Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 52
52 24. maí 2019TÍMAVÉLIN
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI
Við segjum ekki skilið við Berg
þórshvol strax. Eftir að Eggert lést
lentu frænka hans og eiginmaður
hennar, Benedikta Haukdal, og
Runólfur Maack, í erjum við hjón
in Viðar Halldórsson og Rögnu
Bogadóttur á bænum Káragerði.
Aðeins eru um 400 metrar á milli
bæjanna og eitt sinn var þetta
sameiginleg jörð.
Harðvítugar deilur komu upp
á milli heimilisfólks sumarið 2017
og greindi DV frá þeim. Snerust
þær um aðkeyrslu að Káragerði.
Tvær leiðir eru að bænum, önn
ur fram hjá Bergþórshvoli og
önnur illfær. Hvorki sjúkrabílar
né slökkviliðsbílar komast þann
slóða. Vildi heimilisfólk á Berg
þórshvoli að Káragerðisfólk kæmi
sér upp eigin heimkeyrslu og
lögðu dráttarvél þannig að ekki
var hægt að keyra veginn að Kára
gerði.
„Þetta er náttúrulega bara
héraðsvegur,“ sagði Viðar í sam
tali við DV á sínum tíma en jafn
framt að hann vildi koma upp
eigin heimkeyrslu og losna við
að keyra fram hjá Bergþórshvoli.
„Þetta hafa verið leiðindasam
skipti þarna á milli og það koma
upp svona árekstrar. Við viljum
hafa sem minnst samskipti við
þau en alltaf þegar kemur eitt
hvað upp á, er það frá þeim.“
Viðar nefndi til dæmis að Run
ólfur hefði mokað möl upp úr
veginum og sturtað yfir á land
Káragerðis. Einnig að Benedikta
hefði hellt sér yfir barnabarn
þeirra á Facebook.
Kuldinn á milli fólksins átti sér
eldri rætur og báðar húsfreyjur
tengdust Eggerti Haukdal. Ragna
í Káragerði var systir sambýlis
konu Eggerts. Borgþórshvoll 1 var
kirkjujörð og bæði býlin buðu í
hana þegar kirkjan seldi. Var boði
Runólfs og Benediktu tekið.
Viðar sagði deiluna þó fyrst
og fremst snúast um hlunnindi,
til dæmis malartöku og veiðirétt
úr Affallinu, og sagði að fólkið á
Bergþórshvoli vildi ekki viður
kenna þau. Hafi Viðar til dæm
is ekki verið boðaður á fund hjá
veiðifélaginu þar sem Runólfur er
formaður.
„Káragerði hefur verið í veiði
félaginu frá því það var stofnað og
tekið þátt í allri uppbyggingu sem
hefur þurft að leggja fjármagn
í. Það fer ekkert á milli mála en
þetta vill hann ekki viðurkenna.“
Bergþórshvoll og Káragerði Veginum
lokað með traktor.
Suðurlandið er gósenland ná
grannaerja og þá sérstaklega
sveitirnar. Ein harðvítugasta
deilan hefur nú geisað í Langholti
í Árnessýslu í áratug. DV hefur ít
arlega gert grein fyrir deilunni á
milli Hreggviðs Hermannssonar
í Langholti 1b og nágranna hans,
Ragnars Vals Björgvinssonar og
Fríðar Sólveigar Hannesdóttur, í
Langholti 2.
„Hann reyndi að drepa mig,“
sagði Hreggviður í samtali við
DV í janúar árið 2018 um meinta
árás frá 21. desember árið áður.
Höfðu báðir aðilar þá kært hvor
annan til lögreglu. Ragnar og
Fríður vildu þó ekki ræða við fjöl
miðla.
Hreggviður sagði að þenn
an dag hefði hann séð hjónin í
Langholti 2 rífa niður vírgirðingu
sem aðskildi landareignirnar.
Hann hafi þá ætlað að stöðva
þetta. Hreggviður sagði:
„Ég var á eftir henni og var
að reyna að stíga á vírspottann.
Ragnar reyndi þá að keyra í veg
fyrir mig en ég komst fram fyrir
hann. Hann (Ragnar) reyndi að
keyra mig niður en ég stökk þá
upp á húddið til að bjarga mér.
Ég reyndi að halda mér þar með
annarri hendi en á meðan keyrði
Ragnar hring á lóðinni og meðal
annars í gegnum limgerði.“
Myndband og lögregluskýrsla
virtist staðfesta þetta og var
Ragnar ákærður um áramótin
2018/2019.
Sagðist Hreggviður hafa misst
takið og fallið til jarðar og sakaði
hann Ragnar um að hafa keyrt
yfir fætur sína. Eftir það hafi
Hreggviður staulast heim og loks
liðið yfir hann við matarborðið.
Eins og svo oft í nágranna
erjum í sveitum landsins snerist
deilan um hlunnindi og landa
merki. Árið 2005 var uppi mál
á milli bæjanna vegna veiði
réttinda í Hvítá. Vildi Hreggviður
meina að Ragnar og Fríður væru
að seilast inn á hans land. Hafa
ótal kærur borist og lögreglan
ítrekað þurft að skerast í leikinn.
Í sama mánuði og frétt DV birtist
greindi blaðið frá því að Hregg
viður hefði hlotið 30 daga skil
orðsbundinn dóm fyrir að stela
girðingarstaurum og sófasetti, og
einnig fyrir að hafa snúið upp á
hönd Fríðar. Taldi hann lögreglu
hafa misbeitt valdi sínu og nefndi
að dóttir Fríðar væri yfirmaður
hjá lögregluembættinu.
Vegi lokað
með dráttarvél Keyrt á
Hreggvið
Hreggviður Hermannsson Íbúi í
Langholti í Árnessýslu.
Mar á handlegg
Hreggviður sagði
nágrannann hafa reynt
að drepa sig.
Umfjölun heldur áfram á síðu 54