Morgunblaðið - 20.06.2019, Blaðsíða 61
Borussia Dortmund og Bayern
München hafa náð samkomulagi um
félagaskipti miðvarðarins Mats
Hummels frá Bayern til Dortmund.
Hummels, sem er 30 ára gamall, er
öllum hnútum kunnugur hjá Dortmund
en hann lék með liðinu frá 2008 til
2016 en hefur leikið með Bayern
undanfarin þrjú ár þar sem hann varð
meistari öll árin. Hummels er fjórði
leikmaðurinn sem Bayern missir í
sumar en áður höfðu Arjen Robben,
Franck Ribery og Rafinha yfirgefið fé-
lagið.
Enski landsliðsmaðurinn Kyle
Walker er búinn að skrifa undir nýjan
samning við ensku meistarana í Man-
chester City og er nú bundinn félaginu
til ársins 2024.
Núna er liðskeppnum lokið á EM
karlalandsliða í keilu en keppt er í
München í Þýskalandi. Í gær lauk
keppni fimm manna liða og endaði ís-
lenska liðið í 13. sæti af 31. Í dag hefst
keppni 24 meðaltalshæstu leikmanna
mótsins og náði Andrés Páll Júlíus-
son, ÍR, 22. sætinu af alls 187 kepp-
endum. Hann mun því keppa um aðal-
einstaklingsverðlaun
mótsins, en 24 efstu
keilararnir gera það.
Arnar Davíð Jónsson,
sem um tíma var
einnig meðal 24
efstu, seig að-
eins niður töfl-
una síðustu
daga og end-
aði í 29. sæti
með 4.843
pinna eftir 24
leiki og vantaði að-
eins 30 pinna til að
halda sér uppi með-
al 24 efstu.
ÍÞRÓTTIR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019
Krókháls 1 • 110 Reykjavík • S. 567 8888 • www.pmt.is
Allt til merkinga & pökkunar
VOGIR
Allar gerðir voga á nýrri heimasíðu pmt.is
• MIÐAVOGIR
• TALNINGARVOGIR
• RANNSÓKNARVOGIR
• SMÁVOGIR
OFL.
Luis Enrique óskaði eftir því í gær
að hætta þjálfun spænska landsliðs-
ins í fótbolta vegna persónulegra
ástæðna. Enrique tók við landslið-
inu í júlí á síðasta ári.
Spánn er með fullt hús stiga eftir
fjóra leiki í undankeppni EM 2020.
Roberto Moreno, aðstoðarmaður
Enrique, tekur við þjálfun liðsins.
Moreno hefur stýrt liðinu í síðustu
þremur leikjum þar sem Enrique
var frá af persónulegum fjöl-
skylduástæðum sem nú hafa leitt til
starfsloka hans. Enrique, sem
stýrði Barcelona með góðum ár-
angri áður en hann tók við spænska
liðinu, þakkaði kærlega fyrir sig í
yfirlýsingu sem spænska knatt-
spyrnusambandið birti í gær.
„Ég vil þakka knattspyrnu-
sambandinu fyrir skilninginn og
virðinguna sem það hefur sýnt mér.
Starfsfólkið og leikmenn hafa verið
mjög fagmannleg. Ég vil líka þakka
fjölmiðlum fyrir þagmælsku sína og
virðingu. Ég vil þakka ykkur öllum
frá dýpstu hjartarótum,“ er haft
eftir Enrique í yfirlýsingunni.
AFP
Hættur Luis Enrique er hættur þjálfun spænska landsliðsins í fótbolta.
Enrique hættur með
spænska landsliðið
FÓTBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Rúnar Már Sigurjónsson, landsliðs-
maður í fótbolta, skrifaði á þjóðhá-
tíðardaginn undir tveggja og hálfs
árs samning við Astana frá Kasak-
stan. Rúnar kemur til félagsins frá
Grasshoppers í Sviss. Morgun-
blaðið sló á þráðinn til Rúnars í
Kasakstan, að kvöldi fyrsta dags í
nýju landi og með nýju félagi.
„Mér líst mjög vel á þetta. Ég
lenti í borginni klukkan sex í morg-
un og nú er hún orðin ellefu um
kvöldið. Fyrsti dagurinn er að baki
og þetta er búið að vera fínt hingað
til. Ég hef ekki séð eða gert mikið
en ég hef æft og séð allt í kringum
liðið. Mér líst mjög vel á það sem
ég hef séð til þessa,“ sagði Rúnar í
samtali við Morgunblaðið.
Hann hafði lengi vitað af áhuga
félagsins, sem reyndi að klófesta
hann fyrr. „Ég er búinn að vita af
áhuga þeirra lengi. Í síðustu fé-
lagaskiptagluggum hafa þeir haft
samband við mig. Það hefur hins
vegar ekki gengið að semja fyrr en
nú. Ég var náttúrlega á samningi
annars staðar og aðdragandinn er
búinn að vera mjög langur. Þetta
fór hins vegar allt á fullt í janúar.
Það hjálpaði ekki að ég meiddist
oftar en einu sinni, en þetta hafðist
að lokum,“ sagði Rúnar feginn.
Mjög langur aðdragandi
Þrátt fyrir að félagið hafi sýnt
honum mikinn áhuga í einhvern
tíma, var Rúnar ekki alltaf ákveð-
inn í að fara til Astana. Fleiri
möguleikar voru í boði, en ákveðin
ævintýraþrá leiddi hann til Kasak-
stans. „Ég var ekki endilega ákveð-
inn í að fara hingað, en ég var
ákveðinn í því að prófa eitthvað
nýtt. Ég vildi prófa að fara í eitt-
hvað óhefðbundnara en menn hafa
verið að fara í,“ sagði Rúnar, sem
er spenntur fyrir því að búa í
höfuðborg Kasakstans. „Ég skoðaði
marga möguleika í mörgum löndum
og líka í löndum sem eru nær Ís-
landi. Ég vildi skoða hvað lið höfðu
upp á að bjóða en á endanum leist
mér best á þetta. Ég er búinn að
vera heima, í Hollandi, Svíþjóð og
Sviss. Það er allt voða svipað og
hefur sína kosti og galla. Ég vildi
hins vegar prófa eitthvað öðruvísi.
Ég veit ekki mikið um landið, þótt
ég hafi kynnt mér það eftir því sem
áhuginn varð meiri. Ég verð í
höfuðborginni og það sem ég hef
séð af henni lítur mjög vel út. Ég
talaði við fólk sem hefur komið
hingað og allir töluðu vel um þessa
borg.“
Félagið var stofnað árið 2009
sem Lokomotiv Astana en breytti
um nafn tveimur árum síðar og
heitir núna einfaldlega Astana. Lið-
ið hefur unnið deildina heima fimm
síðustu ár og bikarinn þrisvar á
síðustu níu árum. Þá hefur liðið
einu sinni komist í riðlakeppni
Meistaradeildarinnar og þrisvar í
riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Tímabilið 2017/18 fór liðið alla leið í
32-liða úrslit Evrópudeildarinnar.
Snýst allt um Evrópukeppni
„Allt annað en titillinn er von-
brigði,“ byrjaði Rúnar. „Liðið vinn-
ur hann á hverju ári og þótt það sé
ekki formsatriði, er það krafa. Það
er einnig krafa að liðið vinni bikar-
inn, en það gerist ekki í ár, þar
sem liðið er dottið út.“ Astana er
sem stendur í toppsæti deildar-
innar með 35 stig þegar hún er
hálfnuð. Tobol er í öðru sæti með
32 stig og á tvo leiki til góða. Rún-
ar segir Evrópukeppnirnar mun
mikilvægari en deildakeppnina hjá
félaginu. „Í rauninni snýst allt um
Evrópukeppnina hérna. Að komast
annaðhvort í riðlakeppnina í Meist-
aradeildinni eða Evrópudeildinni.
Deildin er eins og hún er og liðið
er í efsta sæti, þrátt fyrir að hafa
ekki spilað rosalega vel. Ég finn
það á fólkinu hérna að allt snýst
um Evrópukeppnirnar og mér líst
vel á það.“
Rúnar viðurkennir að hann er
feginn að hafa losnað frá Grass-
hoppers í Sviss. Liðinu gekk skelfi-
lega á síðustu leiktíð og féll úr
efstu deild með aðeins fimm sigra í
36 leikjum. Stuðningsmenn félags-
ins voru vægast sagt ósáttir og
gekk illa að ljúka leikjum vegna
óláta í þeim.
Var orðið þungt og erfitt
„Sviss er gott land og það er
gott að vera þar en þetta var orðið
mjög þungt hjá Grasshoppers, sér-
staklega síðasta hálfa árið. Ég var
mjög feginn að mitt plan tókst. Ég
náði að gera það sem ég lagði upp
með; að klára samninginn minn og
geta valið næsta áfangastað. Ég
verð að viðurkenna að ég var feg-
inn að losna og sérstaklega þegar
ég sá hvernig liðið var að byrja
undirbúningstímabilið fyrir nokkr-
um dögum. Þá fann ég það strax að
það var rétt ákvörðun að fara það-
an. Þetta var orðið mjög þungt og
erfitt,“ sagði Rúnar Már Sigurjóns-
son. Sauðkrækingurinn gæti spilað
sinn fyrsta leik með nýju liði næsta
sunnudag. Astana mætir þá Orda-
basy á útivelli. Kasakstan er stórt
land og er tæplega 1.500 kílómetra
ferðalag fram undan hjá Rúnari og
félögum.
Var orðið þungt og erfitt
Rúnar Már í topplið Kasakstans Skylda að vinna deildina en allt snýst um Evr-
ópukeppni Feginn að losna frá Grasshoppers Vildi prófa eitthvað óhefðbundið
Ljósmynd/Astana
Félagaskipti Rúnar Már Sigurjónsson með treyju FC Astana.
Eitt
ogannað