Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2019, Side 40
23. ágúst 2019
34. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Nýtt bílaplan á Krókhálsi 9
benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 10-14
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
KIA SORENTO LUXURY
Nýskráður: 2015 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 83.000 km.
Verð: 4.290.000 kr.
Rað.nr. 112716
RENAULT CAPTUR INTENS
Nýskráður: 2017 / Bensín
Sjálfskiptur / Ekinn: 13.000 km.
Verð: 2.890.000 kr.
Rað.nr. 445780
NISSAN X-TRAIL ACENTA PLUS
Nýskráður: 2017 / Dísel
Beinskiptur / Ekinn: 106.000 km.
Verð: 3.190.000 kr.
Rað.nr. 445715
CHEVROLET ORLANDO
Nýskráður: 2015 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 38.000 km.
Verð: 3.290.000 kr.
Tilboð: 2.790.000 kr.
Rað.nr. 340241 -5
00
.0
00
OPEL MOKKA
Nýskráður: 2015 / Dísel
Beinskiptur / Ekinn: 144.000 km.
Verð: 1.990.000 kr.
Tilboð: 1.490.000 kr.
Rað.nr.740316 -5
00
.0
00
4X
4
MMC PAJERO
Nýskráður: 2016 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 80.000 km.
Verð: 5.490.000 kr.
Rað.nr. 740389
4X
4
SSANGYONG TIVOLI HLX
Nýskráður: 2017 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 46.000 km.
Verð: 3.190.000 kr.
Rað.nr. 445767
4X
4
SSANGYONG KORANDO
Nýskráður: 2011 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 84.000 km.
Verð: 1.790.000 kr.
Tilboð: 1.490.000 kr.
Rað.nr. 720064 -3
00
.0
00
Glæsilegt úrval – frábær kjör!
Birt með fyrirvara um mynd- og textabrengl
Hagsýn
húsmóðir!
Sólrún sparigrís
S
ólrún Diego, áhrifavald-
ur á sviði þrifa, og ný-
bakaður eiginmaður
hennar, Frans Veigar
Garðarsson, festu kaup á ein-
býlishúsi í Mosfellsbæ í fyrra.
Húsið er 320 fermetrar og var
kaupverð tæpar hundrað millj-
ónir. Húsið er glæsilegt í alla
staði og ku vera eitt best þrifna
hús landsins. Afborganir af
slíku húsnæðisláni, ef miðað er
við áttatíu prósenta lán, eru að
lágmarki um 250 þúsund krón-
ur á mánuði. Sólrún hefur hins
vegar verið með mánaðartekjur
um og yfir 320 þúsund krónum
tvö ár í röð ef marka má Tekju-
blað DV og Frans var með tæp-
lega 340 þúsund í mánaðarlaun
í fyrra. Það er því ljóst að hjónin
kunna listina að spara – list sem
fleiri mættu tileinka sér.
F
acebook-hópurinn
Brauðtertufélag Erlu og
Erlu varð til í léttu gríni
í vor en það eru þær
Erla Hlynsdóttir og Erla Gísla-
dóttir sem standa að hópn-
um. Hin fyrrnefnda seg-
ir hugmyndina hafa kviknað
föstudagskvöld eitt þegar hún
hóf leit á internetinu að hóp
þar sem hægt væri að fá ráð-
leggingar varðandi brauðtertur.
„Ég er mikil áhugakona um
brauðtertur og segi við nöfnu
mína að hún megi endilega
láta mig vita ef hún finnur slík-
an hóp, en það gerist bara ekki.
Þá legg ég til að við tökum
málin í okkar eigin hendur og
stofnum sjálfar hóp. Ég bý þá
til hóp, set inn fallega mynd af
brauðtertu og geri Erlu Gísla-
dóttur að stjórnanda með mér.
Þetta fannst okkur svakalega
fyndið og ég reiknaði með að
við yrðum kannski tíu í þessum
hóp. Yfir helgina urðu félagarn-
ir hins vegar hundrað talsins
og nú eru tæplega átta þús-
und félagar í Brauðtertufélagi
Erlu og Erlu. Snemma var far-
ið að kalla eftir einhvers konar
viðburði, brauðtertukeppni
eða þvíumlíku, og við erum
í raun að svara því kalli nú.
Brauðtertukeppnin mikla mun
fara fram í Listasafni Reykja-
víkur á Menningarnótt milli
klukkan 14 og 16.“
Lofa skemmti-
legasta viðburði
Menningarnætur
Sjö flugmönnum sagt upp hjá Air Iceland Connect
S
jö af rúmlega fjörutíu
flugmönnum Air Iceland
Connect hafa misst
vinnuna það sem af er ári.
Er það tilkomið vegna aðstæðna
á markaði og samdráttar í far-
þegaflutningum, meðal annars
vegna fækkunar erlendra ferða-
manna. Rekstur innanlands-
flugs hér á landi hefur verið
þungur undanfarin ár. Bág staða
flugfélaga, fákeppni og hækk-
andi olíuverð vega þar þyngst
og eru neytendur langþreyttir á
háum flugfargjöldum, sem kosta
á við utanlandsferðir.
Greint var frá því á dögunum
að Air Iceland Connect hygðist
minnka flugvélaflota félagsins
og fækka vélum úr sex í fjórar.
Þá hefur félagið fækkað ferðum
til Egilsstaða og Ísafjarðar yfir
vetrar tímann og sömuleiðis
hætt að fljúga á milli Keflavíkur
og Akureyrar.
Í samtali við DV segir Árni
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Air Iceland Connect, að upp-
sagnir flugmanna tengist
fyrrnefndum aðgerðum flugfé-
lagsins.
„Við sögðum upp þremur
flugmönnum í júní og núna
um mánaðamótin er fjórum
sagt upp til viðbótar. Við erum í
raun að bregðast við aðstæðum
á markaði. Það er samdráttur í
hagkerfinu og við endurspeglum
þann veruleika. Það þarf að að-
laga fjöldann að starfseminni.“
Í desember síðastliðnum
kynnti starfshópur samgöngu-
ráðherra skýrslu þar sem lagt
var til að niðurgreiddir yrðu um
helming flugfarmiðar þeirra
sem hafa lögheimili í tvö til þrjú
hundruð kílómetra akstursfjar-
lægð frá höfuðborginni. Slíkt
myndi kosta ríkissjóð tæplega
milljarð á ári. Sigurður Ingi
Jóhannsson, samgöngu- og
sveitar stjórnarráðherra, hefur
lýst yfir stuðningi sínum við til-
löguna.