Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 53
FÓKUS 5315. mars 2019
R
akel Unnur Thorlacius, 29
ára, er menntaður stílisti,
tískuritstjóri og annar
eigenda vintage-fataversl-
unarinnar Wasteland sem var
opnuð í miðbænum, við Ingólfs-
stræti 5, í gær, fimmtudag. Rakel
Unnur segir að einn af lyklunum
að hennar velgengni hafi verið að
hætta að drekka áfengi. Hún sagði
skilið við áfengi fyrir þremur og
hálfu ári. Síðan þá hefur hún áork-
að meiru en hún hefði nokkurn
tíma geta ímyndað sér. Rakel Unn-
ur segir að draumar geti ræst enda
er líf hennar nú eins og hana hafði
dreymt um.
Vildi vera öðruvísi
Rakel Unnur ólst upp í Breiðholti
og flutti til Hafnarfjarðar tólf ára
gömul. Frá því að hún man eftir
sér hefur hún haft áhuga á öðru-
vísi fötum.
„Mig hefur alltaf langað að
klæða mig öðruvísi. Þótt ég fylgdi
tískustraumnum var ég alltaf með
mína eigin sýn á fatnað,“ segir hún.
Rakel Unnur útskrifaðist af
fatahönnunarbraut í FG með stúd-
entspróf. Eftir útskrift vann hún
sem verslunarstjóri í vintage-fata-
verslun í Reykjavík.
Þorði ekki að drekka áfengi
Þegar Rakel Unnur var að verða
tvítug byrjaði hún að drekka áfengi.
Hún rifjar upp kvöldið sem hún ætl-
aði fyrst að smakka áfengi, þegar
hún var átján ára gömul.
„Ég og mamma höfum alltaf ver-
ið bestu vinkonur og ræddum um
áfengi áður en ég sagði við hana að
mig langaði að prófa að drekka. Hún
keypti handa mér Breezer og sagð-
ist vera heima, tilbúin við símann
ef mig vantaði eitthvað,“ segir Rakel
Unnur og hlær.
„Ég tók einn sopa af drykknum
og hugsaði svo: Nei. Ég þori þessu
ekki. Ég hætti við og gaf vinkonum
mínum drykkinn minn. Ég var alltaf
sátt við að fara með kippu af kókó-
mjólk í partí þegar ég var yngri.“
Félagslegur þrýstingur
Aðspurð af hverju hún hafi
byrjað að drekka tæplega tvítug
segir Rakel Unnur að félagslegur
þrýstingur hafi leikið þar stórt
hlutverk.
„Ég byrjaði ekki að drekka fyrr,
því mér leið ekki vel með þá hug-
mynd að drekka og þorði því ekki.
Mér fannst óþægilegt að sjá hvern-
ig fólk gat breyst undir áhrifum. En
pressan var mikil og á endanum
lét ég undan, mig langaði að vera
með. Það er rosalega mikil pressa
í samfélaginu um að drekka,“ seg-
ir hún.
Rakel Unnur er nýflutt aftur
heim til Íslands frá Danmörku.
Hún segir pressuna í Danmörku
vera gríðarlega.
„Það er rosalega mikil pressa
um að drekka í Danmörku. Ég hef
lent í því að spyrja um óáfenga
kokteila og var boðinn bjór í stað-
inn. Það er mjög mikil bjórmenn-
ing í Danmörku og ungir krakk-
ar drekka með foreldrum sínum
þar og eru ekki að fela það fyr-
ir þeim. Mér finnst að allir ungir
krakkar ættu að geta rætt við for-
eldra sína um áfengi. Því þá geta
foreldrar verið til staðar þegar og
ef þá langar að prófa.“
London
Árið 2014 flutti Rakel Unnur til
London, þá var hún 25 ára. Hana
langaði að verða fatahönnuð-
ur, enda útskrifaðist hún af fata-
hönnunarbraut. En með tíman-
um komst hún að því að draumar
hennar lágu annars staðar.
„Eftir að ég útskrifaðist vann
ég í vintage-fataverslun og var þar
verslunarstjóri í fjögur ár. Ég fann
hvað ég hafði mikinn áhuga á vin-
tage-fatnaði. Mig hefur líka aldrei
langað að vera eins og aðrir. Ísland
er svo lítið. Það er svo auðvelt að
falla í þægindarammann og þora
ekki að vera áberandi, í rauninni,
því við erum svo fá. Okkur finnst
það óþægilegt,“ segir Rakel Unnur.
„Ég komst að því að með vin-
tage-fatnaði gat ég klæðst ein-
hverju sem enginn annar átti
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Hætti að
drekka
og ákvað
að láta
drauminn
rætast
„Það sem ég er búin að
afreka síðan ég hætti
að drekka er ótrúlegt
MYNDIR: HANNA ANDRÉSDÓTTIR /DV
GODDI.IS
Auðbrekku 19 - kópAvogi - S. 544 5550
Sauna- og
gistitunnur ásamt
við rkyntum pottum
Sjáðu úrvalið
á goddi.is
Margar gerðir
Eigum fjórar stærðir af lokum á
lager í gráum og brúnum litum
Verð aðei s 58.500 kr.
Eigum fjórar stærðir af lokum á
lager í gráum og brúnum litum
Verð frá 58.500 kr.