Skessuhorn - 21.12.2004, Qupperneq 21
jn£3SUnu<~
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004
21
Vesturland 2004 í máli og myndum
Heiðarskóla og voru í kjölfarið haldnir borgarafundir um mál-
ið þar sem menn þjöppuðu sér saman um framtíð skólans og
gegn fyrirætlunum Skilmenninga. Fróðir menn segja eftir á,
að þessi uppákoma hafi snúið vopnum í vil í höndum samein-
ingarsinna því tveimur mánuðum seinna, þegar íbúar fjögurra
sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar gengu til kosninga um sam-
einingu sveitarfélaganna var sameining samþykkt með miklum
mun í öllum hreppunum og allt upp í 100% já-i í Innri Akra-
neshreppi. Hrepparnir sameinast frá og með sveitarstjórnar-
kosningum 2006.
Rafskaut í Hvalfirði
Skipulagsstofnun féllst í byrjun september á byggingu raf-
skautaverksmiðju í Kataneslandi við Grundartanga en verk-
smiðjan mun framleiða rafskaut til nota í áliðnaði. Verksmiðj-
an verður þó ininni en upphaflega var áætlað þar sem Fjarða-
ál mun ekki kaupa rafskaut frá henni, heldur flytja þau inn frá
Noregi.
Klumba brann
Stórtjón varð í Olafsvík í september þegar fiskverkununarhús
Klumbu brunni til kaldra kola.
Hræringar í verslun
Frá því var greint í Skessuhorni í haust að miklar breytingar
eru að verða í matvörugeiranum í landshlutanum. Bónus opn-
ar nýja verslun á nýju landfyllingunni í Borgarnesi á næsta ári,
fyrirtækið opnaði einnig nýja verslun í Hólminum í haust og
hyggst byggja á Akranesi innan tíðar, ef hentug lóð fæst. Sam-
kaup keypti verslunarreksmr KB og hefur opnað Samkaups-
verslanir á Akranesi, í Borgarnesi og í Grundarfirði. Það er því
ljóst að þeir stóru ætla að verða stærri á þessum markaði og
samkeppni er ekki að minnka.
Hús víkja fyrir nýjum
Á Akranesi hafa á þessu ári verið rifin nokkur af eldri húsum
bæjarins til að rýma til fyrir nýjum. Þannig mun ásýnd mið-
bæjarins breytast þegar á svokölluðum Hvítanesreit rís ný
verslunarmiðstöð og íbúðabygging. Fyrirhugað er einnig að
reisa verslunarmiðstöð á Miðbæjarreit og tvær háreistar íbúða-
blokkir einnig. Einhver seinkun verður á að þær framkvæmd-
ir hefjist enda reyndist byggingaland ekki gott innan skipu-
lagsins og kallar það á breytingar á deiliskipulagi.
Synjað um sláturleyfi
Það var reiðarslag fyrir atvinnulífið í Dölum og íbúana þegar
landbúnaðarráðherra synjaði Dalalambi í Búðardal um slámr-
leyfi í september sl. Fyrirhugað hafði verið að slátra um 20
þúsund lömbum í húsinu.
Fjölnota íþróttahús
Þeir kættust verulega áhugamenn á Akranesi um íþróttir og í-
þróttaaðstöðu á árinu þegar ljóst var að þverpólitískur vilji var
til byggingar fjölnota íþróttahúss á Jaðarsbökkum. Fram-
kvæindir við húsið munu að öllum líkindum hefjast á næsta ári
og er stefnt að þeim Ijúki 2006. Meðfylgjandi mynd er af bæj-
arstjóranum Gísla Gíslasyni og Smrlaugi Smrlaugssyni for-
manni IA sem saman munu taka höndum um byggingu fjöl-
nota hússins, ásamt mörgu öðm góðu fólki.
Snarfækkun sveitarfélaga
I byrjun október vom kynntar tillögur nefndar félagsmálaráð-
herra um sameiningarmál sveitarfélaga. Um nokkuð róttækar
tillögur er að ræða hvað snýr að Vesturlandi og má gera ráð
fyrir að sveitarfélögum fækki næstu árin jafnvel niður í 5 en
þau eru 17 í dag. Sveitarfélögin verða skv. tillögunum: Akra-
neskaupstaður, sameinað sveitarfélag sunnan Skarðsheiðar
(sem íbúar hafa þegar samþykkt), Borgarfjörður, Snæfellsnes
og Dalasýsla með Reykhólahreppi.
Stórtjón í Breiðuvík
Einn mesti skaði í einum brana á bújörð hér á landi varð í
október þegar hátt í 800 sláturlömb, byggingar og tæki
bmnnu á bænum Knerri í Breiðuvík. Hávaðarok var á þessum
slóðum þegar bruninn varð og þurftu slökkviliðsmenn á Snæ-
fellsnesi að leggja sig í stórhætm við björgunarstörf.
Starfsfólk Landsbanka Islands hf.
óskar viöskiptavinum sínum og Vestlendingum öllum
gleðilegra jóla og farsœldar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Jólakveðjur,
starfsfólk útibúa Landsbankans á Vesturlandi
11 Landsbankinn