Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Síða 56
56 24. maí 2019
Þ
egar Carine Micha flutti
til Angleur, úthverfi Liege
í Belgíu, var hún fljót að
vinna hug og hjörtu ná
granna sinna. Hún sást tíðum á
hverfiskránum þar sem hún söng
karókí af miklum móð. Carine var
um þrítugt en virtist í reynd vera
mun yngri.
Það sem enginn vissi var að
undir gleðilegu yfirbragði leyndist
dapurleg fortíð. Foreldrar henn
ar voru áfengissjúklingar og höfðu
farið illa með hana. Henni hafði
verið nauðgað þegar hún var fjórt
án ára og fljótlega eftir það strauk
hún að heiman með fyrstu ung
lingaástinni en það samband fór
fljótlega fjandans til.
Þessa voru engin merki að sjá
þegar hún flutti til Angleur. Þar
flögraði hún um hverfið eins og
fiðrildi og ekki laust við að grunnt
væri á daðri hjá henni.
Karókí og bjór
Carine hafði ekki eingöngu yndi af
karókí því hún hafði einnig kolfall
ið fyrir bjór sem hún drakk nán
ast í tunnuvís. Þegar hér er kom
ið sögu var hún ekki fær um að ala
upp syni sína tvo, á táningsaldri,
sem hún hafði sjálf eignast ung að
árum. Hún bjó með dóttur sinni
og dró fram lífið á bótum.
Enga stefnu var að sjá í til
veru Carine, nema kannski fyrst
og fremst beint niður á við. Bjór
drykkjan gerði hana óútreiknan
lega og erfiða í samskiptum.
Eitt sinn er hverfisbúar skelltu í
sumarkarnival endaði Carine uppi
í rúmi með kvæntum nágranna
sínum. Næsta dag veittist eigin
kona mannsins að Carine á götu
úti. Hún hefði betur sleppt því,
því til áfloga kom og Carine sneri
eiginkonuna niður og sparkaði af
heift í höfuð hennar.
Hnífur í öxlina
Eftir þá uppákomu höfðu ná
grannar varann á sér í viðskiptum
við Carine.
Ekki skánaði ástandið við
næsta tiltæki Carine. Þannig var
mál með vexti að nýjasti kærasti
hennar, Lillo, bjó í sama fjölbýlis
húsi og hún, við Rue Vaudree,
reyndar gegnt hennar íbúð.
Nótt eina, eftir að hafa slokað í
sig nokkrum bjórum, tók hún sér
hníf í hönd, læddist inn til Lill
os, sem svaf værum svefni, og rak
hnífinn í öxl hans.
Sem betur fer fór hnífurinn
grunnt og Lillo, sem þó var í áfalli,
aftók að leggja fram kæru. Aftur
á móti taldi læknir Carine réttast
að hún sækti um skeið göngugeð
deild í fimm vikur og var dóttur
hennar komið fyrir í fóstri þann
tíma.
Geðdeild og gifting
Á göngudeildinni ríkti engin logn
molla í kringum Carine og var
engu tauti við hana komið. Carine
innbyrti kokteila áfengis og lyfja
við hinum ýmsu kvillum sem voru
annaðhvort raunverulegir eða
ímyndaðir.
Óði hundur hafði á samviskunni sjö mannslíf. Hans rétta nafn var Joseph L. Taborsky og hann var frá Connecticut í Bandaríkjun-
um. Árin 1956 og 1957 myrti Joseph sex manns í
vopnuðum ránum sem fengu viðurnefnið „Morð
óða hunds“. Sumt þess fólks sem varð á vegi hans
í þessum ránum slapp með skrekkinn; var skotið
eða barið, en lifði af.
Joseph naut þeirrar sérstöðu í Connecticut að
hafa í tvígang verið á dauðadeild fyrir aðskilda
glæpi. Sem fyrr segir hafði hann sjö mannslíf á
SAKAMÁL
MÓÐIRIN SEM VARÐ AÐ HVERFA
n Í upphafi var Carine vel liðin á meðal nágranna n Breyttist þegar bjórneyslan jókst n Gekk að lokum fram af öllum n Galt fyrir með lífi sínu„Við verðum
að losa okkur
við mömmu