Skessuhorn - 21.12.2004, Síða 18
ÞRIÐTUDAGUR 21. DESEMBER 2004
Vesturland 2004 í máli og
Systurnar Svana Hrönn og Sólveig Rós Jóhannsdætur úr Döl-
um eru bestu glímukonur landsins. Það sönnuðu þær þegar
þær kepptu innbyrðis um Freyjubeltið á Freyjumótinu í glímu
einn októbermorgun í haust og má telja mikla lukku
að ekki urðu alvarleg slys á mönnum. Um 10 farþeganna
þurftu þó að leggjast á spítala með beinbrot og minni skaða en
eru nú allir á góðum batavegi. Margar aðrar bílveltur og um-
ferðaróhöpp urðu einnig á árinu.
Háskólaráð Borgarí)arðar
Háskólasamfélagið og sveitarfélög í Borgarfirði stofnuðu fyrr
á árinu Háskólaráð Borgarfjarðar. Að því standa Landbúnað-
arháskólinn á Hvanneyri, Viðskiptaháskólinn á Bifröst,
Snorrastofa, Borgarbyggð og Borgarfjarðarsveit. Með stofnun
ráðsins er stefnt að því að styrkja myndarlega rannsókna- og
endurmenntunarstarfsemi á svæðinu, styrkja atvinnulíf og
auka kynningu á svæðinu.
Loftorka bólgnar út
I vor var Loftorka Borgarnesi ehf. kosið fyrirtæki ársins 2003
í Borgarbyggð. Vöxtur og gengi fyrirtæksins hefur verið sem
sem fram fór í Reykjavík í vor. Svo fór að Sólveig Rós bar sig-
urorð af stóru systir og svipti hana þannig titlinum frá árinu
áður þegar Svana Hrönn varð glímumeistari Islands. Á mynd-
inni með systrunum er Soffía Kristín Björnsdóttir úr HSÞ.
ævintýri líkast og á þessu ári hefur velta aukist urn 40-50% og
er nú svo komið að flytja þarf inn starfsmenn til að manna ný
störf í fyrirtækinu. Á árinu keypti fyrirtækið Forsteypuna á
Kjalarnesi og jók þannig framleiðslugetu í einingum um fjórð-
ung. Aukning er bæði í forsteyptum einingum til húsagerðar
en ekki síður í röraframleiðslu, en á því sviði hefur fyrirtækið
afgerandi stöðu á landsvísu. Onnur einingaverksmiðja á Vest-
Neysluvatnslagnir víða endumýjaðar
Miklar framkvæmdir hafa verið og eru víða um Vesturland í
þeim tilgangi að bæta neysluvatnsmál íbúa. Slíkar framkvæmd-
ir stóðu yfir í Snæfellsbæ þar sem settar voru upp síur við
vatnsbólin á Jökulhálsi, OR lagði nýja stofnlögn frá neyslu-
vatnsbóli Akurnesinga og unnið er að lagningu vatnsveitu frá
Grábrókarhrauni í Borgarnes fyrir sumarhúsabyggðir í sveit-
arfélaginu og Borgarnes. Á næsta ári er gert ráð fyrir að lögð
verði ný neysluvatnslögn frá Okjökli í byggðina í Reykholtsdal
og jafnvel lengra, en vatnsskorts hefur gætt á því svæði undan-
farin ár.
Bætt fæðingaaðstaða
Vestlendingum fjölgar og eru nýburar sem komið hafa í heim-
inn á fæðingadeild Sjúkrahússins á Akranesi nú komnir á 3.
hundraðið á þessu ári. I maí var ný og endurbætt fæðinga- og
kvensjúkdómadeild tekin formlega í notkun við SHA en við
það batnaði aðstaða til fæðinga til muna og verður sífellt vin-
sælla hjá verðandi mæðrum að fæða börn á deildinni. Sjúkra-
húsinu og heilsugæslustöðinni á Akranesi gekk einnig vel á
öðrum sviðum á árinu og veitti fjármálaráðherra stofhuninni
hvatningarverðlaun ráðuneytisins fyrir fyrirmyndar rekstur
ríkisstofnunar á árinu. Á myndinni eru ljósmæður SHA á
vígsludag nýju kvensjúkdóma- og fæðingadeildarinnar.
Sex sparkvellir
urlandi, Smellinn á Akranesi, hefur einnig átt góðu gengi að
fagna á árinu og selst framleiðsla þess fyrirtækis einnig eins og
heitar (húsa)samlokur.
Bændur og vélamenn gáfaðastir
Víða eru haldnar spurningakeppnir í héröðum landsins fólki
til dægradvalar og skemmtunar. I vor var í fyrsta skipti haldin
slík keppni í Dölum og reyndust haukdælskir sauðfjárbændur
gáfaðastir allra. Sambærileg keppni fór fram í Borgarfirði á
vegum UMSB og vörðu þar titil sinn gáfumenn sem öðrum
stundum vinna við vélaútgerð í fyrirtækinu Jörva á Hvanneyri.
Fjölmennasta blakmót ársins
í apríl fór fram á Akranesi fjölmennasta blakmót ársins hér á
landi þegar Öldungamót Blaksambands íslands fór fram. Það
var blakfélagið Bresi sem sá um framkvæmd mótsins en í því
tóku þátt 80 lið frá öllu landinu, alls um 700 manns.
Fræknar glímusystur
úntisaunuw
Stjórn Knattspyrnusambandsins ákvað fyrr á árinu að styðja
sveitarfélög til byggingar 60 sparkvalla víðsvegar um landið.
Sex þessara valla komu í hlut Vesturlands og verða í Ólafsvík,
Stykkishólmi, Grundarfirði, Búðardal, Borgarnesi og Akra-
nesi. Hafa þeir nú flestir verið vígðir undanfarnar vikur.
Myndin er frá vígslu sparkvallar við Brekkubæjarskóla á Akra-
nesi fyrr í þessum mánuði.
Bændur virkja
I ágúst var ný 400 kw raforkuvirkjun vígð á Húsafelli og er það
þriðja kynslóð virkjana þar en rafmagn úr þessari virkjun hef-
ur verið selt inn á veitukerfi Rarik. Þrír bændur á Snæfellsnesi
vinna þessi misserin að byggingu enn stærri virkjunar í
Straumfjarðará sem ráðgert er að taka í notkun síðar í vetur.
Orkan frá henni verður seld til Hitaveitu Suðurnesja. Fleiri
hugmyndir um virkjanir eru einnig í skoðun og má nefna
rennslisvirkjun í Hvítá í því sambandi.
Góð aðsókn að FVA
Þrátt fyrir að nýr fjölbrautaskóli hafi í haust verið tekinn í
notkun á Snæfellsnesi og nemendur þaðan því sótt hann, jókst
aðsókn í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í haust og er
metfjöldi nemenda nú við skólann, en á 7. hundrað nemendur
skráðu sig þar til náms í haust. Viðbygging við FVA verður
tekin í notkun á næsta ári og bætir hún til muna aðstöðu nem-
enda og kennara.
Utskrifað af nýjum námsbrautum
Vöxtur háskólanna í Borgarfirði var áfram mikill á árinu. Á
Hvanneyri bar það helst til tíðinda að ákvörðun var tekin um
sameiningu þriggja stofnana í Landbúnaðarháskóla Islands og