Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Blaðsíða 68
68 FÓKUS 15. mars 2019
Frægir Íslendingar á
fermingardaginn
Fermingar eru framundan, en þær fyrstu verða 24.
mars. Samkvæmt tölum Hagstofunnar eru einstak-
lingar sem verða 14 ára í ár um 4.300 talsins og því
ljóst að mikill fjöldi mun fermast, þó að alltaf séu
einhverjir sem kjósi að sleppa því.
Þau okkar sem hafa fermst eiga minningar um ferm-
ingardaginn: góðar, slæmar, vandræðalegar, fyndnar
og allt þar á milli.
DV fékk nokkra þekkta einstaklinga til að rifja upp
fermingardaginn og deila með lesendum mynd og
minningu frá þessum merkisdegi.
„Ég fermdist með frænku minni og frænda. Ég man hvað mér fannst
ég svo fullorðin og fullfær um að taka mínar ákvarðanir
þar sem ég væri nú að fermast, hélt svo mikið að allt
myndi breytast, en allt var eins daginn eftir og ég
ekkert vitrari. Ég eignaðist minn fyrsta hest og var
það versti hestur sem nokkur maður gæti hugsað
sér, man í eitt skipti þegar mamma ætlaði að prófa
hann, því foreldrar mínir héldu að ég væri bara
svona óörugg með hann og kynni ekki almenni
lega á hestinn. En mamma stökk á bak og
hann kastaði henni af sér og rifbeinsbrotnaði
hún við fallið. Eftir það vorum við fljótar að
skipta honum út fyrir einn gamlan og góð
an reiðhest.“
„Ég þurfti að fara úr eigin fermingarveislu
(með fermingarpeningana í jakkafata
vasanum) til þess að taka á móti verðlaunum
„besti markvörðurinn“ á íshokkímóti sem hét
Björninn Cup. Þar kepptu bæði íslensk og er
lend lið, ég var yngstur á mótinu og því afar
ánægður með árangurinn.“
„Ég klæddi mig á fermingar
daginn og fannst ég mesta
gella i heimi í fötum úr 17. Var
orðin 180 sentimetrar á hæð
en fór samt í skó sem bættu
10 sentimetrum við hæðina.
Gekk út í daginn og fannst ég
geggjuð. Í dag, hins vegar, átta
ég mig á því að ég var aðeins
að misskilja lífið og útlit mitt.
Í kirkjunni sat besta vinkona
mín á svölunum og geiflaði sig
og gretti allan tímann framan í
mig, ég hristist og grét af hlátri
aftast og mamma starði á mig
með augum sem hefðu getað
drepið. Henni fannst ég ekk
ert sérstaklega þroskað ferm
ingarbarn. Fermingarmyndin
mín er skólabókardæmi um
að það er von fyrir alla.“
„Ég man að mér þótti þetta hátíðlegt allt saman og
nokkuð skemmtilegt. Ég fór svo í bíó um kvöldið.“
„Ég fór aldrei í fermingarmyndatöku því mér fannst
það svo lummó. En eins og alvöru fermingar
barn gat ég ekki beðið með að taka upp gjafirnar
og þá sér í lagi eina. Ég átti von á því nefnilega að
fá Sinclair Spectrumtölvu sem var aðalmálið á
þessum tíma. Ósk mín rættist og síðan hefur ekki
slökknað á tölvunum hjá mér.“
„Þvílíkur tími til að
fermast. Ég fór á
hárgreiðslustofu í
blástur fyrir athöfn
ina! Mánuði seinna
gerðu Pálmi, Helga
og Eiki Hauks slíkt
hið sama og stigu svo
á svið í Bergen með
fyrsta framlag okkar
í Eurovision.“
Eva Ruza, skemmti-
kraftur og gleðigjafi,
27.mars 1997
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Pétur Örn
Guðmundsson
tónlistarmaður,
31. mars 1985
Aron Leví Beck,
strjórnmálamaður,
13. apríl 2003
Hafdís Björg Kristjánsdóttir,
einkaþjálfari hjá World Class, 12. apríl 2001
„Eftirminnilegur dagur í alla
staði. Sérstaklega áhugavert að
enginn fugl hafi séð sér tæki
færi í því að búa til hreiður í
þessum fallega rauða makka
sem var á hausnum á mér.“
Valdimar Víðisson,
skólastjóri og formaður
fjölskylduráðs í Hafnarfirði,
3. maí 1992
Ólafur Páll Gunnarsson
útvarpsmaður, 1983
Karl Olgeirsson
tónlistarmaður,
31. mars 1986