Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 14
14 FÓKUS - VIÐTAL 15. mars 2019
V
enesúela er staðsett í norð-
urhluta Suður-Ameríku og
liggja landamærin meðal
annars að Brasilíu og Kól-
umbíu. Landið var áður nýlenda
Spánverja en öðlaðist sjálfstæði á
19. öld. Venesúela býr yfir stærstu
þekktu olíulindum heims. Landið
hefur verið mikið í fréttum undan-
farin misseri vegna frásagna af
hungursneyð, mannréttindabrot-
um og landflótta. Árið 1998 komst
sósíalistinn Hugo Chavez til valda
eftir friðsamlegar og óumdeildar
kosningar en hann naut mikilla
vinsælda almennings. Vinsæld-
irnar dvínuðu er leið á valdatím-
ann vegna ákafrar þjóðnýtingar-
stefnu stjórnvalda, óðaverðbólgu
og vaxandi fátæktar. Chavez lést
árið 2013 en við embætti forseta
tók þáverandi ráðherra í ríkisstjórn
hans, Nicolas Maduro. Ástandið
í landinu er talið hafa versnað
enn frekar undir stjórn hans og
er Maduro talinn mjög valtur í
sessi. Stjórnarandstæðingurinn
Juan Guaido hefur lýst sig opin-
berlega forseta landsins en hann
nýtur stuðnings Bandaríkjamanna
og fleiri andstæðinga stjórnvalda í
Venesúela.
Hafði alltaf illan bifur á Chavez
Caryna Gladys Bolivar Serge flutt-
ist til Íslands árið 2002 en þá var
ástandið ekkert í líkingu við það
sem það er núna. Caryna kenn-
ir jóga og súmba, starfar sem
einkaþjálfari hjá Reebok Fitness
og kennir leikfimi hjá Félagsmið-
stöð eldri borgara. Hún er gift ís-
lenskum manni og á með honum
dóttur. Hluti af fjölskyldu Carynu
býr í föðurlandinu við þröngan
kost.
„Þegar Hugo Chavez komst til
valda var hann mjög vinsæll. En
mér leist alltaf illa á hann. Mér
fannst hann kynda undir hatri
og sundrung, var með popúlísk-
an málflutning. Hann skipti öll-
um í „við“ sem voru öreigarnir og
„þeir“ sem voru hinir ríku,“ segir
Caryna en hún telur að ástandið
hafi versnað mikið síðan Chavez
féll frá. Stefnan var þó frá honum
komin og fór harðnandi:
„Þeir fóru að þjóðnýta allt og
eyðilögðu einkageirann með
undirboðum á vöru, til dæmis
opnaði ríkið matvöruverslan-
ir þar sem verðlag var langt und-
ir því sem tíðkaðist í einkaversl-
unum. Enginn gat keppt við þessi
verð og ef einhverjir héldu velli þá
voru þeir bara teknir úr umferð.
Þeir náðu líka tökum á öllum fjöl-
miðlum. Þeir lokuðu ekki fjölmiðl-
um en þeir fjölmiðlar sem töluðu
gegn stjórnvöldum misstu einfald-
lega útsendingarleyfi.“
Sýndarkosningar – námsmenn
pyntaðir og myrtir
Caryna segir að reglulega séu
haldnar kosningar í Venesúela en
ekkert sé að marka þær. „Því er
haldið fram að kosningarnar séu
leynilegar en þú þarft að gefa upp
kennitöluna þína og svo þegar
það gerist að til dæmis opinberir
starfsmenn greiði atkvæði gegn
stjórnvöldum þá eru þeir reknir
fyrirvaralaust.“
Caryna segir að stjórnvöld beiti
ýmsum fantabrögðum gegn frið-
samlegum mótmælum sem færast
mjög í vöxt í landinu. „Námsmenn
hafa verið í fararbroddi í mótmæl-
um en þeir hafa margir verið fang-
elsaðir, pyntaðir og myrtir. Herinn
sprautar oft táragasi á mótmæl-
endur og svo hafa stjórnvöld tíðk-
að að hleypa föngum úr fangelsi,
vopna þá og segja þeim að skjóta
á mótmælendur. Þá lítur þetta út í
fréttum eins og almennir borgar-
ar séu að berjast sín á milli þegar
í raun það eru vopnaðir útsendar-
ar stjórnvalda sem eru að myrða
vopnlausa mótmælendur.“
Getur ekki farið til landsins
aftur
„Ég varð að fljúga til Venesúela
árið 2016 því faðir minn var mjög
veikur. Lyfjasendingar frá ættingj-
um í útlöndum héldu í honum líf-
inu en hann fékk mjög takmark-
aða læknisþjónustu. Þau lög eru í
gildi að allir sem ferðast til Venes-
úela eða úr landinu verði að vera
með venesúelskt vegabréf. Ég átti
slíkt vegabréf sem var í gildi, en
þegar ég ætlaði að fara aftur burtu
sagði öryggisvörður mér að ég
gæti ekki farið vegna þess að það
væri úrelt form á passanum. Ég
ræddi við annan öryggisvörð og
grátbað hann um að hleypa mér
burtu því ég ætti ekki heima þarna
og ætti fjölskyldu á Íslandi. Ég fékk
á endanum að fara en vegabréfinu
var haldið eftir og ég get því ekki
farið þangað aftur því enginn get-
ur ferðast til landsins án venesú-
elsks vegabréfs.“
Caryna segir að faðir hennar
hafi nær eingöngu fengið þau lyf
sem ættingjar erlendis útveguðu
honum en hann lést í fyrra. Car-
yna gat ekki verið við jarðarförina
hans þar sem hún hefur ekki vega-
bréf lengur til að ferðast til lands-
ins. Hún segir að margar hryllings-
sögur séu til af fólki sem dáið hafi í
Venesúela vegna þess að það fékk
ekki læknisþjónustu.
Í landinu býr móðir hennar og
systir, en önnur systir hennar flúði
ástandið til Spánar; einnig margt
frændfólk. Hún segir að þetta fólk
tóri vegna peningagjafa frá henni
og öðrum ættingjum erlend-
is. Aðrir séu mun verr staddir og
svelti heilu hungri enda sé tvöfalt
hagkerfi í landinu, annars vegar
dollarakerfi og hins vegar gjald-
miðill landsins. Þeir sem eigi ekki
erlendan gjaldmiðil séu illa stadd-
ir enda verðbólga um 1000 pró-
sent.
Glæpamenn og eiturlyfjasalar
við stjórn
„Þessir menn fela sig mikið á bak
við merkimiðann sósíalismi til að
koma sér í mjúkinn hjá sósíalísk-
um ríkjum en í raun eru þetta fyrst
og fremst glæpamenn. Margir
þeirra eru viðriðnir eiturlyfjasmygl
suður á bóginn. Þeir koma fram
við varnarlausan almenning af ill-
mennsku og í rauninni hata þeir
þjóðina því allur almenningur er á
móti þeim,“ segir Caryna.
Hún segir að viðskiptaþvingan-
ir og önnur afskipti erlendra ríkja
hafi ekkert að gera með ástandið
enda séu viðskiptaþvinganirnar
nýtilkomnar og feli meðal annars
í sér frystingu á eignum valdhafa.
Vandinn sé að öllu leyti heimatil-
búinn.
Aðspurð um stjórnmála-
skoðanir sínar segir Caryna: „Ég
þoli ekki orðið sósíalisma vegna
ástandsins þarna. En Íslendingar
þurfa samt að gera sér grein fyrir
því að það sem er í gangi í Vene-
súela er eitthvað sem er óra-
fjarri hugmyndum Íslendinga um
sósíal isma.“
Caryna unir hag sínum á Ís-
landi mjög vel og segir að Ís-
lendingar hafi tekið henni opnum
örmum frá fyrstu stundu. nSuðurlandsbraut 14 • 108 Reykjavík • Sími 588 0188 • slysabaetur@slysabaetur.is
VIÐ SÆKJUM
BÆTURNAR
Ekki flækja málin.
Af tvennu illu myndi fólk frekar velja erlend afskipti
en að þessi ríkisstjórn sé áfram við völd. Það kann að
hljóma brjálæðislega, en flestir myndu fagna því ef
Bandaríkjaher myndi ráðast inn í landið á morgun.
Fólk hugsar með sér að þeir gætu aldrei verið verri en
núverandi valdhafar,“ segir Caryna Gladys Boli-
var Serge sem er frá Venesúela. Caryna hefur búið
á Íslandi frá árinu 2002 en hluti af fjölskyldu hennar
býr enn í föðurlandinu. Að sögn Carynu er ástandið
skelfilegt í Venesúela og fer dagversnandi.
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is
Caryna er frá
Venesúela:
Ríkisstjórnin hatar
fólkið í landinu
„Þessir menn fela sig mikið á
bak við merkimiðann sósíal-
ismi til að koma sér í mjúkinn hjá
sósíalískum ríkjum en í raun eru
þetta fyrst og fremst glæpamenn