Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 33
Stóra bílablaðið 15. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
Láttu okkur flytja inn
bílinn þinn fyrir þig!
BETRI BÍLAKAUP:
Betri bílakaup er fyrirtæki sem þjónustar almenning við kaup á bílum að utan og
við flutning til landsins. Með slíkum
hætti fást bílarnir á mun lægra verði
en í gegnum bílaumboð. Á undan
förnum tæpum tveimur árum hefur
Betri bílakaup flutt inn með þessum
hætti á annað þúsund gæðabíla fyrir
ánægða kaupendur.
Í þessum hópi eru meðal annars
hátt í 500 bílar af gerðinni Mitsubishi
Outlander PHEV og fjölmargir af
tegundinni Volvo, ýmist í forpöntun
um á nýjum bílum eða innflutningi á
lítið keyrðum nýlegum bílum.
„Við sjáum um allt fyrir
kaupandann, frá a til ö. Kaup
samningurinn við erlenda bílasölu er
á nafni kaupandans en við sjáum um
alla pappírsvinnu og inn flutninginn.
Eimskip flytur bílinn og hann er
tryggður alla leið. Þessi aðferð
við bílakaup tryggir kaup endum
hagstæðara verð en áður hefur
þekkst. Einnig erum við með www.
betribilasalan.is sem er netbílasala
og getum við selt fyrir þig gamla
bílinn meðan sá nýi er á leiðinni,“
segir Brynjar Valdimarsson hjá Betri
bílakaupum.
Fyrirtækið er til húsa að Ármúla
4–6. Að sögn Brynjars er allt
kaupferlið hjá Betri bílakaupum mjög
gegnsætt og þægilegt:
„Segjum að þú sért væntanlegur
kaupandi, þú ert að leita að bíl.
Þú segir okkur hvernig bíl þú vilt
eignast og við finnum hann fyrir
þig. Við tökum fasta þóknun fyrir
okkar þjónustu, 249.900 kr. með
vsk. Við semjum um verðið fyrir þig
við erlendu bílasöluna og þú greiðir
bílinn beint til þeirra. Við erum með
samning við Eimskip sem nýtist
þér. Þegar þú ert búinn að greiða
bílinn þá sjáum við um allt fyrir
þig; flutninginn, skráningu bílsins,
tollafgreiðsluna og afhendum þér
svo bílinn hjá okkur í Ármúla 4.“
Mitsubishi Outlander PHEV
Gott úrval, sérstaklega hagstætt verð
og mikil gæði eru það sem viðskipta
vinir Betri bílakaupa uppskera. Mikil
áhersla er lögð á svokallaða græna
bíla og segir Brynjar þá vera um
90% af þeim bílum sem viðskipta
vinir kaupa í gegnum fyrirtækið.
Er þá ýmist um að ræða raf eða
blendingsbíla (hybrid bensín+
rafmagn).
„Við bjóðum upp á hinn glænýja og
frábæra Mitsubishi Outlander PHEV,
en hann hentar einstaklega
vel íslenskum aðstæðum. Þessir
bílar hafa verið gríðarlega vinsælir
á Íslandi enda mjög ríkulega útbúnir
og með langa ábyrgð. Það er 5 ára
almenn verksmiðjuábyrgð og 8 ára
rafhlöðuábyrgð. Framleiðsluárið
2019 fékk ýmsar stórgóðar viðbætur.
Sem dæmi má nefna lengri drægni
á rafmagni, hljóðlátari bensínmótor,
meira akstursöryggi auk þess sem
bíllinn er sparneytnari og kraftmeiri.
Verð frá 4.250.000 kr. miðað við
gengi 135 kr. á EUR.
Nýr Volvo 2019
„Einnig getum við pantað 2019 Volvo
þar sem þú færð að setja bílinn þinn
saman eins og þú vilt hafa hann. Í
grunninn koma þeir með talsvert
meiri búnaði, með lengri ábyrgð, 4
ára almenn verksmiðjuábyrgð, 8 ár
á rafhlöðum, og langt undir því verði
sem þekkist hér heima. Virkilega
öflugir og frábærir lúxusbílar.“
Dæmi um verð á Volvo XC60 T8
R-Design frá 8.165.000 kr.* og Volvo
XC90 T8 Momentum 8.915.000 kr.*
Með aukahlutapakka upp á meira
en 1.200.000 kr.
Nánari upplýsingar eru á
vefnum betribilakaup.is. Fyrirspurn
um er einnig svarað í síma 5112777.