Morgunblaðið - 20.06.2019, Blaðsíða 37
37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019
Brjóstahaldarafjöld Við Brekkukot undir Eyjafjöllum er þessi girðing, sem skrýdd er fjölda brjóstahaldara af ýmsum stærðum og gerðum. Verða flíkurnar mörgum hugvekja um list og náttúru.
RAX
Þeir sem komnir eru
á efri ár eins og undir-
ritaður minnast þess
tíma þegar farþega-
skip báru menn yfir
hafið til annarra
Norðurlanda, með við-
komu í Færeyjum eða
Skotlandi. Enn heldur
Smyril Line uppi því
merki en útgerð frá
Austfjörðum laðar
færri Íslendinga að en skyldi. Í
minningunni eru þessar sjóferðir
milli Reykjavíkur og Kaupmanna-
hafnar hreint ævintýri, sem tengdi
árdaga Íslandsbyggðar við eftir-
stríðárin. Þarna gafst í senn tími til
að kynnast samferðafólki og hugsa
eigin gang í næði. Ekki sakaði þegar
með í för voru þekktir einstaklingar
allt frá Halldóri Laxness til Jónasar
frá Hriflu, en sá síðarnefndi hafði
gaman af að safna um sig ungmenn-
um og láta ljós sitt skína. Skáldið var
á rólegri nótum, enda skip löngum
kærkominn vinnustaður hans, að af-
lokinni Gerplu er hér var komið
sögu. – En þá voru reyndar byrjaðar
flugferðir og með þeim sú hröðun
mannlegra umsvifa sem nú ætlar allt
um koll að keyra.
Norræn samvinna í köldu stríði
Þróun norrænnar samvinnu
endurspeglar með vissum hætti við-
brögð við togstreitu risaveldanna
eftir tilkomu NATO 1949. Ísland
gerðist þar þátttakandi undir fyrir-
heitinu „aldrei her á friðartímum“.
Það loforð var að engu haft 1951,
m.a. fyrir þrýsting frá norskum
stjórnvöldum, sem vísuðu á Ísland
sem herstöð fyrir NATO í stað Nor-
egs til að komast sjálfir undan þrýst-
ingi Bandaríkjastjórnar. – Samstarf
á vegum áhugamanna og verkalýðs-
félaga á Norðurlöndum þróaðist
þegar á millistríðsárunum og var
endurvakið fljótlega
eftir seinna stríð. Átti
það sinn þátt í að komið
var á formlegu sam-
starfi þingmanna með
stofnun Norðurlanda-
ráðs þegar árið 1952,
en Finnar urðu fyrst
þátttakendur 1955,
nokkru eftir dauða
Stalíns. Samstarfið var
innsiglað og fest í sessi
með Helsingforssamn-
ingnum 1963, og 1971
var Norræna ráðherra-
ráðið sett á fót sem samstarfsvett-
vangur ríkisstjórna Norðurlanda.
Þar með var kominn sá rammi, sem í
stórum dráttum hefur haldist síðan
um norrænt samstarf sem á heildina
litið hefur reynst farsælt og gjöfult.
Það á ekki síst við um Ísland sem
endurnýjaði og styrkti með því
tengslin við frændþjóðirnar handan
Atlantsála eftir að þau höfðu veikst
og slitnað á árum heimsstyrjaldar-
innar síðari. Þátttakan á norrænum
vettvangi opnaði útsýni fyrir ís-
lenska stjórnmálamenn og því hafa
fylgt ferskir straumar og samstarf
flokka með svipaðar áherslur.
Ekkert boðvald fylgir þessu sam-
starfi, ólíkt því sem gerist í ESB,
heldur byggist það á gagnkvæmu
samkomulagi og virðingu fyrir ólík-
um sjónarmiðum. Að því leyti má
það teljast einstakt í alþjóðlegu sam-
hengi og er líklega helsta skýringin
á hversu endingargott það hefur
reynst í ólgu alþjóðlegra sviptivinda.
Samstarfið um
Norðurskautssvæðið
Á samnorrænum vettvangi beind-
ust sjónir fyrst svo nokkru næmi að
Norðurskautssvæðinu um og upp úr
1990. Féll það að nokkru saman við
minnkandi spennu milli risaveld-
anna og lok kalda stríðsins. Í fyrstu
var umhverfisvernd samhliða
áhyggjum af mengun frá kjarna-
vopnum helsta driffjöðrin. Á þessum
árum átti ég sæti í Norðurlandaráði
og flutti ásamt félögum í flokkahópi
Vinstri sósíalista margar tillögur um
þessi efni beinlínis tengdar norðr-
inu. Hlutu sumar þeirra samþykki
ráðsins, m.a. tillaga um sjálfbæra
þróun í Arktis (A 1061/m) og um
græna hagvísa (A 932/s). –
Áþreifingar milli embættismanna
ríkjanna átta sem eiga beina aðkomu
að Norðurskautssvæðinu leiddu til
þess árið 1991 að samþykkt var í
Rovaniemi arktísk umhverfis-
verndarstefna (AEPS). Var það
fyrsta skrefið að Arktíska ráðinu
1996, sem einnig samtök frum-
byggja eiga aðkomu að. Vestnor-
ræna ráðið hefur þar nýlega fengið
áheyrnaraðild. Arktíska ráðið er
óskuldbindandi vettvangur aðild-
arríkjanna átta og beinast störf þess
aðallega að umhverfismálum og vís-
indarannsóknum á norðurslóðum.
Aðalskrifstofa ráðsins er síðan 2013 í
Tromsö og á vegum þess starfar
fjöldi vinnu- og sérfræðinefnda sem
skilað hafa gildum skýrslum. For-
mennska fyrir ráðinu flyst milli
landa og er nú í höndum Íslands
undir forystu utanríkisráðuneytis-
ins. Þessu tengjast fjölmennir fundir
embættismanna sem haldnir verða
víða um land. Nokkur óvissa er um
framtíð þessarar mikilvægu sam-
vinnu, fyrst og fremst vegna
skammsýnnar stefnu núverandi
Bandaríkjastjórnar.
Norræna ráðherraráðið
og málefni Arktís
Fyrir utan þátttöku í Arktíska
ráðinu vinna Norðurlönd sameigin-
lega að málefnum Norðurskauts-
svæðisins undir forystu ráðherra-
nefndar sem samgönguráðherrar
landanna fara fyrir. Svo vill til að Ís-
land hefur þar nú formennsku líkt
og í Arktíska ráðinu. Skipuleg sam-
vinna Norðurlanda hófst einnig árið
1996 og birtist hún í formi áætlunar
til þriggja ára í senn. Þannig er nú
unnið samkvæmt áttundu áætlun-
inni í röð. Verkefnasviðið hefur vaxið
og stækkað frá því sem áður var, en
sjálfbær þróun í norðri er áfram
miðlægt hugtak. Það spannar hins
vegar æ fleiri svið, ekki síst með
hliðsjón af yfirstandandi og líklegum
loftslagsbreytingum. Í því sambandi
er horft fram til ársins 2030 og til 17
sjálfbærnimarkmiða Sameinuðu
þjóðanna frá haustinu 2015. Vinna
embættismanna að undirbúningi að
framkvæmd á þessu sviði er í hönd-
um aðalskrifstofu Norræna ráð-
herraráðsins í Kaupmannahöfn þar
sem starfa margir sérfróðir, m.a.
nokkrir Íslendingar. Á sama stað
Ved Stranden 18 er jafnframt skrif-
stofa Norðurlandaráðs. – Ráðið lagði
blessun sína haustið 2017 yfir núver-
andi áætlun ráðherranna um
Norðurskautssvæðið og til hennar
og þróunarverkefna er varið all-
nokkru fjármagni. Lykilorðin að
baki eru samstarf og sjálfbær þróun.
Loftslagsbreytingarnar
alltumlykjandi
Liðin eru 27 ár frá Ríó-ráðstefn-
unni 1992 sem lagði grunninn að
loftslagssamningi Sameinuðu þjóð-
anna. Löngu áður lágu fyrir vísbend-
ingar um í hvað stefndi vegna los-
unar CO2. Fyrst nú eru skilaboðin að
ná eyrum almennings í okkar heims-
hluta og endurspeglast m.a. í kosn-
ingaúrslitum nýverið í Þýskalandi.
Óvenjuleg staðviðri eins og þurrka-
og hitabylgjan sumarið 2018 á meg-
inlandi Evrópu höfðu þó líklega
meiri áhrif á almenning en vísinda-
legar forspár. Samkvæmt þeim veld-
ur losun gróðurhúsalofttegunda
langtum meiri hlýnun á Norður-
skautssvæðinu en sunnar. Splunku-
nýjar þýskar veðurfarsrannsóknir
benda til að einmitt sú þróun hafi
áhrif á háloftastrauma og hægi á
ferðum hæða og lægða og valdi
þannig langvarandi staðviðri, þurrk-
um eða votviðri. Ætli menn að ná
tökum á ört hækkandi meðalhita
þarf annað og meira að koma til en
felst í almennum fyrirheitum stjórn-
málamanna, einnig varðandi
Norðurskautið. Daninn Steen Hilde-
brandt sem hefur verið leiðandi á
vegum danska þingsins um fram-
tíðarmarkmið til 2030 orðar það svo
að nauðsynleg umbreyting kalli á al-
veg nýtt og enn óþekkt samfélags-
form þar sem loftslag og sjálfbærni
séu burðarásarnir. (Politiken, 16.
júní 2019).
Vakning unga fólksins
kallar á fótfestu
Í hluta Evrópu, einnig hérlendis,
höfum við orðið vitni að vakningu og
næmum skilning fjölda ungmenna á
hvað sé í húfi. Þennan byr er brýnt
að nota til samfélagslegra athafna í
þágu þess umhverfis sem mann-
kynið er hluti af. Til þess þarf í senn
dirfsku og pólitíska forystu um rót-
tækar breytingar á samfélagsgerð-
inni og daglegum athöfnum. Fótspor
okkar allra á umhverfið verða að
minnka svo um munar. Greta Thun-
berg sem nú er á allra vörum sá ekki
þann kost vænlegan að fljúga til Ís-
lands til þátttöku í stuttri ráðstefnu.
Í upphafi greinar minntist ég á kosti
þess að sigla yfir úthafið. Hvernig
væri að koma sem fyrst á raf-
knúnum skipsferðum víðar en til
Vestmannaeyja, þá jafnt til Kaup-
mannahafnar og Kanaríeyja. Vilji er
allt sem þarf.
Eftir Hjörleif
Guttormsson »Ekkert boðvald
fylgir norrænu
samstarfi, ólíkt því sem
gerist í ESB, heldur
byggist það á gagn-
kvæmu samkomulagi
og virðingu fyrir ólíkum
sjónarmiðum.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Þýðingarmikið norrænt samstarf
á nýjum og afdrifaríkum brautum