Skessuhorn - 21.12.2004, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004
^■uúi9unv/>.
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi
Fax: 433 5501
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf 433 5500
Framkv.stj. og blm. Magnús Magnússon 894 8998
Ritstjóri og úbm: Gísli Einarsson 899 4098
Augl. og dreifing: Iris Arthúrsdóttir 696 7139
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677
Prentun: Prentmet ehf.
skessuhorn@skessuhorn.is
magnus@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
iris@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
.udaga. Skilafreslur auglýsinga er kl. 14:00 ó
rent a^að nanta auglýsingaplass tímanlega.
Skessuhorn kemur út alla miðviki
þriðjudögum. Auglýsendum er
Skilafrestur smúauglýsinga er t
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til úskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. ú múnuði en krónur/50 sé greitt með
greiðslukorti. Verð i lausasölu er 300 kr.
433 5500
borni maður þarf að fást við meðan
hann dvelst ofar moldu kostar jafn
mikið andlegt álag, innri átök og geðsveiflur og biðin eftir því
að tæta pappírinn utan af jólagjöfunum með tilheyrandi djöf-
ulgangi. Andleg og líkamleg áreynsla sem biðinni fylgir er
nær ólýsanleg og loks þegar á hólminn er komið er flestir
meðaljónar (Medecine Johns á frummálinu) orðnir það út-
taugaðir og yfirkeyrðir að þeir megna vart að njóta augna-
bliksins.
Þess ber að geta að vandamálið er tvíþætt. Annars vegar er
það óvissuástandið sem ríkir síðustu vikurnar fyrir jól og sí-
felld heilabrot í vöku og svefni yfir því hvað leynist innan við
umbúðirnar, mjúkt eða hart, stórt eða smátt, fallegt eða Ijótt
eða yfirhöfuð nokkur skapaður hlutur.
Hin hliðin og sú dekkri er þessi innri togstreyta sem flest-
ir þurfa að glíma við, það vill segja, á maður eða á maður ekki
að stytta sér leið og losa sig við áhyggjurnar með því að gægj-
ast á bak við tjöldin og forskoða innihald pakkans. Þessi
möguleiki er vissulega fyrir hendi svo fremi að pakkinn sé
ekki þeim mun betur falinn og mín reynsla er einmitt sú að
vönduð rannsóknarvinna geti svift hulunni af flestum leynd-
armálum af þessu tagi.
Vandamálið við að fara þessa leið er að tilhlökkuninni er
varpað fyrir róða og jólin verða lítils virði fyrir vikið.
Nú bregður svo við að allt í einu hefur óvissunni verið eitt
því það er búið að höggva á hnútinn og enginn þarf að engj-
ast af kvölum fyrir þessi jól. Það var hæstvirtur utanríkisráð-
herra sem tók af skarið og tók utan af pakkanum fyrir alla
þjóðina. I honum var hvorki meira né minna en afdankaður
skákmaður sem kominn var í pattstöðu úti í Japan.
Að sjálfsögðu gladdist þjóðin yfir gjöfinni þótt einhverjir
kunni að benda á að það þurfi ekki að fylgjast með mörkum
íþróttakappleikjum hér á landi til að komast að því að nú þeg-
ar er hér alveg þokkalegt framboð af biluðum íþróttamönn-
um. Það dylst þó engum að þetta er rándýr og fín gjöf enda
hefðu flestir orðið svekktir ef við hefðum bara fengið venju-
legan stríðshrjáðan og landflótta verkamann. Maður hefði
meira að segja verið svekktur yfir að fá svoleiðis í skóinn.
Hvað sem því líður þá vonast ég til að lesendur Skessu-
horns fái næg tilefni til að gleðjast yfir hátíðirnar. I það
minnsta óska ég þeim sem allra gleðilegastra jóla og þakka
fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða.
Lifið beil.
Gísli Einarsson, í síðasta sinn á þessu ári.
Pakkhúsið fær
andHtslyftingn
Endurbótum á öðru af pakk-
húsunum tveimur í Englend-
ingavík er að verða lokið. Hús-
ið var híft af grunni sínum í
sumar og síðan hefur grunnur-
inn verið endurhlaðinn og gert
við burðargrind hússins og það
klætt að utan með timbri eins
og það var upphaflega.
Það eru Hollvinasamtök
Englendingavíkur sem standa
fyrir endurbótunum en SÓ
húsbyggingar sjá um fram-
kvæmdina.
Stefnt er að því að ráðast í
endurbætur á neðra pakkhúsinu
á næsta ári ef fjármagn fæst til
verksins en leitað hefur verið til
fyrirtækja og stofhana jafht í
héraði og utan þess eftir stuðn-
ingi við verndun og endurbæt-
ur húsanna. GE
Fjárhagsáædun
afgreidd með halla
A fundi sinum þann 14. des- fýrir að rekstarniðurstaða verði
ember s.l. samþykkti bæjar-
stjórn Akraness samhljóða fjár-
hagsáætlun Akraneskaupstaðar.
Nokkrar breytingar voru gerð-
ar á upphaflegu fruinvarpi og
voru rekstarliðir hækkaðir um
41,4 m.kr. sem voru einkum
hækkanir vegna launaliða. I
heild sinni gerir áætlunin ráð
neikvæð um 4,06%, veltufé frá
rekstri verði 6,89%, veltufjár-
hlutfall verði 1,14 og eiginfjár-
hlutfall verði 0,57. Heildar
tekjur eru 1.914 m.kr. útgjöld
eru 1.992 m.kr. Heildar eignir
eru 5.112 m.kr. og skuldir og
skuldbindingar eru 2.169 m.kr.
MM
Síðastliðinn mánudag var tekin fyrsta skóftustungan að nýju fjölbýlis-
húsi við Borgarbraut i Borgarnesi, sem við sögðum frá f sfðasta
Skessuhorni. Það eru smiðirnir Ólafur Axelsson og Stefán Ólafsson
sem ætla að byggja húsið. Það var hinsvegar Hjörleifur Stefánsson
sem tók fyrstu skóflustunguna með þar til gerðu áhaldi. Mynd: GE
Grundfirðingar á
Broadway
Grundfirðingar ætla að mála
bæinn rauðan í febrúar n.k. en
þá hefur þeim verið boðið að
setja á svið í Reykjavík Vorgleði,
en það er hátíð sem Grundfirð-
ingar hafa haldið síðastliðin þrjú
ár. „Þetta verður svona úrval úr
öllum hátíðunum, „best of ‘ vor-
gleði getum við sagt,“ segir
Gunnar Rristjánsson menning-
arfrömuður í Grundarfirði. Vor-
gleðin samanstendur af söngat-
riðum, mest frá einstaklingum
við undirleik hljómsveitar
heiinamanna sem einnig mun
trilla lýðinn á dansleik á Broad-
way að dagskrá lokinni.
GE
Styrkur til
skólahalds vegna
verkfalls
Á dögunum sendi mennta-
málaráðuneytið sveitarstjórnum
bréf þar sem ráðuneytið óskaði
upplýsinga um með hvaða hætti
skólahald verði skipulagt í ein-
sökurn sveitarfélögum út skóla-
árið í kjölfar verkfalls grunn-
skólakennara. Nokkuð hefur
verið fjallað um þetta mál af
hálfu bæjaryfirvalda á Akranesi
og samþykkti bæjarráð á fundi
sínum í síðustu viku eftirfarandi
bókun: „I því skyni að koma til
móts við nemendur 9. og 10.
bekkjar grunnskólanna og þá
nemendur sem þurfa á sérstakri
aðstoð að halda samþykkir bæj-
arráð að verja af óráðstöfuðum
fjármunum santkvæmt fjárhags-
áætlun ársins 2005 kr. 1,5 m.kr.
til hvors grunnskóla. Skóla-
nefitd og skólastjórum grunn-
skólanna er falið að leggja fyrir
bæjarráð tillögu um ráðstöfun
fjárins." MM
Rekstur Bíó-
hallarinnar
boðinn út
Bæjarstjórn Akraneskaupstað-
ar hefur samþykkt að bjóða
rekstur Bíóhallarinnar út á næsta
ári. Bæjarritara hefur verið falið
að leggja fyrir bæjarráð tillögu
að útboðsgögnum þar sem m.a.
verði gert ráð fyrir því að kaup-
staðurinn styrki starfsemi húss-
ins áffarn og að þar verði haldið
úti fjölþættri starfsemi eins og
verið hefur fram til þessa, svo
sem kvikmyndasýningum, leik-
sýningum, tónleikum og þess
háttar. Einnig að ýmsum menn-
ingarhópum eins og Skagaleik-
flokknum verði gert áfram
mögulegt að nýta húsið. MM
x
Osáttur við
rjúpnatillögur
Snorri Jóhannesson, bóndi og
veiðimaður á Augastöðuin í
Hálsasveit, er ósáttur við þær til-
lögur sem nefnd umhverfisráðu-
neytisins um fyrirkomulag
rjúpnaveiða hefur sett fram. Þar
er meðal annars gert ráð fýTÍr að
allir veiðimenn fái útlhlutað
jöfhum kvóta. „Það er gert ráð
fýrir að allir sitji við sama borð
en það gengur bara ekki upp því
að landeigendur njóta þá ekki
þeirra hlunninda sem jarðir
þeirra gefa. Nefndin leggur upp
með að þjóðin eigi fuglana. Það
er bara della. Fuglinn á sig sjálf-
ur þar til hann sest á land þar
sem veiðar eru leyfðar, þá er það
viðkomandi landeigandi sem á
fuglinn. Við höfúm fuglana í
fæði á okkar jörðum og teljum
okkur því hafa rétt á að skjóta þá
þar,“ segir Snorri. GE