Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Síða 20
2. ágúst 2019KYNNINGARBLAÐ 23.
Nú þegar hafa verið byggð yfir 170 hús á Íslandi og eru vinsældirnar alltaf að aukast.
Húsin eru enda rómuð fyrir styrkleika
og einstaklega góða hönnun sem
hentar íslensku veðurfari afar vel,“
segir Kjartan Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Húseiningar.
Tveggja þátta timburhúsin frá Hús-
einingu eru íslensk hönnun og fram-
leiðsla samkvæmt tilsettum stöðlum
og úr sérvöldu C 18–24 gæðatimbri.
Lofthæð húsanna er 2,8 metrar
og eru þau útbúin þýskum glugga
og hurðaprófíl úr PVC, sem tryggir
lágmarks viðhald. Húsin eru afar
sterkbyggð og umhverfisvæn og heil-
næmur íverustaður. Mikil loftun í öllu
burðarvirki tryggir gæði og endingu
húsanna. Með réttu efnisvali verður til
hús sem aldrei þarf að mála.
Úrval húsa frá Húseiningu
Húseining býður upp gott úrval af
stærri og smærri húsgerðum. Það
geta allir fundið gæðaheimili frá Hús-
einingu sem hentar þeim. Húseining
framleiðir tilbúin sumarhús og einbýl-
ishús í verksmiðju, allt að 120 fer-
metra, og einnig parhús, allt að 240
fermetra, með öllum innréttingum,
gólfhita, rafmagni og vatnskerfum,
flytja má í húsin strax og þau hafa
verið tengd heimæðum á bygginga-
stað. Einnig eru framleiddir forsteypt-
ir sökklar undir húsin.
Verksmiðja Húseiningar er stað-
sett að Hraunholti á Vogum og eru
framleiðsluferlar fyrirtækisins sér-
hannaðir með það að markmiði að
lágmarka kostnað. Í verksmiðjunni er
framúrskarandi aðstaða, þar sem
hægt er að framleiða og fullklára allt
að 240 fermetra hús. Þessi frábæra
aðstaða lækkar framleiðslukostn-
að og eykur gæði húsanna. Húsin
eru framleidd og afgreidd fullbúin
úr verksmiðju með baði, eldhúsi og
öllum innréttingum, tilbúin til flutnings
í samvinnu við Samgöngustofu um
leiðir á viðkomandi byggingarstað.
„Til að tryggja faglega gæðastýringu
við hönnun húsanna, fengum við til
liðs við okkur þá Kristin Ragnarsson
arkitekt, Þorgeir Jónsson arkitekt og
Emil Þór Guðmundsson bygginga-
tæknifræðing.“
Láttu drauminn um nýtt heimili eða
sumarbústað verða að veruleika með
Húseiningu.
Húseining er staðsett að Hraun-
holti 1, 190 Vogum.
Nánari upplýsingar má nálgast á
huseining.is
Allar frekari upplýsingar fást í síma
770-5144 eða með því að senda
tölvupóst á kjartan@huseining.is
Heimili er svo miklu
meira en bara bygging
Smart einbýli tilbúið til flutnings!