Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2004, Blaðsíða 48

Skessuhorn - 21.12.2004, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 utttðDUnu... Ung Skagastúlka dvelur í Ekvador um jólin Vinnur meðal annars í kirkju við að þjóna fátæku fólki og hjálparþurfi Góðir tímar í matarboði hjá Karinu frá Noregi. Lucia og Anita, báðar frá Þýskalandi, Mimi frá Bandarfkjunum og greinarhöfundur lengst til hægri. bækur notaðar nema af kenn- urunum og allt er frekar frjáls- legt. Húsnæðið fyrir mér er orðið mjög eðlilegt en fyrstu dagarnir voru frekar hrikalegir. Það eru göt á gólfunum, kakkalakkar, kóngulær, litlar eðlur, hundar, kettir, eldflugur og haugur af moskítóflugum um allan skólann en í dag er þetta allt nijög eðlilegt og ég á eftir að sakna þess þegar ég sný aftur heim næsta sumar! Eg er búin að upplifa ótrú- legustu hluti og ferðast um nærri allt landið. Fór með rútu í 12 klukkustundir til að sjá landsleik milli Ekvador og Brasilíu í Quito og það var al- gjör draumur. Þvílík stemmn- ing allan leikinn og það lá við að maður hefði farið að hágráta eftir á, af stolti af sinni nýju þjóð. Eg er einnig búin að fara á miðbaug heimsins sem var ó- trúleg upplifun, það er ekki á hverjum degi sem maður stendur í miðjunni á hnettinum svo þetta allt er búið að vera frábær upplifun. Ekvador er án efa eitt falleg- asta land sem ég hef séð og menning þeirra er allt önnur en ég hef vanist heima. Hér eru allir mjög trúaðir og ég fer reglulega með fjölskyldu minni í kirkju og allir sunnudagar eru fjölskyldudagar. Eg er farin að venjast þessu öllu þótt það væri erfitt í byrjun en þetta er búið að vera alveg frábær lífsreynsla og eftir aðeins 3 mánuði finnst mér ég vera allt önnur mann- eskja en áður en ég kom hing- að. Það styttist í jólin og fólkið hér í Pinas byrjaði ad skreyta um miðjan nóvember, sem er frekar snemmt, en þeirra siður. Hér eru einungis tveir dagar haldnir hátíðlegir; 24. og 25. desember. A aðfangadag fer ég til ömmu Bertitu og afa Carlos um morguninn til að borða Enfanatas, einn af þjóðaréttum Ekvadora, drekka kaffi og fara í kirkju klukkan 10. Eftir kirkju fara allir heim til ömmu Itu og borða hádegismat sem er hrís- grjón með svínakjöti og minestro sósu. Seinni partinn höldum við heim og undirbú- um jólamáltíðina sjálfa. I ár er boðið upp á kjúkling med frönskum kartöflum, hrís- grjónum og rauðvíni. Jólasteik- in hér er oftast kjúklingur eða naggrís með hrísgrjónum og víni. Þetta er frekar öðruvísi en heima á fróninu en ég bíð spennt eftir því að upplifa allt þetta. Eftir matinn eru opnað- ar gjafir sem eru ekki oftast það margar þar sem fólkið hér gleðst frekar yfir því að fá að vera með fjölskyldu sinni á þessurn sérstaka tíma. Eftir gjafirnar förum við í messu frá 10 til miðnættis og eftir það er farið heim að sofa eftir langan dag. Eg er smá kvíðin yfir því að fá ekki að borða jólasteikina hans Gunna míns og borða ís- inn hennar mömmu en þetta verður án efa ein af eftirminni- legustu og skemmtilegustu lífs- reynslu minni hér. A jóladag förum við aftur í kirkju um morguninn og eftir messu för- um við til systur minnar og eyðum deginum þar með allri fjölskyldu minni. Þann 23. des- ember eru AFS jólin. Allar fjöl- skyldurnar og skiptinemarnir koma saman, borða jólamat sem við krakkarnir eldum sem verður að sjálfsögðu frá okkar löndum, spilum okkar jólalög og dönsum. Eg er ekki alveg búin að gera mér grein fyrir því að ég skuli virkilega vera hérna og upplifa þetta ævintýri sem er án efa ein besta ákvörðun sem ég hef tek- ið á ævi minni. Að fá það tæki- færi að kynnast nýrri menn- ingu og tungumáli og það að fólkið hér tekur manni eins og maður er, skiptir ekki máli hvort þú talar tungumálið sem er spænska reiprennandi, er al- gjör draumur. Eg er meira svekkt yfir því að þurfa að yfirgefa þennan stað en að hugsa til þess hvers ég er að missa af heima á Islandi. Ég er búin að kynnast frábæru fólki og yndislegum stöðum. Bíð spennt eftir því að fara til Perú og Galapagos eyjanna og fá að ferðast meira um landið í skólafríinu. Eg mun muna þetta ár allt mitt líf og þetta er og verður án efa besta lífsreynsla sem ég eignast. Hafið það sem allra best um jólin. Jólakveðjur frd Pinas, Ekvador Maríanna Pdlsdóttir www.folk. is/mari Ung stúlka af Akranesi, Mar- íanna Pálsdóttir, hefur undan- farna mánuði dvalið í Ekvador sem skiptinemi. Hún sendir vinum, vandamönnum og öðr- um lesendum blaðsins jóla- kveðju, en hún mun dvelja er- lendis um hátíðirnar. Gleðileg jól og farsælt komandi ár! Eg er núna búin að vera hér í Ekvador í Suður Ameríku í rúma 3 mánuði og líkar þetta allt mjög vel. Ég bý í litlum bæ sem heitir Pinas og er í syðri hluta Ekvadors. Aður en ég kom hingað fékk ég upplýsing- ar frá AFS um bæinn og þar stóð að hann hefði lítið breyst frá því að Spánverjar fundu hann fyrir hundruðum ára. Ég bjóst því við að hér væri allt gert í höndunum, enginn keyrði bíla, engar verslanir væru eða bankar og allt það nauðsynlega til staðar sem maður þyrfti á að halda. Mér skjátlaðist. Hér getur maður nálgast allt. AJlir keyra um á bílum eða mótorhjólum og héðan fara rútur um allt Ekvador. Að sjá það hversu mikil fá- tækt er hérna í landinu kom mér hinsvegar mjög mikið á ó- vart og ég bjó mig alls ekki undir það sjokk sem ég fékk og fæ enn þegar ég ferðast um landið. Ég er byrjuð að vinna í kirkjunni hér í bænum í hádeg- inu að búa til mat og þjóna fá- tæka fólkinu og það kom mér á óvart hvað það eru margir hér sem lifa við þær aðstæður. Hér búa rúmlega 15 þúsund manns en bærinn er á stærð við gamla góða Skagann. Hann er byggð- ur á einni risastórri hæð svo maður gengur bara upp og liggur við að maður detti niður. Þetta var fyrst allt saman mjög mikið sjokk en núna er þetta bara allt mjög eðlilegt og ég er hætt að taka eftir því öllu furðulega sem gerist hér á hverjum degi. Eg geng í skóla hér sem er einskonar grunn- skóli og heitir Instituto Tecnologico Ocho de Noviem- bre. Þar eru krakkar á öllum aldri. Það eru sex bekkir í skól- anum og ég er í þeim elsta sem er ætlaður krökkum á aldrinum 16-18 ára. En það eru nokkrir nemendur yfir tvítugt þar líka svo þetta er allt öðruvísi skóla- kerfi en heima. Hér eru engar Mimi frá Bandaríkjunum, Maríanna og Emily, frá USA í Buenaventura ánni rétt fyrir utan Pihas.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.