Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 48
Fyrirtækjalausnir 15. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Byltingarkennd nýjung
í fjártæknigeiranum
Greiðsluþjónustan myPOS er byltingarkennd nýjung í fjártæknigeiranum, sérhönnuð
fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki.
Engin þörf á þriðja aðila
myPOS hóf að veita greiðslu þjónustu
árið 2014 og hefur síðan vaxið
gríðarlega hratt og er í dag með um
100.000 viðskiptavini víðs vegar um
Evrópu. myPOS hóf að veita þjónustu
á Íslandi í upphafi árs 2017 við mjög
góðar undirtektir. myPOS er í raun og
veru allt í einum pakka, það er bæði
færsluhirðir og rafeyrisfjármála
stofnun. Viðskiptavinurinn fær
posa, rafeyrisreikning í öllum þeim
gjaldmiðlum sem honum hentar og
debetkort tengt reikningnum. Þannig
er engin þörf á þriðja aðila eða
bankastofnun til að móttaka greiðslur
frá færsluhirðinum.
Fjöldi verðlauna
myPOS hefur á aðeins fimm árum
unnið til fjölda verðlauna fyrir
greiðsluþjónustuhugbúnað sinn
og notendavænan heimabanka.
Núna í febrúar var myPOS valið
besta POS nýsköpunin í greiðslu
þjónustu og besta hugbúnaðarlausn
í heimabanka af Merchant Payment
Ecosystem (MPE Award). myPOS var
jafnframt tilnefnt sem einn af þremur
bestu færsluhirðum í Evrópu.
Engin mánaðargjöld
myPOS sker sig úr með tvennum
hætti. Viðskiptavinurinn kaupir
posann og þarf því ekki að borga
mánaðarleg leigugjöld til eilífðar, eins
og hefur verið hefðin á Íslandi. Þannig
getur viðskiptavinurinn sparað sér
háar fjárhæðir til lengri tíma litið eða
borgað upp posann með um það bil
sex mánaða leigu.
Gert upp samstundis
Þar að auki gerir myPOS upp
samstundis bæði debet og
kreditkortafærslur, sem enginn annar
býður upp á. Greiðslan er aðeins
sekúndur að skila sér frá posanum inn á
myPOS reikninginn þar sem viðskipta
vinurinn hefur samstundis aðgang að
fjármunum sínum með því að nota
debetkortið sem fylgir reikningnum.
Einnig getur viðskiptavinurinn millifært
af myPOSreikningnum til annarra
fjármálastofnana um allan heim og
móttekið greiðslur með sama hætti og
aðrir hefðbundnir bankareikningar.
Þurfa ekki að gefa upp korta
upplýsingar í gegnum síma
myPOS er kjörin lausn fyrir ferða
mannageirann. Viðskiptavinurinn
getur sent greiðslubeiðni eða tekið
símgreiðslu í hvaða mynt sem er.
Greiðslubeiðni er veflinkur sem
þú sendir til greiðandans þar sem
hann fyllir út sínar kortaupplýsingar
sjálfur, en í dag eru margir sem eru
feimnir við að gefa upp sínar korta
upplýsingar í gegnum síma.
Hafðu verðskrána í dollurum,
evrum, pundum …
Ef greiðandinn vill borga í EUR eða
USD, þá getur þú sent greiðslubeiðni
úr símaappinu í þeirri mynt sem
greiðandinn vill borga í. Þú færð síðan
greiðslubeiðnina gerða upp í þeirri
mynt sem hentar þér. Þannig getur
þú haft verðskrána þína í dollurum
fyrir Bandaríkjamenn, evrum fyrir
Evrópubúa og í pundum fyrir Breta.
Hefðbundnar símgreiðslur (MOTO)
getur þú einnig rukkað í hvaða mynt
sem er í gegnum símaappið eða beint
í gegnum heimabankann.
Tilvalið fyrir innflutningsaðila
myPOS er einnig tilvalin lausn fyrir
innflutningsaðila. Þeir geta þá
stillt sjálfan posann í ISK en fengið
uppgert í hvaða mynt sem hentar
hverju sinni. Þannig er hægt með
einu handtaki að breyta uppgjörs
myntinni úr ISK í EUR ef þarf að
safna evrum fyrir næstu innkaup.
Jafnframt er hægt að færa gjaldeyri
á milli gjaldeyris reikninga eftir þörfum
hverju sinni.
Allir posarnir koma með fríu
3Gsímkorti og virka hvar sem er. Þá
einnig hægt að tengja þá við WiFi.
Hægt er fá posa með snertiskjá
(Smart N5), þann klassíska með
útprentun (Combo 210) eða lítinn og
nettan sem er minni en iPhone og án
prentara (Mini Ice).
Komið til að vera!
Eftir frábæra byrjun liggur nokkuð
ljóst fyrir að myPOS er komið til að
vera sem nýr valkostur sem greiðslu
þjónustuaðili fyrir íslensk fyrirtæki
sem vilja nútíma greiðsluþjónustu.
Nánari upplýsingar má finna á
posinn.is eða skrifstofu myPOS að
Suðurlandsbraut 6.
Netfang: mypos@mypos.is
Sími: 5717510
myPOS Mini Ice er ótrúlega handhægur.