Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Page 64
64 15. mars 2019
É
g er ekki ofbeldishneigð
manneskja,“ sagði 16 ára
unglingur, Christopher
Danko vich, við dómarann,
John J. McDonald, í dómsal í maí
árið 2006.
Hvort þau orð standist skoðun
verður ekki lagt mat á hér og nú.
Rúmu ári áður hafði Christo
pher stungið fimmtuga móð
ur sína til bana á heimili þeirra
í Rochester Hills í Michigan í
Bandaríkjunum.
Stungin 111 sinnum
Sextán ára að aldri stóð Christo
pher frammi fyrir dómaranum og
baðst afsökunar vegna verknað
ar síns, sem hann hafði framið 24.
apríl 2005.
Þá, fimmtán ára grunn
skólanemi, hafði drengurinn ráð
ist á móður sína, Diane Michele,
vopnaður litlum hnífi, og stung
ið hana 111 sinnum og stungið úr
henni annað augað.
Lík Diane fannst næsta dag en
Christopher var hvergi sjáanlegur.
Hann fannst þó þann sama dag í
kofa föður síns í NorðurMichigan.
Þangað hafði hann flúið og þegar
hann var handtekinn var hann vel
útbúinn til útilegu.
Verkfæri Guðs
Þegar dómarinn spurði Christo
pher hvernig honum liði, svaraði
hann: „Ég er bara sorgmæddur …
taugaóstyrkur.“ McDonald hafði
leitt hugann að því hvort samfé
laginu stafaði hætta af Christo
pher þegar hann losnaði úr fang
elsi og því farið fram á sérfræðiálit
sálfræðings.
Af áliti sálfræðingsins mátti
ráða að Christopher hefði talið
sig vera á sérlegri vegferð á veg
um Guðs. Verkefnið var að vernda
börn.
Heimasmíðuð vopn
Móðir Christophers hafði sett ofan
í við hann vegna heimasmíðaðra
vopna hans, sem átti beita gegn
fylgendum fóstureyðinga og þeim
sem framkvæmdu þær, sem og
þeim sem hugnaðist barnaklám
og framleiddu.
Aðfinnslur móður hans féllu
ekki í góðan jarðveg og átti
Christopher til að slá til hennar
þegar svo bar undir.
Dómarinn spurði Christopher
hvaðan sú sannfæring, að hann
væri í herferð á vegum Guðs, væri
runninn, en Christopher vildi ekki
fjölyrða um það: „Ég kæri mig ekki
um að ræða það … Allt fór í handa
skolum.“
Hugsanleg áhrif móður
Við málsmeðferðina var einnig
ymprað á bréfi sem dómaranum
hafði borist, en ekki var upp
lýst hver sendandi bréfsins var.
Verjandi Christophers, Mitchell
Ribitwer, sagði að í bréfinu væri
ýjað að tilfinningalegri drottnun
móður Christophers í garð sonar
síns, að hún hefði reynt að móta
þankagang hans.
Á þeim nótum hafði verj
andinn einnig orð á því að frá því
að Christopher myrti móður sína
hefði hann verið í meðferð þar
sem honum var hjálpað að takast
á við þær ranghugmyndir að hann
væri verkfæri Guðs.
Frá Biblíu til vígahópa
Ribitwer sagði einnig að
Christopher sæi þegar þarna var
komið sögu „villu síns vegar“ og
deginum ljósara að móðir hans
hefði ekki gert sér grein fyrir
ástæðum vopnagerðar hans.
„Þetta kom þeim í opna
skjöldu,“ sagði Ribitwer. Frá því
að vera hugfanginn af Biblíunni
fór Christopher af vafra í netheim
um, á slóðum andstæðinga fóst
ureyðinga. Þaðan lá síðan leiðin á
síður vopnaðra vígahópa.
Vildi bjarga börnum
„Í eigin huga var Chris einfaldlega
í leiðangri fyrir Guð. Hann trúði á
æðri yfirvöld og móðir hans skyldi
ekki fá að hindra hann. Hann var
að reyna að stöðva þá sem fram
3 börn urðu fórnarlömb geðbilunar bandarísku konunnar Angelu Camacho þann 11. mars 2003. Angela og sambýlismaður hennar, John Allen Rubio, voru ákærð fyrir að hafa myrt þrjú börn hennar;
Julissu, þriggja ára, Mary Jane, tveggja mánaða, og John Esthefan, eins
árs. John Allen var faðir Mary Jane og Johns Esthefan.
Að sögn kyrktu Angela og John Allen dæturnar og afhöfðuðu að því
loknu. Síðan tók parið sér smá hlé, þreif sig og hafði kynmök, áður en það
sneri sér að syninum.
Ættingi þeirra hafði síðar samband við lögregluna, eftir að hafa fundið lík
stúlknanna og drengsins á heimili Angelu og Johns Allen í Brownsville í
Texas. Líkunum hafði verið troðið í ruslapoka. Lík drengsins lá í rúmi.
SAKAMÁL
MATSÖLUSTAÐUR
SKEMMTISTAÐUR
RÁÐSTEFNUR
ÁRSHÁTÍÐIR
VEISLUR
RÁIN ER ALHLIÐA VEITINGAHÚS
Í REYKJANESBÆJARhjarta
VILLTIST Á VEGUM GUÐS
n Christopher vildi bjarga börnum n Taldi sig vera verkfæri Guðs n Smíðaði sín eigin vopn til baráttunnar„Hann var að reyna að stöðva
þá sem framkvæmdu
fóstur eyðingar. Hann var að reyna
að stöðva barnaklám. Hann vildi
bjarga börnum.
Fimmtán ára Christopher Dankovich var
með ranghugmyndir um tilveru sína.