Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Blaðsíða 30
30 FÓKUS 23. águst 2019
Listakonan Íris Stefanía Skúladóttir hefur um
langa hríð kannað kynhegðun kvenna í verkum sín-
um en hún gaf nýverið út bókina Þegar ég fróa mér
– þrjátíu og eitthvað sjálfsfróunarsögur frá konum.
Bókin vakti mikla athygli og í kjölfarið setti Íris á stofn
vettvang þar sem konum gefst færi á að hittast og
ræða upplifun sína í tengslum við sjálfsfróun.
É
g kalla þetta söguhring,
en þeir eru bæði opnir og
lokaðir hópar sem hittast
og ræða sín á milli,“ seg-
ir Íris þegar blaðamaður sótti
hana heim. „Í kjölfar bókar-
innar og þeirra viðtaka sem
hún fékk fannst mér ég knúin
til að halda áfram með þetta
konsept. Það er að segja að
safna sögum kvenna og deila
þeim áfram. Að þessu sinni
boða ég konur saman í lokað-
an sjálfsfróunar söguhring þar
sem við tölum opinskátt um
þetta efni. Síðan mun ég standa
fyrir sams konar viðburði, en
þá er opið fyrir öll kyn að mæta
og mun hann meira líkjast sýn-
ingu en lokuðum saumaklúbbi
eða trúnói eins og í lokaða hr-
ingnum. Samhliða útgáfu bók-
arinnar sem og opna- og lok-
aða söguhringnum held ég úti
heimasíðunni whenimastur-
bate.world.
Stefnan er að safna þangað
inn sögum sem að endingu
munu verða að risastóru
safni af sjálfsfróunarsög-
um kvenna alls staðar að úr
heiminum.
Að mínu mati er mikilvægt að
konur geti deilt sinni reynslu og
þori að segja frá sínum löngun-
um. Verkferlið að baki bókinni
gekk mun betur en mig hefði
grunað og áður en ég vissi af
streymdu til mín sögur. Verk-
efnið var því fljótt að vinda upp
á sig og að ending urðu frá-
sagnirnar uppspretta bókar-
innar þar sem rúmlega þrjátíu
konur segja frá sinni reynslu.
Bókin vakti mikla athygli og í
kjölfarið vildu fleiri konur deila
sinni reynslu og þaðan spratt
hugmyndin að söguhringnum.“
Sömdu sérstakt sjálfsfróunarlag
Íris leggur áherslu á að unaður,
tabú og skömm séu meginefni
umfjöllunar sinnar en sjálfsfró-
un sé alltaf útgangspunkturinn.
„Verkefni mín eiga það sam-
eiginlegt að skapa vettvang þar
sem unaður kvenna fær rými til
að vera kannaður á sínum eig-
in forsendum. Eins og staðan
er núna er ég með söguhringi
bæði á íslensku og ensku, en ég
safna jafnframt sögum á báð-
um tungumálum. Með tímanum
ætla ég að færa þetta alfarið yfir á
ensku enda er það langaðgengi-
legasta formið. Þegar ég held
söguhringi hérlendis með ís-
lenskumælandi fólki tala ég samt
auðvitað íslensku. Ég hef fengið
til liðs við mig fleira listafólk, en
ég spjallaði snemma í ferlinu við
þær Siggu Eiri og Völu úr hljóm-
sveitinni Evu og bað þær að deila
sögu. Við erum allar góðar vin-
konur og að endingu ákváðu
þær að semja sérstakt sjálfsfró-
unarlag sem þær deildu á fyrsta
opna söguhringnum.
Íris setti sig jafnframt í samband
við Sísí Ingólfsdóttur, vinkonu
sína, en hún stundar meistara-
nám við myndlist. „Mig vantaði
klúta fyrir fólk til að nota í opna
söguhringnum og hún kom fljótt
með frábæra hugmynd að klút-
um sem ég kynnti strax í fyrsta
söguhringnum og notið hafa
mikilla vinsælda síðan þá.“
Konur fá fjölbreyttar fullnægingar
Íris stundar í dag nám í sviðs-
listum við Listaháskóla Íslands
en hún segir áhugann á kyn-
hegðun fólks alltaf hafa blundað
í henni. „Mig langar að rann-
saka allar hliðar kynhegðun-
ar með fókuspunkt á sjálfsfróun
kvenna í augnablikinu. Ég skoða
Unaður kvenna
fær rými til að
vera kannaður
n Íris Stefanía Skúladóttir kannar
kynhegðun kvenna n Setti á stofn
söguhring um sjálfsfróun
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
Myndin var tekin
eftir söguhring sem
var haldinn um daginn.
Gestir fá drykki og þarna
má sjá þvottastykkin
sem Sísí Ingólfsdóttir
hannaði og bjó til. Hvert
og eitt er handgert með
graffitípíku á.
Íris Stefanía Skúladóttir við útgáfu bókarinnar.
Mynd: Stefán Karlsson.