Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Qupperneq 2
2 23. ágúst 2019FRÉTTIR
sem ættu að vera með miklu hærri laun
Gæði fólks og
hæfni endur-
speglast ekki
alltaf í tölunni á
launaseðlinum,
eins og bersýni-
lega sést í nýju
Tekjublaði DV.
DV er á því að
mörg óskabörn
þjóðarinnar fyrr
og síðar ættu
að vera á miklu
hærri launum
og hér eru
nokkur af þeim.
Siggi Hlö
Siggi Hlö, eða Sigurður
Hlöðversson eins og hann
heitir fullu nafni, hefur verið
ötull við að skemmta land-
anum. Hann hefur lagt sig í
líma við að segja gamanmál
og spila goðsagnakennda
tónlist fyrir rallhálft fólk
í sumarbústöðum, en er
engan veginn borgað í sam-
ræmi við þá álagsvinnu.
Mánaðarlaun 2018:
31.572 kr.
Herbert
Guðmundsson
Hebbi getur sungið, samið
lög, búið til ís og útsett
tónlist – svo gefur hann
sér alltaf tíma fyrir aðdá-
endur. DV er á því að Hebbi
ætti að vera á margfalt
hærri launum fyrir það eitt
að vera þjóðargersemi.
Spurning um að hrinda
af stað söfnun svo hann
gangi ekki í burtu?
Mánaðarlaun 2018:
131.109 kr.
Tanja Ýr
Áhrifavaldurinn og feg-
urðardrottningin Tanja Ýr
Ástþórsdóttir er svakalega
dugleg, ung kona. Hún er
með bein í nefinu og lætur
fátt stoppa sig. Því rak
blaðamenn DV í rogastans
þegar að þeir flettu Tekju-
blaðinu og sáu að Tanja Ýr
er hlunnfarin þegar kemur
að launum.
Mánaðarlaun: 92.874 kr.
Ævar Þór
Ævar vísindamaður, sem
heitir réttu nafni Ævar
Þór Benediktsson, hefur
skilað gríðarstóru framlagi
til íslenskrar menningar.
Hann er leikari að mennt
en hefur skrifað ótal bækur
sem hafa slegið í gegn hjá
ungviðinu og slegið ýmis met
í bókasölu. Tvær af þessum
bókum hafa verið settar upp
sem leikrit og því er hneisa
að Ævar skrimti á lágmarks-
launum.
Mánaðarlaun: 218.544 kr.
Magnús Scheving
Sjálfur Íþróttaálfurinn
á auðvitað að hafa það
þrusu gott. Hann hefur
stuðlað að heilbrigðari lífs-
stíl hjá unga fólkinu okkar
sem erfir landið og lagt sín
lóð á vogarskálarnar til að
sporna gegn lífsstílssjúk-
dómum. Af hverju hann
uppsker ekki í samræmi við
það er okkur hulin ráðgáta.
Mánaðarlaun 2018:
124.755 kr.
Á þessum degi,
23. ágúst
79 – Hræringa verður vart í eldfjallinu
Vesúvíus á hátiðisdegi Vulcan, hins
rómverska guðs elds og eldfjalla.
Síðustu orðin
„Sjáumst eftir fimm mínútur“
– Leikarinn Paul Walker
1305 – Sir William Wallace er tekinn af
lífi fyrir landráð í Smithfield í London.
1572 – Ofbeldi í garð húgenotta í París
leiðir til Bartólómeusarvíganna, aðfara-
nótt Bartólómeusarmessu.
1831 – Þrælauppreisn Nats Turner er
bæld niður.
Ráðalausri barst henni aðstoð úr óvæntri átt
O
rðatiltækið „Þegar einar
dyr lokast, opnast aðrar“, á
einkar vel við þegar kemur
að sögu Guðrúnar Ólafs-
dóttur en fyrir þremur árum um-
turnaðist líf hennar.
Guðrún, sem hafði lengi starf-
að sem bókari, missti vinnuna og
stóð ráðalaus með uppsagnarbréf
í höndunum þegar henni barst að-
stoð úr óvæntri átt.
„Ég vissi ekkert hvert ég vildi
stefna en skyndilega heyrðist
kunnuglegt blikkhljóð úr tölv-
unni þar sem gamall bekkjarbróð-
ir minn spurði hvernig ég hefði
það. Við höfum lært saman í
Englandi, en þarna voru liðin þrjá-
tíu og fimm ár frá því við töluðu-
mst við. Mér fannst þetta undar-
leg tilviljun og fannst heldur leitt
að þurfa segja honum að ég hefði
verið að missa vinnuna. Ég sagðist
því vera upptekin, en seinna um
kvöldið kom hann aftur á spjall-
ið og við hófum samtal sem stóð
allt kvöldið. Að endingu viður-
kenndi ég að ég væri nýlega orðin
atvinnulaus og í kjölfarið spurði
hann mig hvað ég hygðist gera í
framhaldinu. Mér varð svarafátt en
sagði í rælni að kannski myndi ég
bara fara að selja sokka, en hann
er tyrkneskur og rekur sokkaverk-
smiðju. Honum fannst þessi hug-
mynd mín stórgóð og hvatti mig
óhikað til að láta slag standa. Ég
sagðist hvorki hafa fjármagn né
kunnáttu til þess enda þekki ég
lítið til textíls eða efnisframleiðslu.
Hann lofaði að hann skyldi hjálpa
mér og að endingu var þetta alls
ekki svo galin hugmynd.“
Lagði land undir fót og kynnti
vöruna fyrir landsmönnum
Uppsagnarfrestinn nýtti Guðrún
svo til að koma nýja fyrirtækinu
á fót sem hún segir að hafi verið
erfitt ferli enda margt nýtt að setja
sig inn í.
„Við byrjuðum á því að búa
til heimasíðu, sem dóttir mín
hjálpaði mér við, ásamt því að
finna nafn á vörumerkið. Þannig
urðu Socks2Go að veruleika. Ég
fór nokkrar ferðir að heimsækja
verksmiðjuna, skoða vörurnar
og hafa gæðaeftirlit með fram-
leiðslunni. Tíu mánuðum síðar
fékk ég svo tuttugu feta gám, full-
an af sokkum, til Íslands þar sem
ég hafði komið mér fyrir. Svo nú
gat ég byrjað að selja. En þá kom
upp ný áskorun; það vissi enginn
af okkur og ég hafði ekki fjármagn
til að leggjast í stórar auglýsinga-
herferðir. Því tók ég til þess ráðs að
leggja land undir fót og kynna vör-
una fyrir landsmönnum. Ég fyllti
bílinn af sokkum og keyrði af stað
í von um að orðspor af gæðum
sokkanna bærist manna á milli. Ég
gekk í hús, heimsótti fyrirtæki og
fór svo í eina og eina verslun sem
allar tóku vel á móti mér og vildu
selja sokkana. Oftar en ekki seldi
ég sokka úr skottinu á bílnum og
einu sinni þegar ég var að setja
bensín á bílinn, hópuðust verka-
menn í kringum bílinn og keyptu
sokka.“
Ótrúlegt ævintýri sem er rétt
að byrja
Í dag eru sokkarnir henn-
ar Guðrúnar fáanlegir í yfir 50
verslunum vítt og breytt um landið
en hún segir gæði og þægindi
þeirra, það sem laði viðskiptavin-
ina að.
„Þeir sem prófa vilja ekki aðra
sokka, það er svona mín reynsla,“
segir Guðrún og heldur áfram.
„Sokkarnir hafa sömuleiðis verið
til sölu í verslun einni í Bandaríkj-
unum og hefur viðskipta aðili inn-
an útivistargeirans gerst áhuga-
samur um að gera þá að sínu
eigin vörumerki. Eins hafa erlend-
ir ferðamenn keypt sokkana hér
á landi og haft samband. Í kjöl-
farið hef ég sent þeim sokka til
síns heima. Það er alveg ótrúlegt
að hugsa til þess að daginn sem
ég stóð með uppsagnarbréfið í
höndinni og hélt að mín biði langt
ferli í atvinnuleit, hafi lífið tekið
þessa óvæntu stefnu og nýjar dyr
hafi opnast að ótrúlegu ævintýri í
sjálfstæðum atvinnurekstri, sem
er bara rétt að byrja. Eitt er víst, að
ég nýt þessa ævintýris og það hef-
ur verið yndislegt að fá að ferðast
svona um landið.“ n
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
n Guðrúnu var sagt upp störfum og bjó sig undir atvinnuleit n En lífið greip í taumana