Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 26
PRESSAN
N
iðurstöður nýrrar rann-
sóknar valda mörgum
miklum áhyggjum en í
þessari rannsókn var af-
staða fólks um allan heim til bólu-
setninga könnuð. Bólusetningar
hafa verið töluvert í umræðunni
í kjölfar mikils fjölda mislinga-
smits í Evrópu og Bandaríkjunum
á undanförnum misserum. Sam-
hliða þessari aukningu á smiti hef-
ur vantrú fólks og efasemdir í garð
bólusetninga aukist og hafa sér-
fræðingar áhyggjur af þessu. Ekki
bætir úr skák að samfélagsmiðl-
ar eru óspart notaðir til að ala á
ótta og dreifa röngum og villandi
upplýsingum um bólusetningar
og meinta hættu sem er sögð stafa
af þeim. Spilað er á tilfinningar en
ekki staðreyndir og vantrú fólks
í garð yfirvalda og sérfræðinga.
Höfundar rannsóknarinnar segja
að þetta séu helstu skýringarnar
á af hverju vantrú og efasemdir í
garð einnar áhrifamestu uppgötv-
unar læknavísindanna hafa aukist
svo mikið, uppgötvunar sem hef-
ur bjargað milljónum mannslífa í
gegnum tíðina.
Rannsóknin náði til 140.000
manns í 160 ríkjum, þetta er því
stærsta rannsókn sinnar tegund-
ar. Í ljós kom að Evrópubúar eru
fremstir í flokki þegar kemur að
efasemdum í garð bólusetninga.
Verst er ástandið í austurhluta
álfunnar þar sem aðeins 40 pró-
sent íbúa telja bólusetningar ör-
uggar. Íbúar í fátækum Afríkuríkj-
um og hluta Asíu hafa hins vegar
miklu meiri trú á bólusetningum
og láta bólusetja sig og börn sín. Í
austanverðri Afríku og Suðaustur-
-Asíu sögðust 92 og 95 prósent að-
spurðra telja bólusetningar væru
öruggar.
Evrópska þversögnin
Rannsóknin var gerð fyrir Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunina WHO.
Niðurstöður hennar sýna að mikill
munur er á afstöðu fólks til bólu-
setninga á milli heimshluta. Stóra
myndin er þó að efasemdir um
bólusetningar fari vaxandi í þeim
ríkjum þar sem meðaltekjur eru
háar. Þetta veldur sérfræðingum
áhyggjum. Áður fyrr létu foreldr-
ar bólusetja börn sín án þess að
hugsa neitt frekar út í það, en nú
hefur ákveðnum efasemdum ver-
ið sáð og fólk setur frekar spurn-
ingarmerki við hlutina. Finnst
mörgum ákveðin þversögn í að
í Evrópu, heimsálfunni þar sem
menntunarstig og lífsskilyrði eru
best, séu efasemdirnar mestar.
Bent hefur verið á að hér skipti
ungar mæður miklu máli. Þær séu
fullar sjálfstrausts og hafi miklu
meira aðgengi að upplýsingum en
fyrri kynslóðir og vilji sjálfar taka
ákvarðanir. Þá séu bóluefnin fleiri
en áður og því margt sem þurfi að
taka afstöðu til. Á undanförnum
misserum hefur mikil umræða átt
sér stað í ríkjum á borð við Jap-
an, Írland og Danmörku um hvort
hpv-bóluefnið, sem ungar stúlkur
geta fengið gegn leghálskrabba-
meini, sé hættulaust. Í Dan-
mörku var umræðan hávær og
fyrirferðarmikil og varð um tíma
til þess að bólusetningarhlutfall-
ið var ansi lágt. Fregnir voru flutt-
ar af stúlkum, sem höfðu fengið
þessa bólusetningu og glímdu við
erfið veikindi í kjölfarið. Ítarlegar
rannsóknir voru gerðar á þessu og
kom þá í ljós að stúlkurnar höfðu
áður glímt við margs konar veik-
indi, bæði andleg og líkamleg, og
að engin tengsl voru á milli bólu-
efnisins og veikinda þeirra. Eftir
að niðurstöðurnar lágu fyrir hefur
bólusetningarhlutfallið aftur far-
ið upp og er nú hátt og umræðan
hefur lognast út af.
Í Frakklandi, Þýskalandi og
Bandaríkjunum hafa bólusetn-
ingar gegn mislingum verið
kveikjan að heitum umræðum og
vaxandi vantrú foreldra á þeim og
hefur þeim fjölgað sem ekki vilja
láta bólusetja börn sín. Á Ítalíu
er sömu sögu að segja. Þar hafa
andstæðingar bólusetninga rek-
ið harðan áróður á undanförnum
árum og hafa sérstaklega notað þá
sögu að bóluefnin gegn misling-
um, rauðum hundum og hettu-
sótt auki hættuna á einhverfu hjá
börnum. Í Bandaríkjunum hefur
Donald Trump forseti lagt sitt af
mörkum til að styðja þessa sögu.
Hún hefur lengi verið á kreiki en
hefur ítrekað verið afsönnuð með
vísindarannsóknum en samt sem
áður virðist hún eiga góðan hljóm-
grunn hjá stórum hópi fólks.
26 23. ágúst 2019
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Efasemdir Evrópubúa um bólusetningar stinga í augun
n Vantrú fólks og efasemdir um gagnsemi bólusetninga aukist - Minnsta trúin á bólusetningum er Frakklandi
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. Rafrænir innri ferlar
eru te gdir við þjónust gátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
tjórnun á
stóran þátt í góðum
árangri fyrirtækja.
OneQuality er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneRecords er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjórnend r hafa yrsý yr gang mála
in a fyrirtækisins og notendur
geta á einfald máta sótt
lista yr þau mál sem þei
bera ábyrgð á.
Vilt þú koma
skjalamálunum
í lag?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Records
Mála- og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.one.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057
Illt í efni
Vantrú foreldra á bólusetningum hefur
aukist til muna. Mynd: Getty Images
„Í fátækum ríkjum á borð við
Afganistan og Pakistan hefur
það hægt á tilraunum til að útrýma
lömunarveiki að ósannur orðrómur er
á kreiki um bóluefnin og hafa margir
neitað bólusetningum vegna þess