Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 6
6 23. ágúst 2019FRÉTTIR
J
ónbjörn Breiðfjörð, leigubíl
stjóri hjá Hreyfli, segist hafa
orðið fyrir hrottalegri líkams
árás af hálfu kollega síns þann
22. júlí síðastliðinn. Meðal annars
hafi hann rifbeinsbrotnað, fengið
heilahristing, hlotið sár á hálsi og
tognað á hálsi. Jónbjörn hefur ver
ið óvinnufær síðan atvikið átti sér
stað og hefur raunar átt mjög erfitt
með ýmsar daglegar athafnir.
Jónbjörn er leyfishafi hjá
Hreyfli og fyrir nokkrum dögum
varð hann fyrir öðru áfalli þegar
opnað var að nýju fyrir möguleika
á því að meintur árásarmaður
keyrði fyrir Hreyfil, en áður hafði
verið lokað á hann. Jónbirni hafði
verið lofað því að umræddur mað
ur myndi aldrei aftur keyra hjá
Hreyfli. Núna hefur stjórn Hreyf
ils hins vegar ákveðið að heimila
honum það á ný á þeim forsend
um að ekki sé búið að kveða yfir
honum dóm. Jónbjörn kærði
árásina en langur tími getur liðið
þar til dómur verður kveðinn upp.
„Ofbeldið heldur áfram,“ segir
Jónbjörn um þetta, en auk þess að
þurfa að kyngja mögulegri endur
komu árásarmannsins segist hann
hafa mátt þola andstyggilegan
söguburð og slúður um sig í kjöl
far atburðarins. Þess má geta að
að unnusta Jónbjörns lést á síð
asta ári og nú bættist þetta áfall við
þann harm sem hann hefur þurft
að glíma við vegna þess.
Var velgjörðarmaður
árásarmannsins
Meintur árásarmaður ók bíl í
eigu Jónbjörns og á hans leyfi.
Mennirnir tveir þekktust áður og
hefur Jónbjörn liðsinnt mann
inum töluvert. „Ég borgaði fyrir
hann meiraprófið á sínum tíma,“
segir Jónbjörn sem lagði töluvert
af mörkum til að þessi fyrrverandi
félagi kæmist á rétta braut í lífinu.
Hann fékk hins vegar áhyggjur
af því að maðurinn væri kominn
í neyslu aftur. „Hann hefur glímt
við morfínfíkn auk þess að vera
sterafíkill. Þegar hann byrjaði að
fara aftur í ræktina fyrir nokkrum
mánuðum fór ég að verða var við
miklar skapsveiflur hjá honum og
óttaðist að hann væri kominn í
sterana aftur.“ Sjálfur er Jónbjörn
óvirkur alkóhólisti og hefur ekki
drukkið í tæp fimm ár.
Jónbjörn tók þá að kanna
akstursmynstur mannsins á bíln
um og þær niðurstöður voru slá
andi. Virtist honum ljóst að annað
hvort væri maðurinn að nota
bílinn mikið í allt annan akstur en
leigubílaferðir eða hann væri að
stinga undan fjármunum. „Flestir
leyfishafar hefðu sagt við hann að
hann væri að stela en ég sagði það
aldrei. Nýtingin var komin niður í
115 krónur á kílómetrann en með
alnýting er 200–230 krónur.“
Þegar Jónbjörn hafði samband
við manninn út af þessu sagðist
hann vera hættur og hann skyldi
bara sækja bílinn. „Ég fór til að
sækja bílinn en þessi maður býr
í heilsárshúsi í Vogum á Vatns
leysuströnd, einn með tveimur
Rottweilerhundum. Ég hafði
beðið hann um að tæma bílinn en
hann hafði ekki gert það. Því fór ég
sjálfur að taka dótið hans úr bíln
um. Þegar ég var inni í bílnum kom
hann að, reif upp hurðina, spark
aði í mig svo ég rifbeinsbrotnaði,
og þrýsti mér með svo miklum
ofsa á höfuðpúðann að mér var
ófært að verja mig,“ segir Jónbjörn
en hann hlaut, auk rifbeinsbrots
ins, sár og tognun á hálsi og mik
inn heilahristing.
„Hann hótaði mér öllu illu og
augun loguðu af illsku. Hann sagði
að hann myndi koma heim til mín
og skera mig á háls ef ég kærði
árásina.“
Ekki sér fyrir endann á af
leiðingunum árásarinnar. „Ég get
ekki ennþá hreyft augun til hægri
eða vinstri. Ég get ekki unnið og
núna ættu börnin mín, sem búa
hjá móður sinni, að vera hjá mér
en þau þurfa að vera hjá mömmu
því ég get ekki sinnt þeim.“
Klapplið í kringum
ofbeldismanninn
„Ég tók í höndina á nýjum fram
kvæmdastjóra Hreyfils sem sagði
að þessi maður myndi ekki fram
ar keyra fyrir félagið. En svo segir
hann mér stuttu síðar að stjórnin
hafi ákveðið að opna á hann aft
ur, þar sem ekki sé búið að dæma í
málinu. Hann geti ekkert í því gert,
það sé ákvörðun stjórnar. Ef hann
verði dæmdur muni hann hætta,“
segir Jónbjörn, sem er mjög
ósáttur við þá ákvörðun. Hefur
hann sent tölvupóst bæði á Hreyfil
og í stéttarfélag sitt, Frama, þar
sem hann segist ekki geta unnið
nálægt þessum manni framar og
neyðist til að greina fjölmiðlum frá
þessu.
„Mér finnst eins og það hafi
verið kippt í einhverja spotta
fyrir þennan mann. Það er eitt
hvert klapplið í kringum hann
sem breiðir út um mig kjaftasögur.
Þannig að ofbeldið heldur áfram.
Ég á til dæmis að vera farinn
að drekka aftur, en þær sögur
hafa víst orðið til vegna þess að
göngulag mitt er ekki eðlilegt eft
ir árásina, þar sem ég glími við
skert jafnvægisskyn. Ég er orðinn
mjög þreyttur á þessum söguburði
og hef hvatt til þess að ég verði þá
bara settur í áfengispróf. Ég skal
gefa blóð hvenær sem er.
Ég spyr mig aftur og aftur að því
hvers vegna þetta er látið viðgang
ast og hvers vegna Hreyfill kýs að
hygla ofbeldismanni með þessum
hætti,“ segir Jónbjörn að lokum.
Hreyfill vildi svara en svaraði
síðan ekki
DV hafði samband við fram
kvæmdastjóra Hreyfils, Harald
Axel Gunnarsson. Hann brást vel
við erindi blaðamanns en bað um
að fá það skriflegt. DV sendi hon
um þá eftirfarandi skriflega fyrir
spurn:
„Til mín hefur leitað Jón-
björn Breiðfjörð, leigubílstjóri hjá
Hreyfli, og sagt mér frá alvarlegri
líkamsárás sem hann varð fyrir af
hendi harkara hjá Hreyfli í sumar.
Frásögn Jónbjörns af árásinni er
trúverðug auk þess sem hann hefur
sýnt mér áverkavottorð.
Jónbjörn er ósáttur við að
stjórn Hreyfils hafi opnað fyrir
möguleika árásarmannsins til að
aka fyrir Hreyfil áfram (sá er þó
ekki með leyfi en getur ekið fyrir
aðra). Honum er tjáð að það gildi
þar til dómur liggur fyrir í málinu
en Jónbjörn kærði árásina. Hann
lítur á þessa ákvörðun sem áfram-
haldandi ofbeldi á hendur sér.
Hann kveðst einnig hafa orðið fyr-
ir miklum rógi og söguburði eftir
árásina.
Getur þú eitthvað tjáð þig um
málið? Getur þú varið ákvörðun-
ina? Hverjar eru almennar reglur
um aðgerðir þegar leigubílstjórar
eru grunaðir um lögbrot? Hvað
með öryggi farþega gagnvart bíl-
stjóra sem grunaður er um alvar-
legt líkamlegt ofbeldi?“
Ekki bárust svör frá Haraldi eða
Hreyfli fyrir birtingu fréttarinnar.
Ef þau svör berast verða þeim gerð
skil síðar í frekari fréttaflutningi af
málinu. n
Leigubílstjóri á Hreyfli óvinnufær í
kjölfar líkamsárásar vinnufélaga
Árásarmaðurinn má keyra áfram hjá Hreyfli
„Ofbeldið
heldur áfram
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is