Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 22
22 UMRÆÐA Sandkorn 24. maí 2019 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Suðurlandsbraut 14 2. hæð 108 Reykjavík FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir Fréttastjóri: Kristinn Haukur Guðnason Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur Stundum er betra að flýta sér hægt S tundum er betra að flýta sér hægt. Fyrir jólin 2017 boðaði lögreglan mjög óvænt til blaðamanna­ fundar og greindi frá aðgerðum í því sem átti að vera stærsta mál skipulagðrar glæpastarfsemi í Ís­ landssögunni og með tengsl til tveggja annarra landa. Allir stór­ bokkar lögreglunnar stilltu sér upp, og nokkrir erlendir upp á skrautið einnig. Voru þeir búnir að handtaka Al Capone? Eða Pablo Escobar? Þvílíkar hetjur. Tilkynnt var um handtökur, gæsluvarðhaldsúrskurði, haldlagðar eignir, fíkniefni, peningaþvætti, fjársvik og svo mætti lengi telja. Upp var búið að ræta umsvifamikla erlenda mafíu sem hafði hreiðrað um sig á litla Íslandi. Þetta var stór dagur fyrir lögregluna. Síðan þá hefur töluverður vindur lekið úr blöðrunni og lög­ reglan hefur sjálfsagt viljað gleyma umræddum blaðamannafundi. En þar sem búið var að blása svo kröftuglega í lúðrana var ekki aftur snúið. Það yrði of mikil niður­ læging og auðvelt að rifja upp fundinn og spyrja lögregluna út í framgang málsins. Fleiri voru dregnir inn í málið, fólk með einhverja tengingu við meinta höfuðpaura og makar þeirra. Á einhverjum tímapunkti höfðu 28 einstaklingar stöðu grunaðs manns. Gengið var hart fram, húsleit gerð, farbönn sett á, bókhald fjarlægt, símahleranir framkvæmdar og svo fram vegis. Dómstólar hafa slegið á puttana á lögreglunni fyrir harðar aðgerðir hennar. Eftir níu mánaða meðgöngu vildi ráðuneytið framselja aðalbokkann í málinu til Póllands, þrátt fyrir að stærsti hluti brotanna hafi átt að vera framkvæmdur hér á landi. Þetta hefði verið auðveld leið til að losna við stóran hluta málsins. En dómstólar slógu aftur á puttana og stöðvuðu framsalið. Komið hefur í ljós að stór hluti eignanna sem lagt var hald á voru íbúðarhús með háum áhvílandi lánum. Hvar fíkniefnin eru getur enginn sagt til um. Verslanirnar þar sem peningaþvotturinn átti að hafa farið fram eru enn þá opnar og enn hægt að kaupa ljómandi góðar súrar gúrkur þar. Málið er nú komið inn til ákærusviðs lögreglunnar og þar verður tekin ákvörðun um næstu skref. Ekki er loku fyrir það skotið að einhverjir verði ákærðir og jafnvel dæmdir. Tíminn verður að leiða það í ljós. En ljóst er að málið gaf aldrei tilefni til hins mikla trumbusláttar í byrjun. Þá hefur fólk sætt rannsókn og verið bendlað við málið lengi með tilheyrandi kostnaði, óþægindum, andlegu álagi og skömm. Einnig læðist óneitanlega að manni sá grunur að ekki hefði verið farið eins að ef hinir meintu höfuð­ paurar væru ekki útlendingar. Þá er ótalinn kostnaður lögreglunnar sjálfrar vegna málsins. Stórt teymi hefur unnið að málinu lengi en málið kom fyrst inn á borð lögreglunnar árið 2016. Auðvitað á ekki að telja krónur eins og Jóakim Aðalönd gerir þegar um alvarleg sakamál er að ræða. En þegar öll kurl verða komin til grafar er líklegt að umfang rannsóknarinnar og aðgerðir hafi ekki hæft efninu. Sérstaklega er það blóðugt í ljósi þess að allir vita að lögreglan er fjársvelt, laun lág og aðbúnaður hennar landinu ekki til sóma. n Leiðari Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Farsakennd hegðun“ Merkilegt er að sjá Sigmund Davíð og flokksbræður hans í Miðflokknum stilla sér upp fyrir myndavélarnar og monta sig af málþófi vegna þriðja orkupakkans, skælbrosandi og glaðhlakkalegir. Sigmundur sjálfur hefur nú áður kveinkað sér undan mál­ þófi, þegar hann sjálfur var forsætisráðherra. Vorið 2014 kvartaði hann undan „þver­ móðsku stjórnarandstöðunn­ ar“ sem væru „lítil takmörk sett“ þegar verið var að ræða skuldaniðurfellingu, eða Leið­ réttinguna miklu eins og hún var kölluð. „Nánast farsakennd hegðun“ og „nýjar lægðir“ voru orð sem hann notaði þá. En hvað er farsakenndara en að þykjast vera rokkstjörnur fyrir það eitt að sólunda tíma þingsins? Tilgangslaus Persónuvernd Persónuvernd hefur nú úrskurðað að hljóðupptaka Báru Halldórsdóttur á Klaustur Bar hafi verið ólögleg. Ekki að það hafi skipt nokkurn mann máli í sjálfu sér. Tilgangsleysi málsóknar innar gegn Báru kristallast í því að henni er ekki gert að greiða sekt fyrir brot sitt. Sjálf hefur hún sagt að eftir litlu sé að slægjast hvort sem er, enda sé hún öryrki. Úrskurðurinn er því aðeins upp á formið. Til að réttlæta tilvist Persónuverndar sem stofnunar án þess að taka neina áhættu með beinum aðgerðum. Það má teljast afar hæpið er að skattfé almennings sé vel nýtt með þessu. Spurning vikunnar Ætlar þú að ferðast innanlands í sumar? „Jájá, eitthvert þar sem eru golfvellir.“ Eggert Snorri Guðmundsson „Já, en það er óákveðið hvert ég fer.“ Óskar Örn Bragason „Já, til Akureyrar og kannski á Austurlandið líka.“ Sólrún Jensdóttir „Nei, ég fer til útlanda á sunnudag og verð þar í allt sumar.“ Hildur Þórðardóttir Gaman í sjóferð Ferðamenn fóru á eldingarhraða á Þrumu II framhjá Sólfarinu við Sæbraut. MYND: HANNA/DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.