Morgunblaðið - 19.07.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2019
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
HÚÐÞÉTTING
Lyftir og þéttir slappa húð
Tímapantanir í síma533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla 2
Evrópusambandið hefur aldreigetað komið saman reikn-
ingum um starfsemi sína sem upp-
fylla þær kröf-
ur að endur-
skoðendur hafi
getað staðfest
þá. Þetta er
vissulega sér-
stakt og verð-
ur seint talið
traustvekjandi um þá starfsemi
sem fram fer innan sambandsins.
Sérkennilegri er þó til muna sú„venja“ sem skapast hefur í
starfi ráðherraráðs Evrópusam-
bandsins, þar sem leiðtogar aðild-
arríkjanna sitja. Venjan – ósiður-
inn – felur í sér að ríkið sem er
með forsætið hverju sinni, og ber
kostnað af starfseminni auk þess
að ákveða hve miklu það vill eyða
í fundahöldin, fær fyrirtæki til að
„kosta“ starfsemina.
Þetta eru gjarnan sömu fyrir-tæki og eiga mikið undir af-
stöðu Evrópusambandsins til til-
tekinna mála. Fyrirtæki sem
nýverið hafa styrkt starfsemi ráð-
herraráðsins eru BMW, Coca-
Cola, Mercedes og Renault og
óvíst er að þau hafi aðeins gert
það af einskærum áhuga á starf-
seminni.
Kostnaður forsætisþjóðarinnarhleypur á milljörðum króna
það hálfa ár sem hún fer með for-
sætið og stundum fer kostnaður-
inn upp í tugi milljarða króna.
Þegar þingmaður á Evrópuþing-
inu spurði um styrkina og hvort
þeim hefðu fylgt óeðlilegar skuld-
bindingar neitaði ráðherraráðið
að veita upplýsingar og vísaði á
forsætislöndin.
Allt er þetta því í hinum sannaEvrópusambandsanda gagn-
sæis og opinna lýðræðislegra
stjórnarhátta.
Kostuleg kostun
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Bandaríska fyrirtækið Greencraft
hefur hug á að vinna íblöndunarefni
fyrir steinsteypu úr móbergi á
Reykjanesi. Fyrirtækið sérhæfir sig í
gerð hátæknisteinsteypu á um-
hverfisvænan hátt. Framleiðslan yrði
aðallega notuð hér á landi og mögu-
lega einnig í nágrannalöndum.
Romeo Ciuperca, framkvæmda-
stjóri Greencraft, óskaði eftir því að
Reykjanesbær gæfi yfirlýsingu um að
sveitarfélagið legðist ekki gegn
áformunum. Þetta kemur fram í
fundargerð umverfis- og skipulags-
ráðs Reykjanesbæjar frá 4. júlí sl. Er-
indið var fyrst lagt fram 17. maí 2019
en var frestað og óskað eftir nánari
gögnum. Guðlaugur H. Sigurjónsson,
sviðsstjóri umhverfissviðs Reykja-
nesbæjar, sagði málið vera í vinnslu.
Áform eru um að vinna efnið úr
Stapafelli, undir námuleyfi ÍAV. Þar
hefur verið efnisvinnsla frá því um
1950 að framkvæmdir hófust á
varnarliðssvæðinu.
Romeo Ciuperca sagði að Ísland
væri mjög auðugt af umræddu basalt-
gleri sem finnst í móbergi. Efnið er
malað í fíngert duft og er framleiðslu-
aðferðin einkaleyfisvernduð. Duftið
getur komið í stað sements að hluta
og íblöndun efnisins bætir eiginleika
allra gerða steinsteypu.
Framleiðsla Portland sements
veldur um 7% af losun gróðurhúsa-
lofts (CO2) á heimsvísu. Ciuperca
sagði að notkun efnis sem hefur ekk-
ert kolefnisfótspor í stað sements
drægi úr losun gróðurhúsalofts.
Hann sagði að notkun efnisins fylgdi
ekki viðbótarkostnaður, auk þess sem
það bætti steypuna. Þetta væri því
framlag til lausnar á loftslags-
vandanum. gudni@mbl.is
Umhverfisvænt efni úr móbergi
Greencraft óskar eftir viljayfirlýsingu frá Reykjanesbæ vegna jarðefnavinnslu
Vegagerðin auglýsti hinn 24. júní sl.
eftir tilboðum í smíði nýrrar brúar á
Kvíá í Öræfum. Til stóð að opna til-
boðin á þriðjudaginn en skemmst er
frá því að segja að ekkert tilboð
barst.
Hin nýja brú verður 32 metra löng
í einu hafi. Hún mun leysa af hólmi
eldri einbreiða brú, sem tekin var í
notkun 1974. Landstöplar nýrrar
brúar verða steyptir, grundaðir á
boruðum stálstaurum innfylltum
með steypu. Yfirbygging brúar
samanstendur af lokuðum stálbitum
með steyptu gólfi. Vegatengingar
verða 400 metrar, beggja vegna við
brúna. Svæðið við Kvíá er sam-
kvæmt aðalskipulagi skilgreint sem
svæði undir náttúruvá. Svæðið er
neðan Kvíárjökuls í Öræfajökli, þar
sem ummerki eru eftir hamfara-
hlaup á forsögulegum tíma.
Enn eru margar einbreiðar brýr á
hringveginum, með tilheyrandi
slysahættu. Áform eru um að út-
rýma þessum brúm.
Í sumar hafa t.d. verið smíðaðar
tvíbreiðar brýr yfir Stígá og Hólá í
Öræfasveit, sem eru skammt vestan
við Kvíá. Brýrnar tvær reisti brúar-
vinnuflokkur Vegagerðarinnar í Vík.
sisi@mbl.is
Ekkert tilboð kom
í nýja Kvíárbrú
Vegagerðin skiptir út einbreiðum brúm
Morgunblaðið/Ásdís
Einbreiðar Enn er margar slíkar brýr að finna á hringveginum .