Morgunblaðið - 20.06.2019, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019
því Haraldur var um árabil með far-
þegaflutninga um Skagafjörð og til
Haganesvíkur í Fljótum og rak af-
greiðslu fyrir farþegaflutninga á milli
Akureyrar og Borgarness fyrir BSA.
Þá þjónaði verslun Haraldar flóa-
bátnum Drangi sem um tíma sigldi á
milli Akureyrar og Sauðárkróks á
meðan Öxnadalsheiðin var ófær að
vetri til. Sá Haraldur þá um að flytja
farþega Drangs í Varmahlíð og það-
an komust þeir í rútum áfram suður.
Farþegaafgreiðsla var í versluninni
allt til ársins 2006, þegar nýir aðilar
tóku við því verkefni að flytja farþega
milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Árið 1954 stofnaði Bjarni vöru-
flutningafyrirtæki, til að flytja vörur
á milli Sauðárkróks til Reykjavíkur.
Á þessum tíma var Bjarni orðinn
vanur akstri um þjóðvegakerfi þess
tíma, hafði í fjögur ár ekið rútu hjá
Norðurleiðum, á milli Akureyrar og
Reykjavíkur. Bjarni hafði eignast
International-vörubíl aðeins 18 ára,
þegar foreldrar hans gáfu honum bíl-
inn í tilefni bílprófsins 1948.
Vöruflutningana starfrækti Bjarni
samhliða versluninni allt til ársins
2001 en eftir að hann byrjaði að
starfa við verslun föður síns 1959 dró
verulega úr akstrinum og hann réði
til sín bílstjóra.
Bensíndælur hafa verið við versl-
unina síðan 1930, þegar Haraldur tók
við umboði BP, er síðar varð Olíu-
verzlun Íslands, Olís. Er verslunin
með allra elstu starfandi umboðs-
aðilum Olís og hefur félagið heiðrað
Bjarna fyrir störf sín öll þessi ár.
Seldi meira en Kaupfélagið
„Ég tók við góðu búi, pabbi og
mamma voru vel liðin, bæði hér á
Sauðárkróki og úti í sveitunum. Þau
voru hjálpsöm og máttu ekkert aumt
sjá. Pabbi var duglegur að selja
bændunum Deutz-dráttarvélar og
ýmis landbúnaðartæki og eitt árið
seldi hann meira en Kaupfélagið, þá
þótti mér gaman,“ segir Bjarni og
hlær dátt.
Íbúar á Króknum á árum áður
nutu greiðvikni og lipurðar kaup-
mannshjónanna, m.a. þess að taka út
vörur í reikning sem var greiddur
mánaðarlega eða þegar aðstæður
leyfðu, eða jafnvel alls ekki.
Í grein Sölva í Skagfirðingabók má
m.a. lesa frásögn sem lýsir vel greið-
vikni hjónanna. Kom Guðrún stund-
um niður í verslunina með brúna inn-
kaupatösku, sem hún átti, og tíndi í
hana eitt og annað. „Haraldur lét svo
sem hann sæi það ekki. Síðla dags,
gjarnan þegar farið var að skyggja á
vetrartíð, fór hún með töskuna og gaf
fólki það sem í henni var; hún vissi
hvar þörfin var brýnust,“ segir í
grein Sölva.
Bjarni erfði þessa góðvild og hefur
þótt ráðagóður og skemmtilegur
kaupmaður. Alltaf með tilbúin svör á
takteinum og ávallt til þjónustu
reiðubúinn. Einhverju sinni var hann
spurður hvernig reksturinn gengi.
„Þetta er allt í góðu lagi, ég næ þessu
upp á veltunni,“ á Bjarni að hafa sagt.
Spurður um sannleiksgildi þessarar
sögu brosir kaupmaðurinn sínu blí-
ðasta brosi og spyr á móti: „Næsta
spurning?“
Bara nefndu það!
Ekki hafa margar verslanir náð að
starfa í 100 ár og búðin hans Bjarna
er ein örfárra þar sem vörur eru enn
þann dag í dag afgreiddar yfir búðar-
borðið. Þegar komið er inn í versl-
unina sést fljótt að tíminn hefur nán-
ast staðið í stað, innréttingar eru þær
sömu og á afgreiðsluborðinu eru
tvær vogir, önnur hefur verið í notk-
un frá árinu 1941 en hin er safn-
gripur, með merki danska konungs-
ins og var notuð frá 1919 til 1941.
„Ja, það er nú erfitt, drengur
minn,“ segir Bjarni og ræskir sig,
spurður hvað honum finnst standa
upp úr í aldarsögu verslunarinnar.
„Það fyrsta sem mér dettur í hug er
fjölbreytt vöruúrval. Hérna höfum
við selt alla matvöru nema kjöt, við
höfum verið með fatnað, búsáhöld og
álnavöru, gjafavörur, olíuvörur og
bensín, bara nefndu það.“
Vöruúrvalið kemur skiljanlega
fljótt upp í huga Bjarna því þar hefur
sérstaða verslunarinnar legið. Í fyrr-
nefndri grein í Skagfirðingabók er
vitnað í vörutalningu Haraldar Júl-
íussonar frá árinu 1937. Þar kennir
ýmissa grasa og má þar nefna mat-
vörur, vefnaðarvörur, járnvörur,
barnaleikföng, hreinlætisvörur,
pappírsvörur, súkkulaði, krydd,
brauð, skófatnað, tóbak, leirtau,
málningu og smurolíu.
Oft bankað bakdyramegin
Bjarni nefnir einnig atorkusemi
foreldra sinna. Þau hafi verið drif-
kraftar í samfélaginu og lagt sitt af
mörkum. Þannig var Haraldur meðal
stofnenda Útgerðarfélags Sauðár-
króks og meðal frumkvöðla Verzl-
unarmannafélags Sauðárkróks og
Náttúrulækningafélags Íslands
ásamt Jónasi Kristjánssyni og
fleirum. Guðrún átti lengi sæti í sókn-
arnefnd Sauðárkrókskirkju, starfaði
með Kvenfélagi Sauðárkróks og var
meðal stofnenda félags sjálfstæðis-
kvenna á Króknum.
„Það var alltaf mikill erill á heim-
ilinu og margt fólk, bæði í versluninni
og á heimilinu. Þó að lokað væri
klukkan sex var oft bankað á kvöldin
hérna bakdyramegin til að redda
hinu og þessu. Ég man að eitt að-
fangadagskvöldið var bankað um
hálfsjöleytið og beðið um grænar
baunir með hangikjötinu.“
„Þau vilja að ég hætti“
Þegar Bjarni er spurður hvað hann
ætli sér að halda versluninni lengi
gangandi kemur smáhik, horfir síðan
brosandi á blaðamann og segir: „Þau
vilja nú að ég fari að hætta!“
Þar vísar hann til fjölskyldunnar
en Bjarni á tvær dætur, þær Guð-
rúnu Ingibjörgu og Helgu, og soninn
Lárus Inga. Dæturnar eignaðist
hann með fyrrverandi eiginkonu
sinni, Maríu Guðvarðardóttur, en þau
skildu árið 1960. Guðrún Ingibjörg
býr í Danmörku og er gift Poul
Sörensen. Helga er gift Hafsteini
Hasler og búa þau í Garðabæ. Eigin-
kona Bjarna er Ásdís Kristjánsdóttir,
móðir Lárusar Inga, en hann er gift-
ur Aldísi Hafsteinsdóttur í Hvera-
gerði.
„Það verður bara að koma á dag-
inn hvenær ég hætti. Ég hef ennþá
gaman af þessu vafstri og finnst gam-
an að hitta fólk,“ segir Bjarni, sem
verður níræður á næsta ári. Hann
hefur lengið verið með aðstoðarfólk í
versluninni en afgreiðslutíminn hefur
styst, er nú alla virka daga frá kl. 10
til 12, og 13-18. „Ef ég þarf eitthvað
að skreppa frá þá loka ég bara.“
Verslunin hefur staðið af sér mikl-
ar breytingar í viðskiptum. Þegar
mest lét voru um 30 verslanir starf-
andi í norðurbænum á Sauðárkróki
en þær eru heldur færri í dag.
Bjarni saknar þessara tíma en
hann vill þó gera lítið úr þeirri
skemmtilegu nafngift að hann sé
„bæjarstjórinn í norðurbænum“.
Bjarni segist hafa eignast marga
góða vini sem ráku verslanir við
Aðalgötuna en þeir eru flestir fyrir
margt löngu farnir yfir móðuna
miklu og fyrirtækin ekki lengur til
staðar.
„Ég myndi vilja sjá meira líf í
gamla bænum, eða norðurbænum
eins og við köllum hann gjarnan.
Vonandi rætist úr þessu safni sem er
að rísa hérna á móti. Við þurfum að fá
fleiri ferðamenn í bæinn,“ segir
Bjarni og á þar við sýndarveru-
leikasafnið 1238 The Battle of Ice-
land, sem nýlega var opnað á Sauð-
árkróki. Við hlið verslunar Bjarna er
svo lundasafn er nefnist Puffin &
Friends en við Aðalgötuna standa
m.a. veitingahús, ölkrá, blómaversl-
un, ljósmyndaverslun, bakarí, hár-
snyrtistofa, gistihús og verslanir.
„Ég fæ ferðamenn oft til mín en
þeir koma aðallega til að skoða versl-
unina, kaupa nú ekki mikið. Ætli þeir
haldi ekki að ég sé orðinn safn-
gripur,“ segir hann og glottir. Þetta
má nú til nokkuð sanns vegar færa en
fyrir um 15 árum var Byggðasafn
Skagfirðinga í samstarfi við verslun-
ina, um að varðveita hana sem minn-
isvarða um hverfandi verslunar- og
viðskiptahætti. Þá stóð tæpt að versl-
uninni yrði lokað en hún lifir enn,
sem og Bjarni.
„Kannski að ég endi hérna sem
safnvörður á tíræðisaldri, hver veit,
ef einhver vill kaupa þetta og varð-
veita söguna,“ segir kaupmaðurinn
að endingu, kátur að vanda.
Bílstjórinn Bjarni Haraldsson ungur að árum, líklega 12-13 ára, glaðbeittur við
glænýjan Studebaker-pallbíl föður síns, með númerinu K-24. Bjarni erfði það núm-
er og er með samnefnt einkanúmer á fólksbíl sínum í dag.
Fjölskyldan Guðrún I. Bjarnadóttir og Haraldur Júlíusson ásamt börn-
um sínum, Maríu og Bjarna, í Lystigarðinum á Akureyri upp úr 1935.
VIÐ TENGJUMÞIG
KORTA býður uppá örugga greiðsluþjónustu og
hagkvæm uppgjör. Posar, greiðslusíður, áskriftagreiðslur
eða boðgreiðslur. Greiðslumiðlun er okkar fag.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is
olympium 350Nú bjóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
S ími 480 0400 // jotunn@ jotunn.is // www. jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
maxipodium 500