Morgunblaðið - 20.06.2019, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 20.06.2019, Qupperneq 52
Elínrós Líndal elinros@mbl.is Hvað skiptir mestu máli tengt heim- ilinu að þínu mati? „Þegar ég labba inn í íbúðina mína vil ég finna fyrir hlýju, góðum anda og góðri lykt.“ Hefur þú flutt oft? „Ég bjó lengi erlendis. Í New York, París, Tókýó, London, Barse- lóna, Lissabon og Mílanó svo dæmi séu tekin. Svo ég flakkaði mikið á milli íbúða sem voru ekki alltaf í minni eigu. Þá fann ég mikið fyrir því að það vantaði upp á þessa heima tilfinningu þegar maður kom heim eftir langan dag. Einhvern veginn fannst manni maður aldrei vera kominn heim, þó að maður væri „heima“. Á Íslandi bjó ég alltaf í sama húsi með foreldrum mínum, en eftir að ég flutti út hef ég búið í tveimur íbúð- um. Bý í þeirri seinni núna.“ Hvað gerir þú þegar þú vilt gera heim- ilið fallegt? „Ég kaupi blóm til að skreyta og kveiki á reykelsi. Þessa dagana er ég mikið með salvíu. Síðan kaupi ég mér kannski nýtt ilmkerti. Ég elska „dimmar“ lyktartegundir.“ Hvar er þinn uppáhaldsstaður heima? „Stofan. Þegar ég flutti hingað ákvað ég að vera ekki með sjónvarp til að innrétta stofuna ekki út frá staðsetningu sjónvarps. Það gerir svo ótrúlega margt og gefur manni aðeins frjálsari hendur í því hvernig hún er uppsett. “ En í vinnunni? „Staður sem er nefndur „Sófa- hornið“. Þar er mjög bjart og þar eru þægilegir sófar. Þessi staður er rétt hjá kaffivélinni.“ Hvað gerir Hugsmiðjuna að góðum vinnustað, þ.e. húsið? „Það er mjög bjart þar inni og stór rými sem hægt er nýta sér til að vinna í meira næði.“ Er góður andi í vinnunni? „Það er yndislegur andi í vinnunni. Frábært fólk og skemmtilegur vinnustaður. Við tökum reglulega Wim Hof-öndunaræfingar í sófa- horninu og kíkjum svo í hópferð í kalda pottinn í Sundhöllinni. Það gerir alla mjög slaka og létta.“ Ertu með mikla tækni heima? „Heimilið mitt er mjög ótækni- legt – eina tækið er „router“ og lítill „bluetooth“-hátalari. En það er ein- mitt það sem gerir íbúðina mína að heimili – það er ekkert stress!“ Hefur þú meiri tíma heima þar sem vinnustundir í Hugsmiðjunni eru færri en venjubundnir 8 tímar? „Já, algjörlega. Ég hef miklu meiri orku, bæði í vinnunni og þeg- ar heim er komið og get sinnt áhugamálum mínum betur. Meiri tími í að stússast, elda og hitta vini.“ Áttu gott ráð fyrir fólk tengt því að raða inn í skápa? „Ég mæli ekki með að leita til mín til að fá ráð við slíku.“ Hvað keyptir þú þér síðast heim? „Fallegan grænan hægindastól og djassplakat sem segir It‘s all about the jazz!“ En í fataskápinn? „Rauð/appelsínugulan sumarkjól.“ Hvernig er að vera ung viðskiptakona á uppleið í dag? „Ég vinn á vinnustað þar sem kon- ur eru í meirihluta í stjórnunar- stöðum og eru allar undir fertugu. Þær hafa hjálpað mér að hafa trú á sjálfri mér og að standa með mínum ákvörðunum sem tengjast vinnunni minni. Ég er einnig formaður Hags- munafélags kvenna í hagfræði og það hefur veitt mér innblástur að umgangast svo margar öflugar kon- ur. Þetta tvennt hefur gefið mér mikla trú á að það sem ég vil gera og get ég gert.“ Áttu fasteign/íbúð sjálf? „Nei, ég er á leigumarkaðnum.“ Þar sem þú sérhæfir þig í markaðs- málum, ertu með góða nýja hugmynd sem gæti verið áhugaverð til að selja fasteign á öðruvísi hátt? „Ég er með fullt af góðum hug- myndum en þær eru ekki ókeypis.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stofan heima hjá Brynju er þannig að hún nýtist í gott spjall og tengingu við annað fólk. Hún er ekki með sjónvarp í stofunni. „Heimilið er mjög ótæknilegt“ Brynja Jónbjarnardóttir starfar sem markaðsráðgjafi hjá Hugsmiðjunni og sem fyrirsæta. Hún hefur búið víða og veit hvað gerir hús að góðu heimili. Þó að hún vinni sem markaðssérfræðingur hjá tæknifyrir- tæki velur hún að hafa heimilið án mikillar tækni. Með styttri vinnudegi má nýta daginn betur með vin- um og ættingjum. Brynja hefur gaman af því að elda. Náttúrulegir litir eru áber- andi heima hjá Brynju. Það er mikil ró og friður á heim- ilinu. Litirnir eru fallegir og hver hlutur vel valinn. Góðir ilmir eru ávísun á gæði að mati Brynju. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.