Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Page 20
20 24. maí 2019FRÉTTIR Í síðustu viku greindi DV frá máli hjónanna Pjeturs og Mayeth Gudmundsson, og dóttur þeirra, Aimee Áslaugu. Vísa á Mayeth úr landi vegna þess að fjölskyldan getur ekki sýnt fram á nægar tekjur, en hjónin hafa verið gift í næstum ellefu ár. Mayeth er frá Filippseyjum og dóttir þeirra, sem er tíu ára gömul, með tvöfalt ríkisfang. Fjölskyldan býr nú óvissu og býst við brottvísun Mayeth með lögregluvaldi. Fresturinn rennur út í dag, föstudaginn 24. maí, og eftir það verður Útlendingastofn- un að taka ákvörðun. Síðan bréf- ið barst hefur ekki verið haft sam- band við hjónin. Mayeth skilur ekki íslensku og Pjetur á erfitt með að fylgjast með fréttum í sjónvarpi og á tölvuskjá vegna veikinda. Fer ekki út úr húsi Mál Pjeturs og Mayeth var rætt á Alþingi í vikunni en það var Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sem spurði ráðherra út í óréttlætið. „Við höfum líka mannúð og í þessu tilviki, þegar við erum að tala um svona mál, að við erum að fara að sundra fjölskyldu og við erum að senda móðurina úr landi. Ég spyr: Er ekki eitthvað að svona kerfi, hæstvirtur forsætisráðherra? Og er það ekki í okkar höndum að reyna að koma í veg fyrir og girða fyrir að svona lagað geti átt sér stað?“ spurði Inga. Katrín Jakobsdóttir svaraði á þá leið að hún teldi fyllstu ástæðu til þess að þingmannanefnd færi yfir mál sem þessi. „Við teljum að það þurfi að skoða málsatvik betur. Það er auð- vitað mikilvægt að framkvæmd laganna sé með þeim hætti sem þingið ætlaði sér og vissulega er það svo, eins og háttvirtur þing- maður Inga Sæland nefnir, að mannúðarsjónarmið eiga þar að vera leiðarljós.“ Þrátt fyrir þetta hefur Pjetur ekkert heyrt meira frá Útlendinga- stofnun eftir að fréttin birtist. Í dag, föstudag, á Mayeth að vera farin af sjálfsdáðum úr landi. „Konan mín hefur ekki fengið nein bréf eða tölvupóst og við bíð- um bara. Dóttir mín hefur ekki far- ið í skólann og konan vill helst ekki fara út. Hún er algerlega niður- brotin,“ segir Pjetur sem ber sig vel, en það er augljóslega þungt yfir honum og málið hefur tekið á. Vill afsökunarbeiðni Pjetur hefur ekki fylgst vel með umræðunni um málið. Vegna veikinda og höfuðverkja á hann erfitt með að horfa lengi á sjón- varp og lesa af tölvuskjá. Hann er ánægður með að vakin hafi verið athygli á málinu, en ekki endilega sáttur við þá bylgju reiði sem gerði vart við sig á samfélagsmiðlum. „Reiði gerir engum gott, en óréttlæti þarf að leiðrétta,“ segir Pjetur. „Kannski er ég ósanngjarn en mér finnst Útlendingastofn- un skulda okkur afsökunarbeiðni. Þetta tekur á alla aðstandendur. Þetta hefur líka tekið svo langan tíma og svo mikið ósamræmi er í þessari meðferð. Ég veit um nokkra sem hafa útvegað sér falskan atvinnusamning og feng- ið kennitölu á þremur vikum. Eft- ir langt hjónaband ætti dvalarleyfi að vera sjálfsagður hlutur.“ Eruð þið búin að gera einhverj- ar ráðstafanir? „Nei, ég verð með kaffið tilbúið þegar þeir koma og vísa henni úr landi. Mann langar til að öskra og bölva og berja, en maður gerir það ekki. Þetta er orðið svo fáránlegt að maður tekur þessu með hálf- gerðu brosi. Ég er ekki bjartsýnn á að við fáum nokkur svör.“ Óvissa um tíma brottvísunar Útlendingastofnun hefur enn ekki svarað spurningum DV efnislega en áréttaði þó að þær tilvísan- ir sem stofnunin benti á í síðustu viku varðandi heimildir til að víkja frá skilyrðum hefðu verið rangar. Þær ættu einungis við um endur- nýjun dvalarleyfa. Engar heimild- ir eru til varðandi frumumsóknir. Bent hefur verið á að hægt sé að kæra málið og geti það þá farið alla leið upp í dómstóla. Ábyrgð- in á úrskurðinum er hins vegar hjá Útlendingastofnun og verði mál- ið ekki kært, eins og útlit er fyrir að verði raunin, þarf stofnunin að taka ákvörðun um brottvísun og hafa samband við lögreglu. Stofn- unin gat ekki svarað innan hvaða tíma það myndi gerast. nSmiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt n Fer ekki úr húsi n Fresturinn að renna út Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Mayeth og Pjetur bíða í óvissunni M Y N D IR : H A N N A /D V Mayeth Með bréfið um synjun á dvalarleyfinu.Aimee Áslaug Hefur ekki farið í skólann síðan bréfið barst. Pjetur og Mayeth Hafa ekki fengið frekari svör eða skýringar frá Útlendinga- stofnun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.