Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Qupperneq 34
Hvert skal leita? 24. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
„Lítið áramótaheit
sem breytti lífi mínu“
Ég byrjaði með Andlega einka-þjálfun fyrir fjórum árum, en hef nú í eitt ár eingöngu verið
að leiðbeina fólki við að koma sér í
andlegt form. Andleg einkaþjálfun er
hugsuð fyrir alla þá sem eru tilbún-
ir að vinna markvisst að því að ná
betri tökum á andlegri líðan,“ segir
Hrafnhildur J. Moestrup.
Einmitt það sem vantaði
„Það væri e.t.v. hægt að flokka nálgun
mína sem óhefðbundnari leið, ef við
miðum við að tímar hjá sálfræðingi
væru hefðbundin leið. En það er
akkúrat það sem mér fannst vanta
þegar ég var sjálf að hefja mína
andlegu vegferð; fleiri valkostir. Hvert
leitar fólk almennt þegar því líður illa?
Sama leiðin hentar ekki öllum og ég
fann mig sjálf ekki hjá sálfræðingi,
en greip þessa nálgun strax. Auð-
vitað er þetta misjafnt hjá öllum og
því er þetta val svo mikilvægt. And-
leg einkaþjálfun leiðbeinir fólki með
nánast allt sem viðkemur lífinu sjálfu
og hjálpar fólki að öðlast nýja og já-
kvæðari sýn á líf sitt.“
„Þetta byrjaði í rauninni allt hjá mér
þegar ég upplifði sjálf andlegt gjald-
þrot og var staðráðin í að koma mér
á betri stað andlega. Þetta var rétt
fyrir áramót og ég velti fyrir mér hvort
ég ætti að strengja áramótaheit
það árið, sem ég geri vanalega ekki.
Ég furðaði mig einmitt á því hversu
fljót ég var að beina huganum að
líkamlegu ástandi. Ef þú pælir aðeins
í því, hversu oft hefur þú hugleitt að
koma þér í betra líkamlegt form?
En, hversu oft hefur þú hugleitt að
koma þér í betra andlegt form? Það
eru mun færri sem huga að andlegri
heilsu og tengja líkamlega heilsu
frekar við heilbrigði. Þetta ætti raunar
að vera öfugt. Fólk ætti að byrja á
því að koma sér á betri stað andlega,
því það er sennilega besta formið
sem þú getur verið í. Svo getur annað
komið í framhaldinu.
Það sem ég þurfti virkilega á
að halda á þessum tíma var að fá
leiðsögn um hvernig ég kæmi mér í
andlegt form. Ég þurfti í raun and-
legan einkaþjálfara. Þaðan kemur
nafnið. Þetta er sennilega með fáum
áramótaheitum sem ég hef haldið,
því ég er enn að sinna því mörgum
árum seinna og er það orðið að lífsstíl
hjá mér. Í raun hefur þetta litla ára-
mótaheit algjörlega breytt mínu lífi.“
Sjálfsniðurrif sönglandi í hausnum
alla daga
Andleg einkaþjálfun er nálgun sem
byggð er á þerapíunni, Lærðu að
elska þig, eftir Guðbjörgu Ósk Frið-
riksdóttur. „Fyrir fjórum árum lærði
ég þessa þerapíu hjá henni Ósk og
strax eftir fyrsta tímann sá ég vissa
hluti í mínu lífi í nýju ljósi. Ég hafði
burðast með eitthvert mál úr barn-
æsku í fjöldamörg ár og Ósk gat látið
mig sjá það á einungis 90 mínútum.
Ég varð heilluð af þessari nálgun og
mig langaði sjálf að læra hana og
miðla henni áfram, því hún hjálpaði
mér svo mikið. Á undanförnum árum
hef ég mótað þerapíuna í takt við mig
og hvernig mér líður best að miðla
henni áfram út frá minni þekkingu og
reynslu.
Það sem kom mér hvað mest á
óvart var hversu margir eru staddir
á þeim stað að bara hreinlega elska
sig ekki. Margir eru með sjálfsniður-
rifs stefið sönglandi í höfði sínu alla
daga, allt árið um kring. Mér finnst
það svo sorglegt því það þarf ekki
að vera þannig. Fólk veit bara ekki
hvernig það á að læra að meta sig og
elska sig skilyrðislaust. Við einfaldlega
kunnum það ekki því okkur hefur ekki
verið kennt það.“
Notar eigin reynslu í meðferðina
„Ég hef tekið á móti fjölda fólks í fjög-
ur ár og er orðin snögg að átta mig
á hvernig best er að leiðbeina hverj-
um og einum. Reynsla mín leikur líka
stórt hlutverk í þjálfuninni og þegar
við á, deili ég með mínu fólki hvernig
ég hef sjálf nýtt þessa þjálfun til að
koma mér á betri stað andlega. Ég
er auðvitað ekki með neinn frípassa í
þessu lífi og fæ ýmis krefjandi verkefni
í hendurnar. En ég nýti þann fróðleik
sem ég bý yfir í hvert einasta skipti. Í
kjölfarið myndast sterkt samband á
milli mín og þeirra sem ég leiðbeini,
því þau fá líka að skyggnast inn í mitt
líf. Það er það sem mér þykir svo mik-
ilvægt, því ég hef sjálf verið á þeim
stað að þurfa að leita mér aðstoðar.“
Andleg fjarþjálfun
„Ástæðan fyrir því að ég býð upp
á Andlega fjarþjálfun er sú að það
eiga ekki allir jafn auðvelt með að
fara í viðtal hjá meðferðaraðila og
tjá tilfinningar sínar við ókunnuga
manneskju. Sú tilhugsun að jafnvel
gráta fyrir framan aðra getur fælt
fólk frá því að nokkurn tímann hefja
sína andlegu vegferð. Stundum
erum við einfaldlega ekki tilbúin til
þess að mæta á staðinn, en viljum
samt sem áður koma okkur á betri
stað andlega. Þá er andleg fjarþjálf-
un einstaklega góð leið. Þá færðu
send gögn til þín einu sinni í mánuði
í tölvupósti og þú ert að vinna með
fróðleikinn, verkefnin og fleira í einn
mánuð í senn. Þeir sem eru hjá mér í
6 og 9 mánaða fjarþjálfun fá einnig
val um að hitta mig á Skype einu sinni
í mánuði og fá þá þetta aðhald sem
við þurfum svo oft á að halda, í þessu
eins og svo mörgu öðru.“
Geggjað að sjá fólk blómstra
„Að fara í gegnum allt ferlið er
gríðarlega mikilvægt. Þegar ég
skoða árangurinn hjá þeim sem
koma til mín í 12 mánaða andlega
einkaþjálfun eða 9 mánaða andlega
fjarþjálfun þá hafa þeir öðlast svo
mikilvægan fróðleik og nokkurs konar
litla verkfærakistu til að grípa í þegar
lífið setur þá í krefjandi aðstæður.
Ég hef verið svo lánsöm að fá góð-
ar umsagnir frá mínu fólki og það er
ekkert betra en að fá að vera örlítill
partur af þeirra andlegu vegferð.
Skemmtilegasta umsögnin verður
að vera frá henni Kristborgu Bóel
sem ég var svo heppin að fá til mín
í þjálfun fyrir nokkrum árum. Hún
skrifaði bókina 261 dagur og hefur
sú bók mikla þýðingu fyrir mig þar
sem ég fékk að vera sögupersóna í
bókinni, eða andlegi einkaþjálfarinn.
Það er auðvitað geggjað að fá að sjá
fólkið sitt blómstra á þennan hátt.“
Umsagnir um Andlega einkaþjálfun
má lesa á vefsíðunni.
Nánari upplýsingar má nálgast á
andlegeinkaþjalfun.is
Fylgstu með á Facebook: Andleg
einkaþjálfun og Instagram: Andleg
einkaþjálfun.
Hafðu samband við Hrafnhildi
í netpósti: hrafnhildur@andle-
geinkathjalfun.is
Hrafnhildur J. Moestrup.ANDLEG EINKAÞJÁLFUN: