Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Síða 30
Stóra bílablaðið 15. mars 2019KYNNINGARBLAÐ Er bíllinn þinn yfirfarinn? Bifreiðaverkstæðið Bíljöfur er eitt það þekktasta á höfuðborgar­svæðinu og hefur frá stofnun sérhæft sig í viðgerðum og viðhaldi á Chrysler, Dodge og Jeep. Einnig sjáum við um allar almennar viðgerðir á öllum bíl­ tegundum. Þú færð allt á einum stað fyrir bílinn hvort sem það er að lagfæra bremsur, stýrisgang, vélar­ upptekningar eða upptekningu á sjálfskiptingu. Hjá verkstæðinu starfa þaulreyndir bifvélavirkjar með áralanga reynslu að baki. Þetta eru sannkallaðir reynsluboltar í faginu og eru jafnvígir á gamla sem nýja bíla. Bíljöfur hefur þá yfir að búa nýjustu tölvutækni og fullkomnum tölvubúnaði til þess að bilanagreina allar tegundir bíla. Mikilvægi þess að yfirfara reglulega Bíljöfur er alhliða bifreiðaverkstæði með BGS gæðavottun frá Bílgreina­ sambandinu. Vel yfirfarinn bíll tryggir öryggi ökumanns og farþega og því er gott að yfirfara bílinn reglulega. Að mörgu þarf að huga þegar kemur að reglulegu viðhaldi á bifreiðum og meðal þess sem þarf að skoða reglulega er staðan á olíu á vél, gírkassann, drifið, loftsíuna, sjálf­ skiptinguna, rúðuvökva, kælivökva og margt fleira. Við sjáum um að yfirfara bílinn fyrir þig og fyllum á, gerum við og skiptum út því sem þarf. Þar sem Bíljöfur er í góðu samstarfi við Bíljöfur – varahluti ehf., er verk­ stæðið með aðgang að fjölbreyttu úrvali varahluta, öllu sem þarf til að viðhalda bílnum á sem bestan og ódýrasta hátt sem völ er á. Ef hluturinn er ekki til á lager þá pöntum við hann með stuttum fyrirvara. Smiðjuvegi 34 (gul gata), 200 Kópavogi Sími: 544­5151 biljofur@biljofur.is BÍLJÖFUR – BIFREIÐAVERKSTÆÐI: Úrval varahluta í ameríska bíla! Bíljöfur – varahlutir ehf. býður aðeins hágæða varahluti til viðhalds og viðgerða á amerískum bifreiðum. Traustir og viðurkenndir aðilar Þegar kemur að því að skipta út varahlutum og gera við í bílum þá er mikilvægt að nota varahluti frá traustum og viðurkenndum aðilum. Við gerum sömu kröfur um gæði og endingu við val á varahlutum og eru gerðar hjá framleiðanda bílsins. Því getum við tryggt hámarks öryggi fyrir þig og bílinn. Úrval varahluta Við bjóðum upp á úrval varahluta í ameríska fólksbíla sem og jeppa og sendibíla. Sé varahluturinn ekki til á lager þá sérpöntum við hann frá viðurkenndum aðila, hvort sem það er original varahlutur frá Mopar, Ford, GM eða af eftirmarkaði frá t.d. Moog, Sachs, Gates, Timken, Centric eða öðrum viðurkenndum aðilum. Við erum með varahluti á lager í Chrysler, Jeep, Dodge og Ram, t.d. bremsu­ diska og bremsuklossa, höggdeyfa, hjólabúnað, vatnsdælur, reimar, síur og perur. Smiðjuvegi 72, 200 Kópavogi Sími 555­4151 varahlutir@biljofur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.