Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Page 4
4 30. ágúst 2019FRÉTTIR Myrkraverk í Ráðhúsinu E r ekkert heilagt? Það er spurning sem hefur hljó- mað í höfði Svarthöfða alla vikuna. Frekar klisjukennd spurning, eitthvað sem Svarthöfði myndi alla jafna ekki viðurkenna að velktist um í heilanum á hon- um, en Svarthöfði finnur bara ekki betri lýsingu á þeim óskapnaði sem þessi fréttavika hefur verið. Svarthöfði hefur í raun klipið sig oft í handlegginn í vikunni, svo mikið og fast að sýnilegir mar- blettir skreyta fagran pabbalík- amann. Svarthöfða finnst alveg makalaust að öllu sé hægt að snúa upp í popúlistavitleysu meðal þessara þöngulhausa sem vinna að borgarmálunum. Svarthöfði hélt nú kannski að matur væri ekki meðal þess sem misvitrir stjórn- málamenn gera sig digra með. Svarthöfða hins vegar skjátlaðist. Hvernig er hægt að hafa ímynd- unarafl til að sveipa sig annað- hvort kjúklingabauna- eða nauta- kjötsskykkju og skipta þjóðinni í tvær fylkingar eins og hendi væri veifað? Svarthöfða finnst það ákveðinn hæfileiki út af fyr- ir sig, þótt vafasamur hæfileiki sé. Getur verið að það sé verið að slá ryki í augu okkar borgarbúa með þessari vitleysu? Er eitthvað í gangi þarna í Ráðhúsinu sem er svo ógeðslegt, svo myrkt og við- bjóðslegt að henda þarf í gang fá- ránlegum skoðanaskiptum um mat til að slá okkur út af laginu? Hvaða myrkraverk gætu það verið? Svarthöfði nefnilega neitar að trúa því að borgarfulltrúar verði svo blóðheitir út af grænmeti. Það hlýtur að liggja eitthvað meira að baki. Við Íslendingar hljótum þá að minnsta kosti að vera heims- kasta þjóð í heimi fyrir að leyfa þessum popúlistum að ráðskast svo mikið með hausinn á okk- ur að við froðufellum yfir því hvort börnin okkar fá kjöt eða grænmeti, eða hvort tveggja, eða hvorugt í matinn í skólanum. Það er staðreynd að… Fredric Baur lét jarða sig í Pringles-dós, en hann fann einmitt upp á því íláti. Í Eþíópíu eru mánuðirnir þrettán. Banani er skilgreindur sem ber. Fram til ársins 1984 voru hundar bannaðir í Reykjavík Í rúm 3.500 ár hefur heimsfriður verið á tæpum 230 árum samanlagt. Hver er hún n Hún er fædd 7. febrúar árið 1962. n Hún nam sellóleik í Tónlistarskóla Akraness, Tónlistar- skóla Reykjavíkur og Tónlistarskóla Garðabæjar. n Hún sá um tónlist í uppfærslu Þjóðleikhússins á Kirkjugarðs- klúbbnum. n Hún var kjörin textahöfundur ársins á Íslensku tónlistarverð- laununum fyrir árin 1993 og 1994. n Hún hefur spilað með hljóm- sveitunum Tweety og Borgardætr- um, svo dæmi séu nefnd. SVAR: ANDREA GYLFADÓTTIR Svarthöfði Segist hafa verið hent út á götu af leigusala Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is H inn ítalski Luudovico Destifano segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum sínum við íslenskan leigu- sala. Segist hann hafa endað á göt- unni þann 14. ágúst síðastliðinn eftir að búið var að henda öllum hans eigum út úr íbúðinni, þrátt fyrir að hann sé með skriflegan leigusamning. Segir hann leig- usalann eiga við alvarleg, geðræn vandamál að stríða. Fór fram á skriflegan samning Í samtali við DV segist Luudovico hafa komið til Íslands vegna mögulegs atvinnutækifæris en hann er með háskólagráðu í við- skiptafræði frá Bretlandi. „Ég vil vera á Íslandi vegna þess að hef trú á markaðnum og fólkinu sem býr hérna.“ Luudovico segist hafa verið bú- inn að kanna leigumarkaðinn á Íslandi áður en hann kom hing- að til lands og meðal annars hafi hann skoðað auglýsingar á Face- book-hópnum Leiga. Þar hafi hann séð auglýsingu frá íslenskri konu. Um var að ræða herbergi í íbúð konunnar í þríbýl- ihúsi miðsvæðis í höfuðborginni. „Ég hitti hana og við gerðum samning um að ég myndi leigja herbergið í einn mánuð.“ Hann segir konuna hafa far- ið fram á hann myndi greiða alla leiguna fyrirfram og í reiðufé, en þau hafi sammælst um að sleppa greiðslu á tryggingu. „Hún vildi ekki hleypa mér inn í íbúðina fyrr en hún sæi pening- ana,“ segir Luudovico og bæt- ir við að hann hafi þurft að þrýsta á konuna um að útbúa skriflegan samning. Það hafi hún að lokum gert og þau síðan undirritað. Sam- kvæmt þeim samningi var leigu- tímabilið 1. ágúst til 31. ágúst. Hringdi á lögreglu Hann segir að fljótlega hafi hann orðið var við furðulega hegðun hjá leigusalanum. Hún hafi til að mynda meinað honum að borða eftir klukkan 10 á kvöldin og í eitt skipti hafi hún reiðst þegar hann hugðist taka fötin sín úr þurrkar- anum, sem staðsettur er í kjallara hússins. „Þá snarreiddist hún og öskraði á mig að ég gæti ekki bara gert það sem ég vildi, það væri hún sem réði og ég þyrfti að hlýða hennar reglum.“ Luudovico nefnir að í eitt skipti hafi konan hringt á lögregluna af engri augljóstri ástæðu. „Lög- reglan spurði mig hvort ég væri með skriflegan samning og sýndi þeim hann. Mér skilst að þessi kona sé þekkt fyrir þessa hegðun og að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem þeir hafa afskipti af henni. Einn lögreglumaðurinn tók mig til hliðar og ráðlagði mér vingjarn- lega að finna mér annan stað til vera á. Ég sagði honum að það væri ekki svo auðvelt, enda veit ég að leigumarkaðurinn er erfiður hérna á Íslandi.“ Hann segir lögreglumennina hafa verið yfirvegaða og kurteisa og lagt sig fram við leysa málið. Konan, leigusalinn, hafi hins vegar reynst ósamvinnuþýð í alla staði. Þá segir hann konuna hafa neit- að að tala meira við lögregluna og lokað á þá dyrunum. Endaði á götunni Luudovico segist hafa farið út fyrri part dagsins 14. ágúst til að sinna íslenskunámi á bókasafni. Þegar hann kom til baka hafi konan ver- ið búinn að henda fötunum hans og öllum eigum út á götu, þar sem þau lágu á víð og dreif. Þá hafi hún verið búin að skipta um lás á úti- dyrahurðinni. „Ég hringdi þá aftur á lög- regluna, en það var ekkert sem lögreglan gat gert. Þetta er hennar íbúð og hún ræður hvað hún ger- ir. Ég var á götunni í fimm klukku- tíma, einn með allar mínar eig- ur, skjálfandi. Þetta var hræðilegt. Ég endaði úti á götu, þrátt fyrir að vera með undirritaðan leigusamn- ing og þrátt fyrir að vera búinn að greiða heilan mánuð í leigu!“ Luudovico segist hafa verið í sambandi við syni og dóttur kon- unnar eftir þetta og öll hafi þau verið „eyðilögð“ vegna framkomu hennar. „Yngri sonurinn bauðst meira að segja til að fara í bankann og taka pening út af eigin reikningi til að borga mér leiguna til baka, þrátt fyrir að hann væri sjálfur að fara að gifta sig eftir nokkra klukkutíma,“ segir Luudovico og bætir við að hann hafi afþakkað boðið og frekar viljað leysa málið með öðrum hætti. Luudovico segir að loks hafi honum tekist að útvega sér annað herbergi til leigu og hafi núverandi leigusali sýnt honum mikinn skilning. Hann segist vera búinn að leita réttar síns í málinu og að nágrannar konunnar geti vitn- að um að hann sé ekki fyrsti leigj- andinn sem fer illa út úr samskipt- um sínum við hana. „Ég er búinn að tala við þrjá lög- fræðinga og þetta er komið í ferli. Það eru vitni og lögregluskýrslur til staðar. Þetta er skýrt brot á mín- um réttindum. Ég veit að ég hef fullan rétt til að vera í íbúðinni til 31. ágúst.Ég vil vara aðra leigjend- ur við henni. Ég veit að ég er ekki sá fyrsti, þó svo að ég sé sá fyrsti sem leitar réttar síns. Þessi mann- eskja þarf hjálp. Mér skilst að þetta sé ekki einsdæmi hérna á Íslandi, og að þetta sé mikið stundað á leigumarkaðnum.“ n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.