Morgunblaðið - 20.06.2019, Blaðsíða 52
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Hvað skiptir mestu máli tengt heim-
ilinu að þínu mati?
„Þegar ég labba inn í íbúðina mína
vil ég finna fyrir hlýju, góðum anda
og góðri lykt.“
Hefur þú flutt oft?
„Ég bjó lengi erlendis. Í New
York, París, Tókýó, London, Barse-
lóna, Lissabon og Mílanó svo dæmi
séu tekin. Svo ég flakkaði mikið á
milli íbúða sem voru ekki alltaf í
minni eigu. Þá fann ég mikið fyrir
því að það vantaði upp á þessa heima
tilfinningu þegar maður kom heim
eftir langan dag. Einhvern veginn
fannst manni maður aldrei vera
kominn heim, þó að maður væri
„heima“.
Á Íslandi bjó ég alltaf í sama húsi
með foreldrum mínum, en eftir að ég
flutti út hef ég búið í tveimur íbúð-
um. Bý í þeirri seinni núna.“
Hvað gerir þú þegar þú vilt gera heim-
ilið fallegt?
„Ég kaupi blóm til að skreyta og
kveiki á reykelsi. Þessa dagana er ég
mikið með salvíu. Síðan kaupi ég mér
kannski nýtt ilmkerti. Ég elska
„dimmar“ lyktartegundir.“
Hvar er þinn uppáhaldsstaður heima?
„Stofan. Þegar ég flutti hingað
ákvað ég að vera ekki með sjónvarp
til að innrétta stofuna ekki út frá
staðsetningu sjónvarps. Það gerir
svo ótrúlega margt og gefur manni
aðeins frjálsari hendur í því hvernig
hún er uppsett. “
En í vinnunni?
„Staður sem er nefndur „Sófa-
hornið“. Þar er mjög bjart og þar eru
þægilegir sófar. Þessi staður er rétt
hjá kaffivélinni.“
Hvað gerir Hugsmiðjuna að góðum
vinnustað, þ.e. húsið?
„Það er mjög bjart þar inni og stór
rými sem hægt er nýta sér til að
vinna í meira næði.“
Er góður andi í vinnunni?
„Það er yndislegur andi í vinnunni.
Frábært fólk og skemmtilegur
vinnustaður. Við tökum reglulega
Wim Hof-öndunaræfingar í sófa-
horninu og kíkjum svo í hópferð í
kalda pottinn í Sundhöllinni. Það
gerir alla mjög slaka og létta.“
Ertu með mikla tækni heima?
„Heimilið mitt er mjög ótækni-
legt – eina tækið er „router“ og lítill
„bluetooth“-hátalari. En það er ein-
mitt það sem gerir íbúðina mína að
heimili – það er ekkert stress!“
Hefur þú meiri tíma heima þar sem
vinnustundir í Hugsmiðjunni eru
færri en venjubundnir 8 tímar?
„Já, algjörlega. Ég hef miklu
meiri orku, bæði í vinnunni og þeg-
ar heim er komið og get sinnt
áhugamálum mínum betur. Meiri
tími í að stússast, elda og hitta
vini.“
Áttu gott ráð fyrir fólk tengt því að
raða inn í skápa?
„Ég mæli ekki með að leita til
mín til að fá ráð við slíku.“
Hvað keyptir þú þér síðast heim?
„Fallegan grænan hægindastól og
djassplakat sem segir It‘s all about
the jazz!“
En í fataskápinn?
„Rauð/appelsínugulan sumarkjól.“
Hvernig er að vera ung viðskiptakona
á uppleið í dag?
„Ég vinn á vinnustað þar sem kon-
ur eru í meirihluta í stjórnunar-
stöðum og eru allar undir fertugu.
Þær hafa hjálpað mér að hafa trú á
sjálfri mér og að standa með mínum
ákvörðunum sem tengjast vinnunni
minni. Ég er einnig formaður Hags-
munafélags kvenna í hagfræði og
það hefur veitt mér innblástur að
umgangast svo margar öflugar kon-
ur. Þetta tvennt hefur gefið mér
mikla trú á að það sem ég vil gera og
get ég gert.“
Áttu fasteign/íbúð sjálf?
„Nei, ég er á leigumarkaðnum.“
Þar sem þú sérhæfir þig í markaðs-
málum, ertu með góða nýja hugmynd
sem gæti verið áhugaverð til að selja
fasteign á öðruvísi hátt?
„Ég er með fullt af góðum hug-
myndum en þær eru ekki ókeypis.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stofan heima hjá Brynju er þannig að hún
nýtist í gott spjall og tengingu við annað fólk.
Hún er ekki með sjónvarp í stofunni.
„Heimilið er mjög
ótæknilegt“
Brynja Jónbjarnardóttir starfar sem markaðsráðgjafi
hjá Hugsmiðjunni og sem fyrirsæta. Hún hefur búið
víða og veit hvað gerir hús að góðu heimili. Þó að
hún vinni sem markaðssérfræðingur hjá tæknifyrir-
tæki velur hún að hafa heimilið án mikillar tækni.
Með styttri vinnudegi má
nýta daginn betur með vin-
um og ættingjum. Brynja
hefur gaman af því að elda.
Náttúrulegir
litir eru áber-
andi heima hjá
Brynju.
Það er mikil ró og friður á heim-
ilinu. Litirnir eru fallegir og hver
hlutur vel valinn.
Góðir ilmir eru
ávísun á gæði að
mati Brynju.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646