Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2019, Blaðsíða 57
5724. maí 2019 Í einu slíku rúsi tilkynnti hún nágrönnum sínum í Angleur að hún væri að ganga í hjónaband. Brúðgumann hafði Carine hitt á göngudeildinni. Hann var helm­ ingi yngri en hún og þrátt fyrir að hann væri stórskorinn maður þá virtist hann afar lítill inni í sér. Í hvert einasta skipti sem hann opnaði munninn þá varð hann svo niðurlútur að engu var líkara en hann væri að skoða skóna sína. Skammlíf hjónabandssæla Carine velti öllu slíku lítið fyrir sér, „Innst inni er ég svo rómantísk,“ sagði hún. Hún klæddi sig í síð­ an, hvítan brúðarkjól og spígspor­ aði niður götuna til ráðhússins þar sem hún og hinn ónafngreindi, óframfærni brúðgumi voru gefin saman. Á meðan Carine rölti þang­ að mátti heyra nágranna henn­ ar hvísla: „Hér kemur frú Pompa­ dour,“ með skírskotun til hinnar eyðslusömu og metnaðarfullu hjá­ konu Loðvíks XV. Frakklandskon­ ungs. Engum sögum fer af brúð­ kaupsnóttinni á 11. hæð fjölbýlis­ hússins við Rue Vaudree, en áður en vika var liðin sást til Carine þar sem hún sparkaði hinum áláns­ sama eiginmanni út um aðaldyrn­ ar og beint út á götu. Segir ekki meira af honum. Ofbeldisfullur ástmaður Carine fann sér snarlega nýjan ástmann. Sá var ekkert líkur eigin­ manni hennar. Richard Dulapa var ofbeldisfullur alkóhólisti og óhætt að segja að þar hafi skratt­ inn hitt ömmu sína. Eitt sinn ók hann á Carine á vespunni sinni, hann gekk í skrokk á Carine og dró hvergi af sér við barsmíðarn­ ar. Punktinn yfir i­ið setti Richard þegar hann braut allt og bramlaði í íbúð Carine. Einn nágrannanna fékk sig fullsaddan og lét Richard bragða í sínum eigin meðulum. Árangur­ inn varð sá að Richard hand­ leggsbrotnaði, fótleggur brákaðist og hann sat uppi með stálplötu í höfðinu. Þetta gerðist í desember árið 2007. Svikalogn og eldsvoði Lagðist þá ró yfir hverfið, sem íbúar sennilega treystu varlega á. Dagar urðu að vikum, sem urðu að mánuðum og á allraheilagrames­ su árið 2008 dró til tíðinda svo um munaði. Eldtungur teygðu sig út um glugga íbúðar Carine og slökkvi­ liðsmönnum varð fljótlega ljóst að um íkveikju var að ræða, enda börðust þeir við eld á ótal stöðum. Þegar þeir höfðu ráðið niðurlögum eldsins fundu þeir lík Carine og Richards sótsvört, hlið við hlið í stofunni. Þau höfðu þó ekki orðið eldinum að bráð því hvort tveggja var búið að stinga þau margsinnis með hníf og þau síðan skorin á háls. Bensíni hafði verið skvett hér og þar í íbúðinni og síðan borinn eldur að. Rifrildi móður og sona Syni Carine bar á góma hér fyrr í þessari frásögn og þegar hér var samviskunni og lenti fyrst á dauðadeild fyrir morð á Louis nokkrum Wolfson árið 1950. Meðan á þeirri vist stóð sýndi Joseph einkenni geðveilu og var færður á viðeigandi stofnun. Einnig kom í ljós að sá sem vitnaði gegn honum, hans eigin bróðir, Albert, var haldinn ólæknandi geðveiki. Upphaflegum dauðadóm var snúið og Joseph síðar sleppt úr fangelsi. Joseph gat ekki haldið sig á beinu brautinni og því fór sem fór og hann endaði á dauðadeild í annað skipti og þá var enga miskunn að finna. Joseph L. Taborsky endaði ævi sína í rafmagnsstólnum þann 17. maí árið 1960. SAKAMÁL MÓÐIRIN SEM VARÐ AÐ HVERFA n Í upphafi var Carine vel liðin á meðal nágranna n Breyttist þegar bjórneyslan jókst n Gekk að lokum fram af öllum n Galt fyrir með lífi sínu„Hún klæddi sig í síðan, hvítan brúðarkjól og spíg- sporaði niður götuna til ráðhússins. Carine Micha Fékk nánast alla upp á móti sér áður en yfir lauk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.