæði
svokallað Performance Map sem
lýtur meira að aflaukningu ásamt því
að minnka eldsneytisnotkun, og Eco
Map, sem veldur minni aflaukningu
en meiri eldsneytissparnaði og
dregur úr mengun frá bílnum,“ segir
Guðmundur.
Einnig er hægt að endurforrita
vélartölvur í bensínbílum en fyrir þá
er eingöngu til Performance Map.
Með auknu afli erfiðar vélin hins
vegar minna og því minnkar eyðsla
með sama aksturslagi.
Guðmundur tók við starfsemi
Kraftkorts í fyrravor en að hans
sögn hefur verið boðið upp á þessa
þjónustu í nokkur ár. Sem nærri
má geta hefur þjónustan þróast í
gegnum árin:
„Bílar eru auðvitað ekki eins og
þeir voru fyrir nokkrum árum, það er
alltaf að koma eitthvað nýtt og hægt
að gera fleira.“
Hér með greininni fylgja nokk-
ur dæmi um bíla sem hafa öðlast
endurbætt líf, ef svo má segja, eftir
tölvustýrða vélastillingu hjá Kraft-
korti.
Sem fyrr segir er fyrirtækið
staðsett að Súlunesi 10 í Garða-
bæ. Heimasíða er kraftkort.net og
Facebook-síða www.facebook.com/
kraftkortgr.. Símanúmer er 857-
0210. Hægt er að panta þjónustu
eða fá frekari upplýsingar með því
að hringja eða senda skilaboð á
Facebook-síðunni. Jafnframt er
áhugavert að skoða heimasíðu Viezu
Technologies, viezu.com.
Endilega hafðu samband og fáðu
að vita hvað hægt er að gera fyrir
bílinn þinn!
Þessi Volkswagen Golf GTI fékk Revo Stage 1
forrit og fór úr 220 hestöflum í 333 hestöfl, togið
fór úr 350nm í 488nm. +113 hestöfl og +138 nm.
Þessi 2018 Land Rover Discovery Sport fékk aflaukn-
ingu og fór úr 147 hestöflum í 182 hestöfl, togið fór úr
380nm í 440nm. Einnig er eyðslan að lækka um allt
að 10%. +35 hestöfl, +60 nm og -10% eyðsla.