Skessuhorn - 21.12.2004, Page 2
2
ÞRIÐTUDAGUR 21. DESEMBER 2004
an£99Unui..
Til minnis
jólin. Þann 24. desember
n.k. verbur abfangadagur
um allt land, daginn eftir
jóladagur og lokst annar í
jólum. Óvenju snubbótt jól
frá sjónarhóli launamanns-
ins þar sem abfangadag
ber upp á föstudag o.s.frv.
Notib því jólin vel og ver-
ib gób hvert vib annab.
m Ve?RThorftfr
Þab snýst í norbanátt í dag,
slyddu eba snjókomuog
kólnandi vebur. Norövest-
anátt og él verbur hér Vest-
anlands á mibvikudag og
talsvert frost. Á Þorláks-
messu, Abfangadag og
jóladag lítur út fyrir norö-
anátt meb snjókomu eöa
éljum, en lengst af bjart-
vibri sunnanlands. Þab er
því lítill vafi á því ab hér
verba hvít jól. Til hamingju
meb þab krakkar!
SptTrnincj viktAnrtar
I síbustu viku spuröum vib:
„Hlakkar þú til jólanna?"
Úrslit urbu eftirfarandi: „Já,
alveg rosalega" 43,8%, „já,
pínulítib" 32,5%, „Nei,
eiginlega ekki" 11,2%,
„Nei, alls ekki", 12,5%.
Það sem eftir lifir þessa árs
spyrjum við:
„Strengir þú áro-
mótaheit?"
Svarið skýrt og
skilmerkilega á
www.skessuhorn. is
Vestlendirujtvr
viktynnar
Eru krakkarnir í Grunnskóla
Borgarness sem stóbu fyrir
útvarpsrekstri í Borgar-
byggb í vikunni, jólaút-
varpib FM Óöal.
Vilja ekki hreindýr í hreppinn
Hreppsnefnd Reykhóla-
hrepps hefur tekið fyrir erindi
frá Skotveiðifélagi Islands, und-
irritað af Sigmari B Haukssyni
formanni, þar sem greint er frá
áhuga félagsins á að hreindýr
yrðu flutt frá Austurlandi til
annarra staða á landinu. Meðal
þeirra staða sem helst þóttu
koma til greina var Barða-
strönd. I bréfinu var tilgreint að
gert yrði ráð fyrir að dýrin yrðu
þá jafhframt í Djúpinu, Stein-
grímsfirði, Bitrufirði og Kolla-
firði.
Erindi Skotvís var að kanna
hug sveitarstjórnarmanna til
málsins áður en því yrði fýlgt
frekar eftir. Undirtektir hrepps-
nefndarmanna voru vægast sagt
neikvæðar en hreppsnefnd sam-
þykkti samhljóða að hafna hug-
myndum Skotvís.
GE
Hreppsnefnd Reykhólahrepps leggst gegn því að hreindýr fái lög-
heimili á Barðaströnd.
Svæðisskipulag sunnan
Skarðsheiðar fellt niður
Akurnesingar segja mikla hagsmuni í
húfi og vilja halda í skipulagið
Fjögur sveitarfélög í Borgar
firði sunnan Skarðsheiðar vilja
fella úr gildi svæðisskipulag
sem nær meðal annars til
Grundartangasvæðisins þar
sem gríðarleg uppbygging er
fýrirsjáanleg á næstu árum.
Akraneskaupstaður telur hins-
vegar nauðsynlegt að halda
skipulaginu.
Svæðisskipulagið nær til
fimm sveitarfélaga; Skilmanna-
hrepps, Leirár og Melahrepps,
Innri Akraneshrepps, Hval-
fjarðarstrandarhrepps og Akra-
neskaupstaðar. Það á að gilda
fyrir árin 1992 - 2012. I ágúst
sl. óskaði Hvalfjarðarstrandar-
hreppur hinsvegar eftir því að
skipuð yrði samvinnunefnd um
breytingar á skipulaginu og í
framhaldi af þeirri vinnu hefur
komið fram ósk frá öllum
sveitarfélögunum, nema Akra-
neskaupstað, þess efnis að
svæðisskipulagið verði fellt úr
gildi.
Bæjarstjórn Akraness hefur
lagst alfarið gegn því að kasta
svæðisskipulaginu fýrir róða og
á fundi hennar í liðinni viku
var bókað að afar brýnt sé að
tekið sé á sameiginlegum hags-
munamálum svæðisins í heild í
svæðisskipulagi, ekki síst vegna
uppbyggingar athafnasvæðis-
ins á Grundartanga. Miklir
hagsmunir séu í húfi að vel tak-
ist til við að skapa skýra fram-
tíðarsýn og þar gegni svæðis-
skipulag mikilvægu hlutverki.
Hallfreður Vilhjálmsson
oddviti Hvalfjarðarstrandar-
hrepps segir ástæðuna fýrir því
að hrepparnir fjórir hafi lagt til
að svæðisskipulagið yrði fellt
úr gildi, einfaldlega vera þá að
þeir hafi allir staðið í vinnu við
gerð aðalskipulags undanfarin
ár. Þeirri vinnu sé nú að ljúka
og að þegar sveitahrepparnir
fjórir verði sameinaðir, eins og
þegar hefur verið samþykkt,
verði til aðalskipulag fýrir allt
svæðið að Akranesi undan-
skildu. Hallfreður segir til-
gangslaust að hafa í gildi bæði
aðalskipulag og svæðisskipulag
fyrir sama svæðið en þó sé full
ástæða til að hafa samstarf um
skipulagsmál við nágranna-
sveitarfélögin og til greina
komi að hafa gildandi svæðis-
skipulag um ákveðna þætti.
Það megi hinsvegar ekki gera
úlfalda úr mýflugu því ekkert
hafi enn verið ákveðið en mál-
in verði afgreidd í sátt og sam-
lyndi við alla nágranna. GE
Stoftia sjóð vegna
íþróttamannvirkj a
Bæjarstjórn Akraness hefur
samþykkt að stofnaður verði
sjóður sem hafi það hlutverk
að standa undir uppbyggingu
íþróttamannvirkja í bæjarfé-
laginu á næstu árum. Gert
verði ráð fýrir byggingu fjöl-
nota íþróttahúss á Jaðarsbökk-
um, framkvæmdasamningi við
Golfklúbbinn Leyni og fram-
kvæmdum vegna sundlaugar-
mála á Jaðarsbökkum, en þar
er fyrirhugað að reisa nýja
innilaug. Kostnaður við þessar
framkvæmdir verði vistaðar
undir nýja sjóðnum og að gert
verði ráð fýrir framlögum úr
aðalsjóði til að standa undir
kostnaði við þau verkefni sem
farið verður í.
MM
Hross fældist og
hljóp fyrir bíl
Síðastlið fimmtudagskvöld
var ekið á hross skammt ffá
hesthúsahverfinu í Borgarnesi.
Engin slys urðu á fólki en hross-
ið drapst samstundis. Atvik voru
með þeim hætti að maður var á
útreiðum skammt £rá hesthúsa-
hverfunum ofan við Borgarnes
þegar hesturinn sem hann reið
hnaut og maðurinn datt af baki.
Hesturinn fældist og hljóp inn á
veginn í veg fýrir flutningabíl.
Steinar Snorrason lögreglu-
þjónn í Borgarnesi sagði í sam-
tali við Skessuhorn að það hafi
þó verið lán í óláni að það var
flutningabíll sem ók á hrossið en
ekki fólksbiffeið því þá hefði ör-
ugglega orðið stórslys. Engan
mann sakaði sem fýrr segir en
vörubifreiðin er stórskemmd
eftir áreksturinn. GE
Kárastaða-
flugvelli
frestað
Tvör ár eru liðin síðan til
stóð að hefja framkvæmdir
við Kárastaðaflugvöll í
Borgarnesi. Ætlunin var að
lengja flugbrautina og
leggja á hana bundið slitlag.
Miðað var við að völlurinn
gæti m.a. nýst fýrir
kennsluflug. Framkvæmdir
eru hinsvegar ekki hafnar
og sagði Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra í sam-
tali við Skesshorn að end-
urbótum á Kárastaðaflug-
velli hafi verið frestað og
önnur verkefni sem talin
voru brýnni sett framfýrir.
Hann sagði að áfram yrði
stefnt að endurbótum á
flugvellinum en kvaðst ekki
geta tímasett þær nákvæm-
lega.
GE
Næsta blað
Ritstjórn Skessuhorns fer
í frí milli jóla og nýárs og
kemur næsta tölublað
Skessuhorns því út í byrjun
nýs árs, miðvikudaginn 5.
janúar 2005. Þá verða með-
al annars kynnt úrslit í vali
á manni ársins á Vestur-
landi 2004. Minnt er á að á-
bendingar um kandídata í
því vali er hægt að senda á
netfangið:
ritstjori@skessuhorn.is. Þá
skal einnig bent á að aug-
lýsingadeild Skessuhorns
verður opin á milli jóla og
nýjárs, dagana 29. og 30.
desember kl. 10-15, en þar
er síminn sem fyrr 433-
5500.
Akvörðun
frestað
Eins og sagt hefur verið
frá í Skessuhorni er nefnd
sem skipuð var af sveitarfé-
lögunum á Snæfellsnesi til
að kanna kosti og galla
sameiningar sveitarfélag-
anna að ljúka störfum.
Boltinn er því hjá sveitar-
stjórnum á Nesinu en á-
kveðið hefur verið að fresta
frekari afgreiðslu þar til á
nýju ári. Þá verður tekin
endanleg ákvörðun um það
í hverju sveitarfélagi fýrir
sig hvort farið verður í
formlegar sameiningarvið-
ræður og stefnt að kosn-
ingu um sameiningu í vor.
GE