Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Page 4
4 23. ágúst 2019FRÉTTIR
G
rétar Þór Grétarsson, 55
ára karlmaður, hefur verið
ákærður fyrir kynferðisbrot.
Grétar Þór er vel þekktur á
meðal aðdáenda Elvis Presley hér
á landi. Hefur hann meðal annars
troðið upp á skemmtikvöldum
og viðburðum tengdum lög-
um kóngsins, ásamt fyrrverandi
mági sínum, Elvis-eftirhermunni
Jósef Ólafssyni. Notast hann við
sviðsnafnið Elvis Grétar.
Samkvæmt heimildum DV eru
brotaþolarnir að minnsta kosti
þrír talsins. Konurnar eiga allar
við þroskaskerðingu að stríða og
þekkjast innbyrðis. Samkvæmt
heimildum braut Grétar Þór á
tveimur kvennanna saman. Mál-
ið verður þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í dag, 23. ágúst.
Þá liggur Grétar Þór einnig
undir grun í öðru máli sem enn
er í rannsókn hjá Lögreglunni á
höfuð borgarsvæðinu. Þar er um
að ræða rökstuddan grun um kyn-
ferðis brot hans gegn kon u og of-
beldi gagnvart barn ungri dótt ur
hennar, auk þess sem hann á
að hafa ít rekað haft sam band
við kon una og ná tengda fjöl-
skyldumeðlimi henn ar með sím-
töl um og smá skila boðum.
Þann 20. ágúst síðastliðinn
staðfesti Héraðsdómur Reykja-
víkur ákvörðun Lögreglustjórans
á höfuðborgarsvæðinu um nálg-
unarbann á hendur Grétari gagn-
vart þeim mæðgum, en Grétar
hefur áfrýjað þeim úrskurði til
Landsréttar. Nálgunarbannið er til
sex mánaða.
Í greinargerð Lögreglustjóra
kemur fram að kona hafi átta
sinn um óskað aðstoðar lög reglu
á þriggja mánaða tíma bili. Fram
kemur að Grétar Þór hafi ít rekað
komið að heim ili kon unn ar og
meðal annars skemmt hurð á
íbúðinni og barið á glugga.
Athyglisvert viðtal
Á tíunda áratugnum, þegar karókí
var nýkomið til Íslands, komu
Grétar og Jósef fram í sjónvarps-
þættinum Dagsljós á RÚV þar sem
þeir ræddu þessa nýjung og sögðu
frá aðdáun sinni á Elvis Presley.
Fram kom að þeir syngju ein-
göngu lög eftir Presley í karókí.
„Maður er giftur og þá hef-
ur maður ekkert áhuga á að pæla
í öðru,“ svaraði Grétar Þór þegar
hann var spurður hvort hann yrði
var við meiri kvenhylli þegar hann
tæki lög kóngsins. Hann var síð-
an spurður hvort hann væri ham-
ingjusamlega giftur en þá stóð á
svörum:
„Já og nei. Maður hefur ekki
séð konuna sína í heilan mánuð.
Maður veit ekkert hvar hún er eða
neitt. Hún hvarf bara 6. desem-
ber og hefur ekkert sést síðan og
ekki einu sinni látið heyra í sér eða
neitt.“ n
Ábyrgð er ekki fyndin
S
varthöfði hefur gaman að
góðu gríni. Sérstaklega því
sem veltir samfélagi okkar
á koll og sýnir hversu mikl-
ir molbúar við erum í raun og
veru. Undirstrikar gullfiskaminni
þjóðarinnar og þá sjálfspín-
ingarhvöt sem samfélagið í heild
sinni er haldið. Svarthöfði getur
hlegið að því af því að hann er
vel menntaður, vel gefinn og læt-
ur ekki blekkja sig svo auðveld-
lega. Þess vegna er gaman að hía
á hina.
Grín getur náttúrulega verið
margs konar og ekki allir sem
fíla sama grínið. Svarthöfði hef-
ur lúmskt gaman af því að fylgjast
með einni tegund af gríni, sem á
í raun lítið skylt við grín – meira
frekju og yfirgang.
Svarthöfði er að sjálfsögðu að
tala um það þegar að fólk ákveður
að misnota stöðu sína og frægð til
að sópa yfir háalvarlega atburði
með gríni. Svona: Hei, ég var
rosa vond manneskja og eigin-
lega frekar ógeðsleg en í staðinn
fyrir að biðjast bara afsökunar
og játa vanmátt minn ætla ég að
semja nokkra brandara og hirða
af ykkur peningana. Síðan ætla ég
að leggjast upp í rúm í lok kvölds,
velta mér upp úr blóðpeningun-
um og hlæja að ykkur fávitunum
sem kokgleyptuð þessa vitleysu
og hugsa núna: Hei, þetta er nú
bara fín persóna eftir allt saman.
Áfram ég!
Þessi aðferð sem kennd er við
grín virkar svo vel að Svarthöfða
finnst magnað að stjórnmála-
menn noti hana ekki meira til að
breiða yfir axarsköftin. Þá væri
allavega gaman að horfa á fréttir
og fylgjast með umræðuþáttum –
þótt þeir snerust ekki um neitt vit-
rænt. Það sem Svarthöfða finnst
hins
vegar enn
magnaðra er
að þegar hann viðrar
þessa skoðun sína á
mannamótum hlaupa
allir óbermunum til varna. Saka
Svarthöfða um að eyðileggja fyrir
góðu fólki. Svarthöfði vill samt
minna á að gott fólk hleypur ekki
frá mistökunum og snýr þeim svo
upp í gróðadrifið grín án þess að
læra nokkurn skapaðan hlut. Gott
fólk hefur rænu á því að líta í eigin
barm, gangast við misgáningnum
og taka ábyrgð – ekki bara í færslu
á Facebook. En það er náttúru-
lega ekki jafn fyndið. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Hver er
hún?
n Hún er fædd 18.
júní árið 1954.
n Hún hefur komið
fram í sjónvarpi og
kvikmyndum.
n Hún á þrjú börn með frægum
tónlistarmanni.
n Hún hlaut fyrstu Edduverðlaunin
sem leikkona ársins 1999.
n Hún var þjóðleikhússtjóri á
árunum 2005–2014.
SVAR: TINNA GUNNLAUGSDÓTTIR
Hákarlar eru einu fiskarnir sem geta
deplað báðum augum samtímis.
Að meðaltali eru 333 blöð í hverri
klósettrúllu.
Árið 1985 var algengasti giftingaraldur
Íslendinga 20–24 ára, nú er hann 30–34
ár.
Coulrophobia er fræðiheitið yfir
ofsahræðslu við trúða.
Það eru bakteríur í rigningu.
„Elvis“ Grétar ákærður fyrir kynferðis-
brot gegn þroskaskertum konum
n Vel þekktur meðal Presley- aðdáenda n Að minnsta kosti
þrjár konur saka hann um ofbeldi n Nálgunarbann í gildi
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
„Maður hefur ekki
séð konuna sína
í heilan mánuð. Maður
veit ekkert hvar hún
er eða neitt. Hún hvarf
bara 6. desember.
Mikils metinn Grétar
gengur undir sviðsnafninu
Elvis Grétar í hópi áhuga-
manna um Elvis Presley.
Mynd: Skjáskot / YouTube
Í sveiflu Grétar tekur slagara
með Elvis Presley í karókí.
Mynd: Skjáskot / YouTube